Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.08.2017, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 24.08.2017, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagur 24. ágúst 2017 • 33. tölublað • 38. árgangur Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Fasteignafélögin Heimavellir og Ásbrú íbúðir færðu í gær Reykja- nesbæ húsnæði að gjöf undir nýjan leikskóla að Ásbrú. Húsnæðið hentar vel til leikskólastarfs en þar var áður samkomuhús á gamla varnarliðs- svæðinu. Gríðarleg uppbygging hefur verið á Ásbrú síðustu ár og hefur íbúðum á svæðinu fjölgað verulega. Íbúa- fjöldi telur nú um 2.700 manns og er stór hluti þeirra fjölskyldufólk. Einn grunnskóli er á svæðinu, Háa- leitisskóli, en um 250 nemendur eru skráðir í skólann nú í upphafi vetrar. Uppbygging og vöxtur á Suður- nesjum hefur verið gríðarlegur og hefur íbúum á svæðinu fjölgað hlut- fallsleg mest á landinu öllu síðustu ár. Ljóst er að ráðast þarf í töluverða uppbyggingu á innviðum á svæðinu til að mæta fjölgun íbúa. Til að styðja við þessa uppbyggingu og flýta fyrir þróun hennar munu Heimavellir og Ásbrú íbúðir færa Reykjanesbæ að gjöf fasteignina Skógarbraut 932, undir rekstur leikskóla. Húsnæðið er vel staðsett, í miðju íbúahverfi þar sem stutt er í alla þjónustu. „Mikil eftirspurn er eftir húsnæði á þessu svæði og er það mikið hags- munamál fyrir alla aðila að byggja upp innviði og tryggja þannig góða þjón- ustu fyrir íbúa svæðisins,“ segir Guð- brandur Sigurðsson, framkvæmda- stjóri Heimavalla. Ingi Júlíusson, framkvæmdastjóri Ásbrúar íbúða tekur í sama streng. „Íbúum hefur fjölgað mikið á svæðinu síðustu ár og mun fjölga enn frekar á næstu árum. Áhersla okkar er að byggja upp fjölskylduvænt hverfi og með því að gefa húsnæði undir leik- skóla erum við að leggja okkar lóð á vogaskálarnar við að byggja upp gott og heilbrigt samfélag.“ Heimavellir og Ásbrú íbúðir eiga og reka hátt í 1.000 íbúðir til samans á Ásbrú, í svokölluðum 900, 1100 og 1200 hverfum á Ásbrú. „Nýi leikskólinn tekur til starfa þegar núverandi leikskólapláss að Ásbrú verða fullsetin,“ segir Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja- nesbæ, en tveir leikskólar eru fyrir á svæðinu, Háaleiti og Völlur. „Við munum nýta veturinn til að innrétta húsnæðið að þörfum barnanna svo hann geti hafið starfsemi haustið 2018. Ef þörf krefur munum við hins vegar reyna að hraða framkvæmdum eins og kostur er.“ ■ Veski með nafnskírteini og öku- skírteini fannst við uppgröft á Klapparstíg í Njarðvík. Guðmundur Steindórsson bifreiðastjóri tapaði veskinu árið 1983. Þá var hann 16 ára og fór allra sinna ferða á skelli- nöðru. Það má segja að veskið hafi verið gleymt og grafið! Í veskinu voru einmitt ökuréttindi sem staðfestu að Guðmundur mætti aka léttu bifhjóli og einnig nafnskír- teini, sem voru algeng á þessum tíma. Í samtali við Víkurfréttir sagðist Guð- mundur hafa haldið að hann hafi týnt veskinu þegar hann hafi brunað eftir Borgarveginum í Njarðvík á skelli- nöðrunni sinni. Hann hafi leitað að veskinu en ekki fundið. Veskið, sem var merkt Verzlunar- bankanum, kom hins vegar í leitirnar á dögunum við Klapparstíg 10 í Njarð- vík. Þar bjó Guðmundur í 10 ár. Hann hallast nú að því að veskið hafi dottið í blómabeð og svo grafist í mold. Þegar veskið fannst var það orðið mjög