Ófeigur

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Ófeigur - 01.03.1908, Qupperneq 21

Ófeigur - 01.03.1908, Qupperneq 21
21 getur náð í af íslenzkum vörum. Ýmsir þeirra, er hann lánaði útlendu vöruna, bregðast, og því verð- ur hann að kaupa af öðrum til þess að geta staðið í skilum. Þetta gerir skiljanlegt kapp kaupmanna hér um íslenzku vörurnar, og tilboð þeirra um hátt verð, sem auðvitað er nauðungarboð. Það gerir líka skiljanlegt, að þeir kaupa vörurnar, hversu illar sem þær eru, til þess að hafa eitthvað handa umboðs- manninum. Pegar svo loks þessi samtíningur af íslenzk- um vörum kemur til umboðsmannsins, standa á hon- um ótal greiðslur, sem eru að falla í gjalddaga, ým- ist fyrir keyptar vörur eða hjá bönkum, sem lánað hafa. Honum liggur því æran á, að fá seldar ís- lenzku vörurnar svo fljótt sem unt er, ella verða svikari og missa lánstraust. Hann bfður hana því út, og allir vita að eitt fyrsta skilyrðið fyrir greiðri útsölu er lágt verð. Þessvegna undirbjóða þessir umboðsmenn hver annan, og selja stundum vörurn- ar fyrir hvaða boð sem í þær fæst, því að þeir hafa ekki efni eða bolmagn til að bfða betri tíma, eða Ieita lengi fyrir sér með söluna. Persónulega hags- muni þeirra snertir það lítið eða ekkert, hvaða álit varan hefir á markaði, hvort hún er ill eða góð, og hvaða verð fæst fyrir hana, aðeins ef þeir fá sitt og geta staðið í skilum við Iánardrotna sína, og alveg gildir hið sama um kaupmennina hér heima. Pannig er árlega mikið af afurðum vorum selt erlendis einskonar nauðungarsölu i smásmökkum af mönnum, sem, eftir hlutarins eðli, enga hvöt hafa til þess, að hirða uin gæði varanna, álit og verð. Og

x

Ófeigur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1273

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.