Ljósið - 01.04.1909, Qupperneq 10
74
LJÓSIÐ.
Jesú Krist á meta meir
en menn og heimsins vald og auð,
brákaðan hann ei brýtur reyr,
bókstafstrúin min er dauð.
í landi voru er trúartrufl,
til of lítið er af dygð.
Margir æfa dans og dufl,
draugatrúar-hneixli og lygð.
Sannleikann menn grata í gröf
svo guðs-neitendur fjölga her.
Mín orð fari heims um höf,
herrans andi stjórnar mér.
Mentar Jesú mína sál
Messíasar á eg trú, —
fullskýrt tala móðurmál,
málið, biskup, skilur þú.
Víst er kominn tími til
að trúfræðin sé skoðuð vel,
eg skriftlærða vekja vil,
vonda trúin fái hel.
Ritning dautt er sögusafn,
sannur veit það andi minn,
henni í fann eg herrans nafn
og' hneixlið, Ijóta djöfulinn.
Það á skilja þjóðin fróm
að þörf er að kasta djöfli frá,
hneixlið passar páfi í Róm
ogjiprestar vorir landi á.
Þó biblían fornt sé barnagull,
börn guðs sjá að hún er ljót,
henni í er hneixli og bull,
heimska, lýgi, klárn og blót.
Það vel skilja þjóðirnar,
þjóðskáldin og báðir við: