Víkurfréttir - 24.08.2017, Qupperneq 6
6 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
Getur lesið
hvar sem er
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Óskar Birgisson, sími 421 0002, oskar@vf.is // Rannveig Jónína
Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðalsteinsson, sími 421 0001, fusi@
vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Lands-
prent // Upplag: 9000 eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga
er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðjudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um einn
sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Valgerður Björk Pálsdóttir er framkvæmdastjóri
Bjartrar framtíðar og Lesandi vikunnar að þessu sinni.
Valgerður les einna helst sögulegar skáldsögur og er
rithöfundurinn Haruki Murakami í miklu uppáhaldi.
Hvaða bók ertu að lesa núna?
A little life eftir Hanya Yanagihara.
Ég les yfirleitt ekki svona langar
bækur en þetta er 700 blaðsíðna bók,
svakalega vel skrifuð „coming of
age“ saga. Hún hefur vakið hjá mér
sterkar tilfinningar. Ég hef grátið
þrisvar sinnum, verið líkamlega illt
yfir hrikalegum frásögnum af ofbeldi
og líka fengið fiðring í magann yfir
óvæntri ástarsögu sem er svo falleg
og erfið á sama tíma. Ég var annars
að klára virkilega áhrifaríka, erfiða
og ótrúlega vel skrifaða bók bók Þór-
dísar Elvu Þorvaldsdóttur; Handan
fyrirgefningarinnar. Mæli með henni
fyrir alla til þess að skilja betur afleið-
ingar kynferðisobeldis, nauðgunar-
menningu og máttinn til að fyrirgefa.
Hver er þín eftirlætis bók?
Norwegian Wood eftir Haruki Mura-
kami. Þetta er svona bók sem maður
ég get alls ekki sagt neinum um
hvað hún er því ég hreinlega man
það ekki. Eina sem ég man er hversu
mikil áhrif hún hafði á mig, aðallega
vegna frásagnarstíls Murakami sem
ég heillaðist af og las flestar bækurnar
hans í kjölfarið.
Hver er eftirlætis höfundurinn
þinn?
Ég á ekki marga höfunda sem ég verð
að lesa allt eftir en þeir sem komast
næst eru Haruki Murakami, Stein-
unn Sigurðardóttir og Khaled Hos-
seini.
Hvernig tegundir bóka lestu helst?
Ég leita mest í sögulegar skáldsögur.
Mér finnst svo gaman að komast inn
í annan heim þegar ég les, en les samt
aldrei ævintýrasögur eða vísinda-
skáldskap. Mér finnst meira spenn-
andi að komast í huganum til Rúss-
lands þegar Sovétríkin voru að liðast í
sundur, til Reykjavíkur á seinni hluta
19. aldar eða Suðurríkja Bandaríkj-
anna um miðja 20.öld.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Eyðimerkurblómið eftir Waris Dirie.
Það er saga sómalskrar baráttukonu
gegn umskurði kvenna. Ég las hana
14 ára gömul, í sjokki, og varð í kjöl-
farið femínisti.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
How I became the mayor of a large
city in Iceland and changed the world
eftir Jón Gnarr.
Hvar finnst þér best að lesa?
Hvar sem er. Við eldhúsborðið með
kaffibolla, í sófanum, uppí bústað, í
flugvél, í lest. Eða jafnvel meðal fólks
á meðan það er spjallað eða horft á
sjónvarpið.
Hvaða bækur standa upp úr sem
þú mælir með fyrir aðra lesendur?
Bækurnar hans Haruki Murakami.
Frásagnarstíll og karaktersköpun
hans er svo hrífandi.
Ef þú værir föst á eyðieyju og
mættir velja eina bók til að hafa
hjá þér, hvaða bók yrði fyrir val-
inu?
Það ætti að vera bók sem maður væri
til í að lesa oftar en einu sinni. Ég get
ekki lesið erfiðar bækur oftar en einu
sinni þannig að ég held að ég myndi
taka bestu „skvísubókina“ sem ég
hef lesið, en þær eru ekki margar
sem sitja eftir hjá mér. Korter eftir
Sólveigu Jónsdóttur gerði það hins
vegar.
Hvað gerðir þú í sumar?
