Víkurfréttir - 24.08.2017, Síða 12
12 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Heimili á Akureyri og í Svíþjóð
Gyða er gift Viðari Má fyrrverandi
sviðstjóra umhverfissviðs Reykjanes-
bæjar en hann er kominn á eftirlaun.
Þau eiga tvær dætur, en önnur býr
á Akureyri og hin í Svíþjóð. „Ég á
fjögur barnabörn, tvö á hvorum stað.
Það er ástæðan fyrir því sem er að
gerast næst hjá okkur. Það er að selja
hér og kaupa húsnæði á Akureyri og
fyrir eigum við húsnæði í Svíþjóð. Við
ætlum að skipta okkur á milli þess-
ara tveggja staða. Maðurinn minn er
frá Akureyri og við ætlum að vera
hálft ár á hvorum stað. Við ætlum að
vera yfir sumarmánuðina í Svíþjóð
en vetrarmánuðina á Akureyri. Þetta
er ástæðan fyrir því að við erum að
flytja héðan.“
Kenndi Heimi Hallgrímssyni
landsliðsþjálfara
Gyða er Vestmannaeyingur, fædd
og uppalin í Vestmannaeyjum. Hún
byrjaði að kenna þar eftir gosið í
Eyjum. „Ég kenndi meira að segja
Heimi Hallgrímssyni, landsliðsþjálf-
ara. Þess vegna er hann svona flottur í
dag,“ segir Gyða í léttum tón. Það var
í Vestmannaeyjum sem afskipti Gyðu
af sérkennslu hófust en hún kenndi í
athvarfi sem var þar ásamt almennri
kennslu. Þegar hún var 31 árs flutti
fjölskyldan á Vestfirðina, á Suðureyri
við Súgandafjörð og þar starfaði Gyða
í fjögur ár við kennslu. Þaðan lá leiðin
til Svíþjóðar þar sem hún var í tíu ár.
„Ég er menntaður grunnskólakennari
og áhugi minn hefur ávallt beinst að
sérkennslumálum. Ég hef alveg frá
upphafi komið að sérkennslumálum
þó ég hafi kennt á öllum stigum í
grunnskóla. Þegar ég flyt til Svíþjóðar
fer ég að kenna móðurmálskennslu
og hælisleitendum. Ég kenndi einn-
ig sérkennslu í Svíþjóð og svo tók ég
námskeið í kennslu innflytjenda og
sérkennslufræðum. Ég kenndi svo
líka sérkennslu og almenna kennslu
þar.“
Stofnaði Öspina
Ástæðan fyrir því að Gyða flutti
til Reykjanesbæjar var sú að Viðar
maðurinn hennar fékk vinnu hjá
sveitarfélaginu. Fyrsta heimili þeirra
á Suðurnesjum var í Höfnum þar sem
þau bjuggu í nokkra mánuði áður en
þau flyttu í núverandi húsnæði þeirra
í Innri-Njarðvík. „Þegar við flytjum
hingað byrja ég að sjá um leikfanga-
safnið í Ragnarsseli hjá Þorskahjálp á
Suðurnesjum. Ég tók við formennsku
í leikfangasafninu og er jafnframt
deildarstjóri í dagvistinni. Á Ragnars-
seli var starfrækt dagvist fyrir fötluð
börn. Það er svo árið 1999 sem ég fer
til starfa i Njarðvíkurskóla sem sér-
kennari. Ég er líka í sérkennslunámi
við Kennaraháskóla Íslands á þessum
tíma.“ Gyða stofnaði Öspina árið
2002 ásamt þáverandi sérkennslufull-
trúa. Öspin er sérúrræði fyrir nem-
endur með fötlun og langveik börn.
Hún er hluti af Njarðvíkurskóla og
nemendur eru tengdir almennum
bekkjum. Þau erum með aðstöðu í
Öspinni og eru með sérkennslu þar.
Gyða fékk Hvatningarverðlaun núna
nýlega fyrir að koma að stofnun
Asparinnar. Þörfin fyrir úrræði fyrir
nemendur með fötlun hér í sveitar-
félaginu var mikil. Áður var þessum
nemendum ekið í Öskjuhlíðarskóla
þar sem þau fengu kennslu við hæfi.
