Ljósið - 01.02.1909, Síða 11
L J Ó S I Ð
27
Með öllinn mjalla?
»Norðri« 21. janúar s. 1. flytur um landið ritgerð
eftir trúfi'æðing' þjóðkirkjunnar Matthías bróður minn.
Greinin gengur mest út á það, að lasta menn þá, sem
gefa út »Bjarma«. Að Jilaði því eru margir útgefendur.
Bjarni kennari Jónsson er ritstjóri þess.
Matthías segir, að blaðið Bjarmiogþess »missjóna-
menn«, hafi þegar þungan liuga til þeirra herra, nýja
biskupsins og hinna nýju kennara prestaskólans; en ef
þetta er satt, má mikið vera, ef þessi árás rotar ekki
fyr þá sjálfa en hina.
Árás Matthíasar endar á þessum ókurteisa sleggju-
dómi:
»Pér Ijósfælnu menn, farið upp í Surtshelli, þar
sem engin hádegissól skín og hafið með ykkur »Bjarma«
og aðrar útbrunnar kolatýrur. Yarist að ganga í ljós-
inu og eins og á degi, því að teljandi eru þau »trúar-
sannindi« ykkar, sem tíminn hefir ekki talið, vegið og
dæmt«.
Því er nú allra-trúar presturinn Matthías að láta
svona mikið yfir sér?
Hann man víst ekki eftir því, þá hann var með
nautaklafann um hálsinn í lúthersku þjóðkirkjunni.
Guðtróði Matthías man ekki fremur en kýrin, að
hann hefir kálfur verið. Nú fyrst er bíessaður moð-
kálfur kirkjunnar, séra Matthías, farinn að hnýfla kálfa
smáa og fáa í þessu bókstaflega trúlausa landi. Því
ræðst ekki samsuðu-presturinn á prófasta og presta
þjóðkirkjunnar, sem vilja rífast um pólitík veraldlega
valdsins og gera sig að slettirekum í því málefni, sem
þeir voru ekki stimplaðir fyrir?
Með öllum mjalla hefir séra Matthías þózt vera.
þá hann var að kenna moldviðri þjóðkirkjunnar, þá
dómadags heimsku, sem nýju prestaskólakennararnir
ætlast til að nýbakaðir guðfræðingar kenni, vígðir af
blessuðum vini mínum Þórhalli Bjarnarsyni, sem Matt-
hías fullyrðir að hafi fasta skrúfu í biskups-höfði sínu.