Ljósið - 01.04.1909, Page 14
78
LJÓSIÐ.
Eilífur skilji andinn þinn,
upplýsingu gef eg þá :
ei geðjast vonda guðfræðin
guðsbörnunum Fróni á.
Hér guðs verur hringsnúast,
heimska er mest hjá klerkum,
ekkert líf má útskrifast
úr guðs kærleiksverkum.
Mattías góðan guð fær sjá,
guði hjá sá lendi,
fjandinn aðeins fúinn á
fjúka úr drottins hendi.
Blindur varð hann bróðir minn
þá bilaði trúarkraftur.
Syngi nú góði svanurinn
sálina kraft í aftur.
Skáldið guðs vel skiljandi,
skýrt mál hafi í ljóðum,
það villist enginn viljandi
á vegi beinum, góðum.
Eg segi hreinan sannleikann,
syndinni á kasta frá.
Krókaveg mjög katólskan
kirkjan heíir leitt börn á.
Ivirkjan brýtur skip við sker,
skáldverk fúið hennar er,
Kristur alheims kennist hér,
Ivristur trúr er guð í mér.
Trú hrein ekki færir fjöll,
fjöllin mega standa öll,
gömul fúna guðaspjöll,
guð drottinn er e'kki tröll.
Allir hljóti frelsi og frið,
friður skapar betri sið,