Ljósið - 01.04.1909, Síða 16
LJÓSIÐ.
80
Hneykslislög-.
Molto :
Belra cr trúar bænagjörð
en bezta vín að morgni dags.
Jesús verndar veika hjörð
við það kannist bræður strax!
Jesús breytti vatni í vín
vínið má því glcðja oss.
Góðir þingmenn gæti sín
gjöri léttan þjóðarkross.
Aðflutningsbann víns ætti ekki að samþykkjast af
alþinginu, því það eru skrælingjaleg fþvingunarlög. —
Heldur á þjóðin að læknast á kristilegan hátt með því
að kristindómurinn hefir í sér nægan sannleikskraft, ef
hann er rétt kendur æskulýðnum, þá kemur hann fram
í sinni fullri feg'urð og dýrð.
Það er sönnun upp á íslendinga, að þeir eru »tart-
aralýður« ósjálfstæðari en Danir, el ekki má flytja neitt
vín inn í landið. — Öll ófrelsislög er svo langt ganga,
að allir menn, sekir sem ósekir, verða að búa undir
sömu harðstjórnarlögum, það spillir kristilegri siðmenn-
ing, og er ekki heilbrigð hugsun, því hún spillir frelsi
göfugra manna, þeirra sem gæta sín, og falla ekki
á svellinu, því það er kristileg skylda, að njóta þess
í hófi, sem gleður og hressir volaðar sálir, því Drotlinn
er góður og' miskunnar sig yfir öll sín verk. En sjálfir
eigum við að vinna að frelsinu án þess að lúta þving'-
unarlögum.
Ef takið saman toll-lög ný
tollið mat hjá konum, .
minkar lilóð og mergur í
mörgum landsins sonum.
Gyðingdómur blindar Björn
bita feitum karlinn riáði,
i hæðsta sæti einn er örn
auðsjúkur á þessu láði.
Prentsmiðjan Gutenberg.
1