Ljósið - 01.02.1909, Blaðsíða 3

Ljósið - 01.02.1909, Blaðsíða 3
L J Ö S I Ð 19 mér þá speki, að það borgaði sig illa að reyna að vekja guðfrœðinga þjóðar vorrar,»því að þeir elskuðu mest af öllu smér og gemlinga«, sagði Skúli. Síðan að guðfræð- ingurinn frá Yigur varð samgróinn Skúla, lastar Gj'ðing- urinn ekki sinn daglega lagsbróður. Þess gerist heldur ekki þörf, þar sem Yigur-klerk- urinn er nægilega pólitiskur vantrúarmaður á þá kristi- legu siðmenning er kemur, þá prestar bætta að gylla lýgina og um leið að fela sannleikanu, sem getur orðið frelsari þjóðanna, ef hann væri ekki í höndum biblíu- dýrkaranna, sem kenna guð eftir bókföstum lyga-sögum, er svivirða guðdóminn og leiða krókavegi til falls og hrösunar. Eg ætlast til að guðfræðingar, sem á þingi sitja, taki eftir því, að eg lítt mentaði bóndinn, alin upp í sama hreiðrinu og guðfræðingurinn og skáldið Matthías bróðir minn, hefi einurð og kraft til að segja ykkur til syndanna. Eg set ykkur alla, guðfróðu þ'ingmennina, í bónda- beygju — svo nefnda — með orðum mínum. Ykkur, herrana, sem tekið hafið próf og vigslu í guðfræði. Þið eruð bersyndugb' heimskingar, ónýtir drottins jjónar. Annað tveggja skiljið ])ið ekki sannleikkann eða )ið látið hann eins og vind hlaupa fram hjá ykkur. — ?ó sannleikurinn snerti hjörtu ykkar á augnabliks tíma, þá sofnið þið aftur á veralar-vantrúar-kveldi. Talið þó um vantrú bjá blessaðri alþýðunni sem þið sjúgið blóð og merg úr fyrir ramvitlausa guðfræði, argasta guðlast. Skiljið þið ekki íslenzkuna sem eg tala og læt prenta, velæruverðugu bræður? Hefi eg stolið l'rá ykkur vopnum ykkar og verjum? Eg liygg það rétt, að eg megi hugsa með mínum beila eg. þori að dæma hneyksliskenningar þær er ílest- um rétthugsandi mannvinum ofbíður, að þið haldið í dauðahaldi. Guðfræðin ykkar er að mínum skilningi ekki mik- dsvirði, þrátt fyrir það, þó að mörgum barnamanni veitist erfitt að íylla sál prestsins síns, og borga með ó- svikinni vöru fúið og svikið sálarfóður.

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.