Ljósið - 01.04.1909, Side 8
72
LJÓSIÐ.
blaði. Slíkur aumingi er nú látinn vera fulltrúi vor og
konungs. Það er illa farið, að öll íslenzka þjóðin verð-
ur að líða skömm og skaða af þessu villumannaæði
spiritistanna og' þeim meiri hluta, er saurblaðarógur og
lýgi gat til leiðar komið.
Eg veit, að drottni almáttugum er ekki um megn
að láta þetta ókristilega guðleysi ritstjóranna og prest-
anna vefða til þess, að opna augun á íleirum en mér,
svo þing og þjóð vilji kannast við, að höfundur gleði-
boðskaparins, Jesús, var ekki að kenna lærisveinum
um sínum að breyta eftir skriftlærðum lögbrotamönn-
um drottins, Gyðingum og heiðingjum. — Sannleikur-
inn getur aldrei frelsað okkar veiku þjóð með þeirri að-
ferð, að setja unga menn í skóla og kenna þeim að
verða heiðingjum og Gyðingum verii.
Þingmönnum vorum væri sómi að tala um lagfær-
ingu á kristindómi kirkjunnar, því ekki fyllist sál guð-
fræðinga með anda og krafti frá drottni, þó þeir fái
margar krónur fyrir að kenna lýgi í stað sannleika. —
Enginn fulltrúi, sem þjóðin hefir kosið, er fær um að
verja guðfræði þá, sem prestar kenna og seija sóknar-
börnum sínum. Ekki heldur er neinn sá óviti eða sam-
vizkulaus maður á þingi, aðhannjfari að reyna að sanna
það, að Björn Jónsson, fyrverandi ábyrgðarmaður »ísa-
foldar« sé nú orðinn kristilegur, trúverðugur ágætismað-
ur, og því sómi lýðs og lands að flagga fyrir karlinum,
enda hefir það ekki verið gert.
En þar sem dönsk hátigii náðaði Björn, fyrirgaf
honum alla þá skömm, er hann reyndi að gera dönsku
þjóðinni, þá ber oss Íslendíngum ekki síður að fyrirgefa
aumingja persónu þessari bæði skaðann og skömmina,
sem þjóðin er búin að fá af hamaskiftum vindhanans.
Eg áminni alla kristilega hugsandi menn um að fyrir-
gefa nj'ja ráðgjafanum, eg vil að sem flestir styðji veik-
an mann og gamlan í háu sæti, jiví ekki er guði ó-
mögulegt að laga mannskepnuna.
Eg leyfi mér að minnast á það í »Ljósinu«, sem
undarlegt glappaskot Landvarnarmanna, að þeir brugð-
ust Skúla sínum, trúðu Birni betur. Skúli hefði gætt