Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2004, Page 2

Víkurfréttir - 13.05.2004, Page 2
2 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA! S ýslumaðurinn í Keflavíkhefur sent dómsmála-ráðuneytinu bréf þar sem varðstaða vopnaðra her- manna utan varnarsvæðis er gagnrýnd. Sýslumaður gagn- rýnir sérstaklega varðstöðu hermanns sem var í pallbíl við kirkjugarð Keflavíkur við gatnamót Stakksbrautar og Garðvegar. Hermaðurinn var vopnaður vélbyssu, en fleiri vopnaðir hermenn voru á svæðinu við Helguvíkurhöfn, ýmis utan eða innan varnar- svæðis. Í bréfi sýslumanns kemur fram að börn hafi sést á hafnarkantin- um í Helguvík þar sem loðnu- skip landa að jafnaði og segir í bréfinu að varðstaðan hafi valdið Suðurnesjamönnum óróa. „ Ó heppilegt er að hermenn sýni vopn sín innan um almenning eða þannig að almenningur verði var við þau. Breytir þar engu hvort hermenn eru innan eða utan samningssvæða. Varðstaða utan samningssvæðanna ætti að vera í höndum íslenskra yfir- valda,“ segir í lok bréfsins. Sýslumaðurinn í Keflavík hafði árið 1993 afskipti af svipuðum toga er hermenn varnarliðsins keyrðu um Keflavík vopnaðir vélbyssum. H ervörður var allan sl.sunnudag við kirkju-garð Keflvíkinga við Garðveg. Ómerktum pallbíll frá Varnarliðinu var lagt á vegi sem liggur inn á þann hluta kirkjugarðsins sem er í upp- byggingu. Íbúa í Reykjanesbæ blöskraði þetta og setti sig í samband við lögregluna í Keflavík. Laganna verðir komu á vettvang í sömu mund og hermönnum fjölgaði á staðnum. Bifreið frá herlög- reglunni á Keflavíkurflugvelli kom í kjölfar Keflavíkurlög- reglunnar og út úr honum stigu tveir vopnaðir hermenn. Þeir gerðu m.a. athugasemdir við það að ljósmyndari Víkur- frétta væri að mynda á svæð- inu, en þá stóð ljósmyndarinn í vegarkanti Garðvegarins. Hermennirnir gáfu þær skýringar á veru sinni í kirkjugarðinum að þeir væru að vakta bensínflutn- ingaskip sem væri verið að af- ferma í Helguvíkurhöfn. Við at- hugun Víkurfrétta kom í ljós að hermenn vopnaðir stórum skot- vopnum voru á víð og dreif eftir bjargbrúninni í Helguvík. Einn þeirra gaf sig á tal við ljósmynd- ara Víkurfrétta, sem framvísaði skírteini blaðamanna og fékk því að halda vinnu sinni áfram óá- reittur. Aðilinn sem kallaði til lögregl- una var síður en svo sáttur við þetta framferði Varnarliðsins og sagði Varnarliðsmenn hafa vísað kunningja hans á brott, þar sem bifreið hans var lagt í vegarkant á mótum Hafnavegar og afleggjara að aðalhliði Keflavíkurflugvallar á dögunum.  á væri það móðgun að staðsetja hervörð við kirkju- garð bæjarins á sunnudegi, þegar margir eiga erindi í kirkjugarðinn til að huga að leiðum ástvina sinna. Kona játar íkveikju í húsi í Njarðvík ■ Kona hefur játað að hafa kveikt í íbúð í Njarðvík aðfar- arnótt fimmtudags en konan var ásamt húseiganda í íbúðinni þar sem áfengi var haft um hönd. Til- kynnt var um eld í íbúðinni um fjögurleytið aðfaranótt fimmtu- dags og logaði eldur á þremur stöðum í íbúðunni. Húsráðandi og konan sem var gestkomandi voru handtekin grunuð um íkveikju. Við yfirheyrslur játaði konan að hafa kveikt í íbúðinni. Í búar á efri hæð hússins voru sofandi þegar eldurinn kom upp. Að sögn Karls Hermannssonar yfirlögregluþjóns í Keflavík er málið litið alvarlegum augum. Ekið á sex ára dreng í Sandgerði ■ Ekið var á sex ára gamlan dreng við Sandgerðisskóla í síðustu viku. Hljóp drengurinn í veg fyrir bifreið við skólann. Drengurinn var fluttur með sjúkrabíl á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja en hann fékk að fara heim að skoðun lokinni. Hafði hann fengið högg á mjaðmirnar og var allur blár og marinn að því er fram kemur í dagbók lögregl- unnar í Keflavík. ■ Atvinnu- og hafnarráð Reykjanesbæjar hefur fengið for- ræði yfir Njarðvíkurbraut 51-55, en Reykjanesbær keypti eignina á uppboði fyrir 24 milljónir króna. Eins og greint var frá í Víkurfréttum sem komu út í gær hyggst Haukur Guðmundsson hefja karfavinnslu í húsunum.  orsteinn Erlingsson formaður Atvinnu- og hafnarráðs Reykja- nesbæjar sagði í samtali við Vík- urfréttir að krafist yrði banka- trygginga af þeim sem hyggðust hefja rekstur í húsinu. „ Í búar Reykjanesbæjar geta verið alveg rólegir því húsin verða ekki leigð einhverjum ævintýramönnum“ . VOPNAÐIR HERMENN VIÐ KIRKJUGARÐ stuttar f r é t t i r Brynjólfshús: Bankatrygginga krafist vegna leigu Óheppilegt að hermenn sýni vopn sín utan varnarsvæðis Sýslumaðurinn í Keflavík: FRÉTTASÍMI VÍKURFRÉTTA 898 2222 Í I Í 20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 15:48 Page 2

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.