Víkurfréttir - 24.08.2017, Blaðsíða 2
2 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222
Hringbraut 99 - 577 1150
FAGLEG, TRAUST OG
PERSÓNULEG ÞJÓNUSTA
VIÐ BJÓÐUM MEDISMART RUBY BLÓÐSYKUR-
MÆLA, STRIMLA, BLÓÐHNÍFA OG NÁLAR FRÍTT
FYRIR ÞÁ SEM ERU MEÐ SKÍRTEINI FRÁ TR.
Opnunartími: Virka daga frá kl. 9:00 - 19:00 og laugardaga frá kl. 14:00 - 18:00.
MJÖG EINFALDUR Í NOTKUN,
STÓR SKJÁR, LÉTTUR OG HANDHÆGUR
- „No coding“ þarf ekki að núllstilla
- Þarf mjög lítið magn til mælinga, aðeins 0,6µl
- Mælir blóðsykur á bilinu 1.1 - 35 mmol/L
- Mæling tekur aðeins 5 sek.
- Geymir 480 mælingar í minni
- Hægt að tengja við tölvu
Apótek Suðurnesja leggur metnað í að bjóða viðskiptavinum sínum lyf á lágmarks-
verði, þar sem fagmennska, heiðarleiki og nærgætni við viðskiptavini er í fyrirrúmi.
Sjálfboðaliðar á öllum
aldri óskast
Viltu koma í hóp skemmtilegra sjálfboðaliða hjá
Fjölskylduhjálp Íslands í Reykjanesbæ og gefa af
þér nokkra tíma í viku?
Endilega gefðu þig fram á staðnum eða í síma
897-8012- Anna.
Baldursgötu 14, Reykjanesbæ
Tónlist, menning og fjör á Ljósanótt 2017
Ljósanótt verður ekki haldin án
styrktaraðila né aðkomu bæjarbúa
að dagskrá. Skrifað var undir samn-
inga við þrjá stærstu styrktaraðil-
ana í vikunni, Landsbankann,
Isavia og Nettó. Valgerður Guð-
mundsdóttir framkvæmdarstjóri
sagði við undirskrift fulltrúa
stærstu viðburða verða stærri og
stærri með ári hverju. „Það er
fagnaðarefni fyrir mig sem er að
upplifa Ljósanótt í 18. sinn.“
Ljósanótt verður haldin 30. ágúst til
3. september.
Kjartan Már Kjartansson bæjarstjóri
fór yfir helstu styrktaraðila og þær
breytingar sem orðið hafa í hátíðar-
dagskránni að undanförnu. Allt er
þó með hefðbundnu sniði. „Í fyrra
slepptum við blöðrum að ósk bæjar-
búa sem láta sér annt um umhverfið
og vegna aukinna öryggiskrafna
munu bílar fornbílaklúbbsins ekki
aka niður Hafnargötu í ár. Þá styrkir
HS Orka ekki flugeldasýninguna í
ár þar sem hún samræmist ekki ný-
samþykktri umhverfisstefnu fyrir-
tækisins.“
Kjartan Már sagði flugeldasýningu
hins vegar ekki sleppt, enda væri ósk
bæjarbúa að hafa hana áfram. Í ár
verður sýningin í boði Toyota um-
boðsins í Reykjanesbæ.
Auk Toyota eru stærstu styrktarað-
ilar Landsbankinn, sem býður
upp á stórtónleika á stóra sviði að
kvöldi laugardags, Isavia býður upp
á bryggjuball á föstudagskvöldi
og styrkir Heimatónleika í gamla
bænum, Securitas tryggir öryggi
Skessunnar í hellinum og Lagardére
styrkir hátíðina á veglegan hátt. Þá
styrkir Nettó barnadagskrá og ár-
gangagöngu, Skólamatur býður upp
á kjötsúpu við bryggjuball eins og
undanfarin ár við miklar vinsældir.
Að venju geta allir fundið eitthvað
við sitt hæfi. Fjölskyldan getur unað
saman við leik og fjölbreytta barna-,
unglinga- og fjölskyldudagskrá, sótt
sýningar og tónleika af ýmsum toga
og tekið þátt í íþróttaviðburðum.
Súpuveislur Nettó fyrir árganga-
göngu og Skólamatar á bryggjuballi
sjá svo um að allir séu saddir.
Alla dagskrárliði má nálgast á vef
Ljósanætur, ljosanott.is.
■ Sandgerðisdagar ná hámarki á
laugardag en alla þessa viku hefur
staðið yfir fjölbreytt dagskrá víðs-
vegar um Sandgerðisbæ.
Hátíðarhöldin hófust á mánudag
þegar íbúar við Vallargötu og í Vörð-
unni tóku á móti gestum en íbúar
Vallargötu og Vörðu eru gestgjafar
Sandgerðisdaga í ár.
Formleg setning Sandgerðisdaga var
í hádeginu í gær með þátttöku leik-
og grunnskólabarna. Þá fóru fram
hverfaleikarnir og hátíðardagskrá í
safnaðarheimilinu.
Í dag, fimmtudag, verður móttaka
nýrra Sandgerðinga í Vörðunni.
Það er boð bæjarstjórnar fyrir fólk
sem hefur sest að í sveitarfélaginu
frá síðustu Sandgerðisdögum. Þá er
Loddugangan á fimmtudagskvöld.
Þar er slagorðið „Lífið en ljúft er veitt
í Loddu“. Loddugangan hefur 18 ára
aldurstakmark, enda veitingar ekki
fyrir börn en gengið verður af stað frá
Vörðunni.
Á föstudag ber hæst keppni milli
Norðurbæjar og Suðurbæjar í knatt-
spyrnu og síðan saltfiskveisla fyrir
keppendur um kvöldið. Einnig verður
sagna- og söngvakvöld í Efra Sand-
gerði, listsýningar, tónlist og svo stór-
dansleikur í Samkomuhúsinu.
Laugardagurinn er hápunktur Sand-
gerðisdaga. Þá verður dorgveiði við
höfnina, lyftingamót í íþróttahúsinu,
dagskrá í Þekkingarsetri Suðurnesja,
handverk, markaður, vöfflukaffi og
tónlist í Miðhúsum þar sem Sigurður
H. Guðjónsson sýnir einnig húsalík-
ön.
Dagskrá verður á hátíðarsvæði við
Grunnskóla Sandgerðis milli kl.
13-17. Þar verða leiktæki og fjör og
fjölbreytt dagskrá á sviði. Kvölddag-
skrá verður svo á hátíðarsviði þar
sem fram koma m.a. Klassart, Ba-
bies flokkurinn og hljómsveitin Buff.
Kynnir verður Halli Valli. Dagskránni
lýkur svo með flugeldasýningu við
höfnina.
Á sunnudeginum verður svo golf-
mót, listsýningar og Þekkingarsetrið
verður opið.
Líflegir Sandgerðisdagar
Frá móttöku sem íbúar
Vörðunnar og Vallargötu
stóðu fyrir á mánudaginn.
Setning Sandgerðisdaga fór fram
í grunnskólanum í gær.
Fulltrúar styrktaraðila og Reykjanes-
bæjar saman komnir í skrúðgarðinum.
VF-mynd/pket.