morkið og illa farið. Auk skil- ríkjanna tveggja voru tvö önnur plast- kort í veskinu en voru orðin illa farin. Það kom Guðmundi mjög á óvart hversu heilleg skilríkin voru og mynd- irnar í þeim eins og nýjar, þrátt fyrir á fjórða áratug neðanjarðar. Ökuskír- teinið og nafnskírteinið eru brædd í plast og þessi merkilegi fundur því ágætt dæmi um það hversu plast er lengi að brotna niður í náttúrunni. Skilríkin tvö eru enn í fullu gildi. Skellinöðruréttindin eru enn til staðar þó svo langt sé síðan Guðmundur hafi síðast brunað um Njarðvíkur á slíkum fáki. Guðmundur er í dag bifreiða- stjóri og ekur m.a. strætisvagni á milli Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins. Guðmundur er með bifreiðastjóra- blóð í æðum en faðir hans heitinn, Steindór Sigurðsson, var einnig bif- reiðastjóri og rak eigið fyrirtæki með rútur og síðar hjá Sérleyfisbílum Keflavíkur, SBK. Gáfu Reykjanesbæ húsnæði undir leikskóla ●● Gjöfin●frá●Ásbrú●íbúðum●og●Heimavöllum●er●liður●í●því●að●byggja●upp●innviði●á●svæðinu●en●um●2.700●manns●búa●nú●á●Ásbrú. Fulltrúar Reykjanesbæjar, Heimavalla, Ásbrúar íbúða og Kadeco við afhendingu byggingarinnar (í baksýn), sem breytt verður í leikskóla sem opnar næsta haust. ●● Guðmundur●Steindórsson●týndi●veski●og●skilríkjum●sem●unglingur●í●Njarðvík●árið●1983 Guðmundur Steindórsson með skilríkin sem komu úr jörð í Njarðvík eftir að hafa tapast með veski í blómabeð við Klapparstíg 10 árið 1983. Myndirnar á skilríkjunum voru teknar þegar Guðmundur var 15 ára en hann er fimmtugur í dag. Morkið veskið er á innfelldu myndinni. Skilríkin eru í mun betra ástandi en veskið. VF-myndir: Hilmar Bragi Bárðarson Myndirnar á skilríkjunum eins og nýjar eftir 34 ár í jörð ■ Stjórn Fornbílaklúbbs Íslands er afar ósátt við þá ákvörðun Lögreglustjórans á Suðurnesjum að banna akstur fornbíla niður Hafnargötu á Ljósanótt og hvetur eigendur allra slíkra öku- tækja til að sniðganga hátíðina. Ólafur Helgi Kjartansson, lög- reglustjóri segir öryggi hins fót- gangandi borgara skipta mestu máli og því hafi þessi ákvörðun verið tekin. Lögreglustjóri sagði að eina umferðin sem yrði leyfð niður Hafnargötu yrði akstur bifhjóla og hann viðurkennir í samtali við VF að það sé vissulega umdeilan- legt. „Við ræddum þetta fram og til baka í lögreglunni með ör- yggisnefnd hátíðarinnar og þetta var niðurstaðan. Það hefði verið stórt skref að banna hjólin líka,“ sagði Ólafur Helgi og ítrekaði að ákvörðunin væri fyrst og fremst byggð á öryggissjónarmiðum. „Ég vil benda á það að þetta er eina gatan sem við viljum ekki fá þessa umferð á. Aðrar götur geta staðið til boða fyrir þennan akstur.“ „Stærsti hluti af stemmningunni fyrir eigendur og ökumenn forn- bíla var að fá að keyra þarna í gegn. Það eru bara örfáir aðilar sem nenna að rúlla þarna suður- eftir til að leggja bílunum sínum á eitthverju túni, en mikill meiri- hluti bílanna sem þarna komu voru ekki af Suðurnesjum, og því var bara best að aflýsa viðburð- inum í heild sinni í stað þess að þetta yrðu bara örfáir bílar á eitt- hverri hallærislegri smásýningu miðað við undanfarin ár,“ sagði Rúnar Sigurjónsson, formaður Fornbílaklúbbsins á Facebook. Fornbílaklúbb- urinn ósáttur við akstursbann Lögeglustjóri segir aðrar götur standa til boða á Ljósanótt

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.