Ljósið - 01.02.1909, Blaðsíða 15

Ljósið - 01.02.1909, Blaðsíða 15
hjá mér frú er sprottin, allir meta eiga menn almáttugan drottin. I kirkjum vígðir klerkar lands og kær biskupinn nýji hætti að minnast meistarans með hjátrú og lýgi. Synd er ekki saga ný, synd kemur frá rnunni, lærðir hafa’ enn lag á því að ljúga i dómkirkjunni. Þó mikil sé guðs náðar nægð í náðarinnar brunni, lýgi ei skapar frama’ og frægð fögru í dómkirkjunni. Orð koma frá munni’ á mér, menn ei dóminn flýi, klerkar hætti’ að kenna hér, kreddur, heimsku og l}Tgi. Hróp mitt-nær i himininn, heiðindómur kafni. Drottinn virðir vilja minn vel í Jesú nafni. "V & i* s. Sendi guð þér sorg og þrautir segðu ekki neinum frá, gakk ei út á gatna-brautir að gráta, svo að allir sjá. En, ef aftur happ þig hendir, hann sem alla gæfu sendir lofaðu’ í augsýn allra þá.

x

Ljósið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósið
https://timarit.is/publication/1275

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.