Víkurfréttir - 24.08.2017, Síða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 24. ágúst 2017 • 33. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Fasteignafélögin Heimavellir og
Ásbrú íbúðir færðu í gær Reykja-
nesbæ húsnæði að gjöf undir nýjan
leikskóla að Ásbrú. Húsnæðið hentar
vel til leikskólastarfs en þar var áður
samkomuhús á gamla varnarliðs-
svæðinu.
Gríðarleg uppbygging hefur verið á
Ásbrú síðustu ár og hefur íbúðum
á svæðinu fjölgað verulega. Íbúa-
fjöldi telur nú um 2.700 manns og
er stór hluti þeirra fjölskyldufólk.
Einn grunnskóli er á svæðinu, Háa-
leitisskóli, en um 250 nemendur eru
skráðir í skólann nú í upphafi vetrar.
Uppbygging og vöxtur á Suður-
nesjum hefur verið gríðarlegur og
hefur íbúum á svæðinu fjölgað hlut-
fallsleg mest á landinu öllu síðustu
ár. Ljóst er að ráðast þarf í töluverða
uppbyggingu á innviðum á svæðinu
til að mæta fjölgun íbúa. Til að styðja
við þessa uppbyggingu og flýta fyrir
þróun hennar munu Heimavellir og
Ásbrú íbúðir færa Reykjanesbæ að
gjöf fasteignina Skógarbraut 932,
undir rekstur leikskóla. Húsnæðið er
vel staðsett, í miðju íbúahverfi þar sem
stutt er í alla þjónustu.
„Mikil eftirspurn er eftir húsnæði á
þessu svæði og er það mikið hags-
munamál fyrir alla aðila að byggja upp
innviði og tryggja þannig góða þjón-
ustu fyrir íbúa svæðisins,“ segir Guð-
brandur Sigurðsson, framkvæmda-
stjóri Heimavalla.
Ingi Júlíusson, framkvæmdastjóri
Ásbrúar íbúða tekur í sama streng.
„Íbúum hefur fjölgað mikið á svæðinu
síðustu ár og mun fjölga enn frekar
á næstu árum. Áhersla okkar er að
byggja upp fjölskylduvænt hverfi og
með því að gefa húsnæði undir leik-
skóla erum við að leggja okkar lóð á
vogaskálarnar við að byggja upp gott
og heilbrigt samfélag.“
Heimavellir og Ásbrú íbúðir eiga og
reka hátt í 1.000 íbúðir til samans á
Ásbrú, í svokölluðum 900, 1100 og
1200 hverfum á Ásbrú.
„Nýi leikskólinn tekur til starfa þegar
núverandi leikskólapláss að Ásbrú
verða fullsetin,“ segir Kjartan Már
Kjartansson, bæjarstjóri í Reykja-
nesbæ, en tveir leikskólar eru fyrir
á svæðinu, Háaleiti og Völlur. „Við
munum nýta veturinn til að innrétta
húsnæðið að þörfum barnanna svo
hann geti hafið starfsemi haustið
2018. Ef þörf krefur munum við hins
vegar reyna að hraða framkvæmdum
eins og kostur er.“
■ Veski með nafnskírteini og öku-
skírteini fannst við uppgröft á
Klapparstíg í Njarðvík. Guðmundur
Steindórsson bifreiðastjóri tapaði
veskinu árið 1983. Þá var hann 16
ára og fór allra sinna ferða á skelli-
nöðru. Það má segja að veskið hafi
verið gleymt og grafið!
Í veskinu voru einmitt ökuréttindi
sem staðfestu að Guðmundur mætti
aka léttu bifhjóli og einnig nafnskír-
teini, sem voru algeng á þessum tíma.
Í samtali við Víkurfréttir sagðist Guð-
mundur hafa haldið að hann hafi týnt
veskinu þegar hann hafi brunað eftir
Borgarveginum í Njarðvík á skelli-
nöðrunni sinni. Hann hafi leitað að
veskinu en ekki fundið.
Veskið, sem var merkt Verzlunar-
bankanum, kom hins vegar í leitirnar
á dögunum við Klapparstíg 10 í Njarð-
vík. Þar bjó Guðmundur í 10 ár. Hann
hallast nú að því að veskið hafi dottið í
blómabeð og svo grafist í mold.
Þegar veskið fannst var það orðið
mjög morkið og illa farið. Auk skil-
ríkjanna tveggja voru tvö önnur plast-
kort í veskinu en voru orðin illa farin.
