Víkurfréttir


Víkurfréttir - 13.05.2004, Side 17

Víkurfréttir - 13.05.2004, Side 17
VÍKURFRÉTTIR I 20. TÖLUBLAÐ 2004 I FIMMTUDAGURINN 13. MAÍ 2004 I 17 safnsins. Einnig kynnti bæjar- stjóri hugmyndir um að útbúin verði sérstök sýningarsvæði fyrir ferðamenn tengd virkjun Hita- veitu Suðurnesja á Reykjanesi. Á síðasta ári voru um 350 þús- und ferðamenn sem fóru fram hjá Reykjanesbæ frá Flugstöð Leifs Eiríkssonar til Reykjavíkur. Aðeins um 1% af þessum ferða- mönnum komu til Reykjanes- bæjar. „ É g vil stefna að því að fram- kvæmdir við Víkingaheim hefjist á þessu ári. Allur undirbúningur miðar að því og við finnum fyrir stuðningi við verkefnið.  etta er ein mikilvægustu stoðum í ferða- þjónustu í Reykjanesbæ,“ sagði Á rni á fundinum. Í tengslum við Víkingaheiminn er gert ráð fyrir að sýning Smith- sonian safnsins, Vikings - the North Atlantic Saga verði sett upp. Einnig er gert ráð fyrir að komið verði upp söguslóðum í tengslum við Víkinga innan þorpsins. Víkingasýning Smithsonian sem sett var upp í Washington á árinu 1999 þóttist takast afar vel. Sýn- ingin var sett upp í fimm borgum innan Bandaríkjanna og var að- sókn að þeim mun meiri en væntingar stóðu til. Hluti af þeir- ri sýningu verður settur upp inn- an Víkingaþorpsins. Fjármögnun vegna undirbúningsfé- lags Íþróttaakademíu á lokastigi Á fundinum kynnti bæjarstjóri fjölmörg verkefni sem unnið er að í Reykjanesbæ og er þar stærst svokölluð Í þróttaakademía.  ar er gert ráð fyrir að svæðið við Reykjaneshöllina verði eitt al- hliða íþróttasvæði með íþrótta- mannvirkjum og að þar verði að- staða til náms á íþróttabrautum. Bæjarstjóri sagði að undirbún- ingur Í þróttaakademíunnar gengi vel og að fjármögnun til stofnun- ar undirbúningsfélags væri á lokastigi. Í hugmyndunum er gert ráð fyrir tengingu við háskóla- stigið á sviði íþróttanáms. „ Á svæðinu er gert ráð fyrir að fram fari fjölbreytt námskeiðahald á sviði íþrótta fyrir íþróttaþjálfara, íþróttamenn, íþróttafélög og börn,“ sagði Á rni. Sýndar voru skipulagsmyndir af svæðinu þar sem gert er ráð fyrir að öll íþróttamannvirkin verði innan 800 metra radíuss. Framkvæmt fyrir 6,2 milljarða í Reykjanesbæ á árinu 2004 Framkvæmt verður fyrir 6,2 milljarða króna á árinu 2004 í Reykjanesbæ. Inni í þeirri upp- hæð eru verkefni á vegum Reykjanesbæjar, Reykjaneshafn- ar, Varnarliðsins, Flugstöðvarinn- ar, Hitaveitu Suðurnesja og fleiri aðila. Ö nnur möguleg verkefni sem ekki eru inn í þessari tölu eru bygging Nausts Í slendings, stálpípuverksmiðja í Helguvík, Stjórnsýsluhús á Keflavíkurflug- velli og byggingaframkvæmdir í Tjarnarhverfi. Kom fram hjá bæjarstjóra að í tengslum við þessi verkefni skap- ist um 130 störf í byggingariðn- aði og 50 störf í þjónustu á þessu ári. Á árinu 2005 er gert ráð fyrir sama fjölda í byggingarstörfum en 80 í þjónustustörfum. Ellefu þættir fyrirmyndarsveitarfélags Atvinnumál, menntun og um- hverfismál eru forgangsverkefni sem unnið er að innan Reykja- nesbæjar og eru verkefnin hluti af ellefu atriðum sem bæjarstjóri segir að séu skilyrði þess að Reykjanesbær verði fyrirmyndar- sveitarfélag. Ö nnur atriði sem teljast til forgangsverkefna eru að í Reykjanesbæ sé gott öryggis- net, landrými fyrir ný heimili og atvinnustarfsemi, lág glæpatíðni, lipur stjórnsýsla, góð heilbrigðis- þjónusta, sanngjarnt verð fyrir þjónustu, fullnægja áhugasviðum íbúa og tryggja að auðvelt sé að sækja þjónustu. Gatnamót tvöfaldrar Reykjanesbraut- ar við Innri-Njarðvík. Á myndina vant- ar húsnæði Kaffitárs. 20. tbl. 2004 umbrot 12.5.2004 16:39 Page 17

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.