„Við ákváðum að það væri kominn
tími til að bjóða upp á úrræði fyrir
þessa nemendur hér í sveitarfélag-
inu. Á þessum tíma var komin um-
ræða um skóla án aðgreiningar og
verið var að leggja niður sérdeildir í
grunnskólum. Nemendur þurfa bæði
að fá að vera með jafnöldrum sínum
og líka að fá nám við sitt hæfi. Við
verðum alltaf að hafa einhver öðru-
vísi úrræði og Öspin er slíkt sérúr-
ræði. Þetta verkefni hefur heppnast
mjög vel og hefur ávallt verið gott fólk
sem starfar þarna. Þau sem tóku við
boltanum af mér hafa unnið frábært
starf og fengið ráðgjöf frá fræðslusviði
Reykjanesbæjar.
Finna lausn sem virkar fyrir hvern
og einn
„Við erum með fleiri deildir fyrir
nemendur með fatlanir og börn með
hegðunarerfiðleika. Eftir að ég tók við
starfi deildarstjóra hér hefur það verið
hluti af starfi mínu að vera tengiliður
við þessar deildir. Ég fylgi málum eftir
og er með ráðgjöf í þessum deildum.
Hegðunardeildir eru Björk og Goð-
heimar og Eikin er einhverfudeild í
Holtaskóla. Nýlega fór af stað verkefni
sem fer fram í 88 húsinu sem ég kom
að. Þetta er úrræði fyrir drengi með
einhver frávik í eldri bekkjum grunn-
skóla eftir að venjulegum skóladegi
lýkur. Í vetur voru sex drengir sem
tóku þátt í þessu en það er biðlisti. Það
vantar fleiri starfsmenn til að getað
boðið fleirum upp á að taka þátt í
þessu. Þessir drengir áttu ekki samleið
með yngri börnunum og því er betra
fyrir þá að vera í félagsmiðstöð eins
og aðrir unglingar. Við höfum alltaf
reynt að finna lausn sem virkar fyrir
hvern og einn. Ég vil sjá þetta verða
stærra og meira og þróa þetta úrræði í
samvinnu við frístundaskólann.“
„Logos greiningar- og skimunar-
tækið“
„Árið 2006 fórum við, fjórir sérkenn-
arar, til Svíþjóðar á ráðstefnu og sáum
greiningartæki sem heitir Logos en
það er lestrargreiningarforrit sem er
víða notað. Ég varð mjög spennt fyrir
því og við fórum í samningaviðræður
við eigendur. Í framhaldinu réðumst
við í það að kaupa þetta greiningar-
tæki. Það þurfti að þýða og staðhæfa
það á íslensku sem var ótrúlega mikil
vinna. Við höfðum sennilega ekki
farið út í þetta ef við hefðum áttað
okkur á því hvað þetta var mikil vinna.
En þetta var mjög lærdómsríkt því við
lærðum mikið um lestur, lesblindu
og allt í kring um það. Við fórum á
námskeið í Noregi og Svíþjóð. Við
erum þrír sérkennarar á Suðurnesjum
og einn í Kópavogi á bak við Logos á
Íslandi. Þetta tæki er notað í yfir 90%
allra grunnskóla landsins. Við erum
búin að halda óteljandi námskeið um
allt land.“
Aukin áhersla á læsi
Það var árið 2011 sem Framtíðarsýn
Reykjanesbæjar, Garðs og Sandgerðis
kom fram. Með henni var verklagi
breytt og sett var aukin áhersla á læsi.
Þessar áherslur voru settar í gang í
öllum grunnskólum Reykjanesbæjar
og í Sandgerði og Garði. „Við fengum
viðurkenningu í opinberri stjórnsýslu
fyrir framtíðarsýnina. Þetta byrjaði
þannig að ég og þáverandi fræðslu-
stjóri, Gylfi Jón Gylfason, áttum fund
með öllum skólastjórum í leik- og
grunnskólum og það var gerð vilja-
yfirlýsing um bættan námsárangur
á svæðinu og eflingu læsis og stærð-
fræði í leikskólum. Þetta var vegna
þess að við vorum að koma afskaplega
illa út úr samræmdum könnunar-
prófum. Við vorum ekki tilbúin að
sætta okkur við að nemendur okkar
væru eitthvað heimskari heldur en
aðrir. Við vildum fá að skoða málin
og voru allir tilbúnir að leggjast á eitt
að skoða það. Partur af þessari fram-
tíðarsýn voru þessar föstu skimanir
á læsisgetu nemenda. Úrvinnslan fór
fram hér á fræðsluskrifstofunni og
síðan skil í skólana til kennara og for-
eldra. