Víkurfréttir - 13.05.2004, Page 10
10 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU I www.vf.is I LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!
S jö heimagerðar hasspíp-ur hafa fundist á hafnar-svæ ði Njarðvíkur á síð-
ustu tveimur mánuðum. Í búi í
Njarðvík sem b r nálæ gt hafn-
arsvæ ðinu hefur fundið hass-
pípurnar í gö nguferðum um
svæ ðið. Pípurnar eru útbúnar
úr hálfs lítra plastflö skum ar
sem álpappír hefur verið kom-
ið fyrir á stút hverrar flö sku.
Í búinn sem vill ekki láta nafns
síns getið segir að hann hafi
fundið hasspípurnar á gönguferð-
um um hafnarsvæðið. „ É g geng
oft um svæðið og hef fundið þær
víða. að eru margir staðir hér á
hafnarsvæðinu þar sem unglingar
geta verið í skjóli og reykt,“ segir
íbúinn og hann segir töluvert um
að unglingahópar séu á svæðinu.
„ É g get náttúrulega ekkert fullyrt
hvað krakkarnir eru að gera
þarna en maður getur svosem
lagt saman tvo og tvo.“
Í búinn segir að hann hafi einnig
orðið var við bíla sem lagt er við
gömlu olíutankana við Njarðvík-
urhöfn. „ eir eru kannski að
stoppa þarna í 20 mínútur og
maður veit náttúrulega ekki hvort
þeir eru bara á rúntinum.“
Víkurfréttir fóru um hafnarsvæð-
ið og í þeirri athugun komu í ljós
nokkrir staðir sem unglingar
virðast koma saman á. Inn í hin-
um svokölluðu Olsen húsum
fannst Smirnoff flaska ofan af
Keflavíkurflugvelli. Hægt er að
fara inn um glugga á húsinu en
þar inni er allt brotið og bramlað
og verður að teljast slysagildra
fyrir þá sem þangað fara inn.
Bakvið sjöstjörnuhúsin þar sem
Fiskmarkaður Suðurnesja er til
húsa hefur íbúinn fundið hasstól
en þar er gríðarlegt rusl og gam-
all trébátur sem unglingar virðast
hafa verið í. Einnig fannst
heimagerð hasspípa bakvið
vinnuskúr Skipaafgreiðslu Suð-
urnesja. Ein pípa fannst við
gömlu olíutankana við Njarðvík-
urhöfn og ein bakvið hin svoköll-
uðu FR hús. Í búinn sem fann
hasspípurnar hefur ekki haft
samband við lögregluna í Kefla-
vík vegna hasstólanna sem hann
hefur fundið.
Rúnar Á rnason rannsóknarlög-
reglumaður í fíkniefnadeild lög-
reglunnar í Keflavík segir það
nokkuð algengt að lögreglumenn
finni heimagerðar hasspípur á
eftirlitsferðum. Einnig sé nokkuð
um að íbúar á Suðurnesjum finni
slíkar pípur og tilkynni til lög-
reglunnar í Keflavík. Að sögn
Rúnars hafa hasspípur fundist á
hafnarsvæðinu í Njarðvík, á
Stapanum og í Grófinni, auk
þess sem hasspípur hafi fundist á
hafnarsvæðinu í Grindavík. Rún-
ar segir að lögregluna gruni að
þarna séu unglingar á ferð.
Einnig viti lögreglan til þess að
bifreiðum sé lagt á þessum svæð-
um og þær notaðar til hassreyk-
inga. „ Við höfum fengið vit-
neskju um slíkt en ekki staðið
neina að verki. að er fylgst með
þessum svæðum og fara lög-
reglubílar reglulega í eftirlitsferð-
ir um þau,“ sagði Rúnar í samtali
við Víkurfréttir.
➤ Tól til fíkniefnaneyslu finnast á hafnarsvæðinu í Njarðvík:
Hass reykt við höfnina
Tónleikar í Kálfatjarnarkirkju
■ Á uppstigningardag, fimmtudaginn 20. maí kl.17.00, verða haldnir
tónleikar í Kálfatjarnarkirkju á Vatnsleysuströnd.
Á tónleikunum kemur fram kvartettinn „ Dísurnar“ , skipaður Eydísi
Franzdóttur, óbóleikara, Bryndísi Pálsdóttur, fiðluleikara, Herdísi Ö nnu
Jónsdóttur, víóluleikara og Bryndísi Björgvinsdóttur, sellóleikara. „ Dís-
urnar“ hafa allar verið virkar í íslensku tónlistarlífi um árabil. Sem
kvartett hafa þær starfað saman frá árinu 1997 og m.a komið fram á Há-
skólatónleikum, Poulenc-hátíð í Iðnó og 15:15 tónleikum í Borgarleik-
húsinu. Tónleikarnir eru liður í tónleikaferð kvartettsins um landið.
Rúnar Árnason rann-
sóknarlögreglumaður í
fíkniefnadeild lögregl-
unnar í Keflavík segir
það nokkuð algengt að
lögreglumenn finni
heimagerðar hasspípur
á eftirlitsferðum.
20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 14:20 Page 10