Það kom Guðmundi mjög á óvart
hversu heilleg skilríkin voru og mynd-
irnar í þeim eins og nýjar, þrátt fyrir
á fjórða áratug neðanjarðar. Ökuskír-
teinið og nafnskírteinið eru brædd
í plast og þessi merkilegi fundur því
ágætt dæmi um það hversu plast er
lengi að brotna niður í náttúrunni.
Skilríkin tvö eru enn í fullu gildi.
Skellinöðruréttindin eru enn til staðar
þó svo langt sé síðan Guðmundur hafi
síðast brunað um Njarðvíkur á slíkum
fáki. Guðmundur er í dag bifreiða-
stjóri og ekur m.a. strætisvagni á milli
Suðurnesja og höfuðborgarsvæðisins.
Guðmundur er með bifreiðastjóra-
blóð í æðum en faðir hans heitinn,
Steindór Sigurðsson, var einnig bif-
reiðastjóri og rak eigið fyrirtæki með
rútur og síðar hjá Sérleyfisbílum
Keflavíkur, SBK.
Gáfu Reykjanesbæ húsnæði undir leikskóla
●● Gjöfin●frá●Ásbrú●íbúðum●og●Heimavöllum●er●liður●í●því●að●byggja●upp●innviði●á●svæðinu●en●um●2.700●manns●búa●nú●á●Ásbrú.
Fulltrúar Reykjanesbæjar, Heimavalla, Ásbrúar íbúða og Kadeco við afhendingu
byggingarinnar (í baksýn), sem breytt verður í leikskóla sem opnar næsta haust.
●● Guðmundur●Steindórsson●týndi●veski●og●skilríkjum●sem●unglingur●í●Njarðvík●árið●1983
Guðmundur Steindórsson með skilríkin sem komu úr jörð í Njarðvík eftir að hafa
tapast með veski í blómabeð við Klapparstíg 10 árið 1983. Myndirnar á skilríkjunum
voru teknar þegar Guðmundur var 15 ára en hann er fimmtugur í dag. Morkið veskið
er á innfelldu myndinni. Skilríkin eru í mun betra ástandi en veskið. VF-myndir:
Hilmar Bragi Bárðarson
Myndirnar á
skilríkjunum
eins og nýjar
eftir 34 ár í jörð
■ Stjórn Fornbílaklúbbs Íslands
er afar ósátt við þá ákvörðun
Lögreglustjórans á Suðurnesjum
að banna akstur fornbíla niður
Hafnargötu á Ljósanótt og
hvetur eigendur allra slíkra öku-
tækja til að sniðganga hátíðina.
Ólafur Helgi Kjartansson, lög-
reglustjóri segir öryggi hins fót-
gangandi borgara skipta mestu
máli og því hafi þessi ákvörðun
verið tekin.
Lögreglustjóri sagði að eina
umferðin sem yrði leyfð niður
Hafnargötu yrði akstur bifhjóla
og hann viðurkennir í samtali við
VF að það sé vissulega umdeilan-
legt. „Við ræddum þetta fram og
til baka í lögreglunni með ör-
yggisnefnd hátíðarinnar og þetta
var niðurstaðan. Það hefði verið
stórt skref að banna hjólin líka,“
sagði Ólafur Helgi og ítrekaði að
ákvörðunin væri fyrst og fremst
byggð á öryggissjónarmiðum. „Ég
vil benda á það að þetta er eina
gatan sem við viljum ekki fá þessa
umferð á. Aðrar götur geta staðið
til boða fyrir þennan akstur.“
„Stærsti hluti af stemmningunni
fyrir eigendur og ökumenn forn-
bíla var að fá að keyra þarna í
gegn. Það eru bara örfáir aðilar
sem nenna að rúlla þarna suður-
eftir til að leggja bílunum sínum
á eitthverju túni, en mikill meiri-
hluti bílanna sem þarna komu
voru ekki af Suðurnesjum, og því
var bara best að aflýsa viðburð-
inum í heild sinni í stað þess að
þetta yrðu bara örfáir bílar á eitt-
hverri hallærislegri smásýningu
miðað við undanfarin ár,“ sagði
Rúnar Sigurjónsson, formaður
Fornbílaklúbbsins á Facebook.
Fornbílaklúbb-
urinn ósáttur við
akstursbann
Lögeglustjóri segir aðrar götur
standa til boða á Ljósanótt