Ég fór til Póllands, uppí sumar-
bústað, vann í pólitíkinni og var með
stelpunum mínum. Sumarbústaður,
gæsun, brúðkaup, Pólland, aðlögun
tvíbura hjá dagmömmu, vinna og
pólitík. Já og auðvitað lestur, sem ég
hef gert heilmikið af í inniveðrinu í
sumar.
Bókasafn Reykjanesbæjar er opið
alla virka daga frá klukkan 09-18 og
á laugardögum frá klukkan 11-17.
Rafbókasafnið er alltaf opið – nánari
upplýsingar á heimasíðu safnsins. Á
heimasíðu safnsins http:sofn.reykja-
nesbaer.is/bokasafn er hægt að mæla
með Lesanda vikunnar.
w
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
Ástríður Hjartardóttir,
Bæjarási, Hveragerði,
lést á Sjúkrahúsinu á Selfossi miðvikudaginn 9. ágúst 2017.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þökkum auðsýnda samúð og hlýhug.
Hjörtur Kristjánsson Erna Guðlaugsdóttir
Sigurjón Guðleifsson Cecilie Lyberth
Ásta Guðleifsdóttir Magnús Jensson
Ragnar Guðleifsson Hjördís Harðardóttir
Sigurður Guðleifsson
Margrét Guðleifsdóttir Hörður Gunnarsson
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginkona mín, móðir mín, tengdamóðir og amma,
Margrét Ágústsdóttir,
Norðurvöllum 22, Keflavík,
verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju,
þriðjudaginn 29. ágúst kl. 13.
Árni Ásmundsson,
Ágúst Páll Árnason Birta Rós Arnórsdóttir,
Dagný Halla Ágústsdóttir
Margrét Arna Ágústsdóttir
Hildir Hrafn Ágústsson
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vináttu og hlýju,
vegna andláts og útfarar, föður okkar, tengdaföður, afa og langafa,
Emils Kristjánssonar,
fyrrverandi slökkviliðsmanns,
Kirkjuvegi 1, Reykjanesbæ,
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja
fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót.
Margrét H. Emilsdóttir Elías Á. Jóhannsson
Hafsteinn Emilsson Helena Hjálmtýsdóttir
Guðríður Nyquist Per – Olov Nyquist
afa og langafabörn.
●● Rúmlega●1.500●manns●hafa●útskrifast●frá●upphafi
●● Anton●Þór●Ólafsson●dúxaði●af●verk-●og●raunvísindadeild●
■ Keilir útskrifaði ellefu nemendur
af Verk- og raunvísindadeild Há-
skólabrúar við hátíðlega athöfn á
Ásbrú síðastliðinn föstudag. Með
útskriftinni hefur Háskólabrú Keilis
útskrifað alls 113 nemendur á þessu
ári og samtals 1.534 nemendur á
þeim tíu árum sem boðið hefur
verið upp á námið.
Hjálmar Árnason, framkvæmdastjóri
Keilis, flutti hátíðarræðu og Berglind
Kristjánsdóttir, forstöðumaður Há-
skólabrúar, flutti ávarp. Í ræðu sinni
lagði Hjálmar áherslu á gagnkvæma
virðingu okkar fyrir ólíkri menningu,
trúarbrögðum og þjóðfélagshópum,
en án hennar væri menntun lítils
virði. Þá flutti Thelma Rán Gylfadóttir
ræðu útskriftarnema. Dúx var Anton
Þór Ólafsson með 9,59 í meðalein-
kunn. Fékk hann bók og lesbretti frá
Keili sem viðurkenningu fyrir góðan
námsárangur.
Boðið er upp á Háskólabrú í samstarfi
við Háskóla Íslands og gildir námið
til inntöku í allar deildir háskólans.
Keilir hefur markað sér sérstöðu í að
veita einstaklingsmiðaða þjónustu
og stuðning við nemendur. Kennslu-
hættir miða við þarfir fullorðinna
nemenda, miklar kröfur eru gerðar
um sjálfstæði í vinnubrögðum og eru
raunhæf verkefni lögð fyrir. Kannanir
í Háskóla Íslands á gengi nýnema hafa
sýnt að nemendur sem koma úr Há-
skólabrú Keilis eru meðal þeirra efstu
yfir þá sem telja sig vel undirbúna
fyrir háskólanám.
Dúxaði með 9,59 í meðaleinkunn hjá Keili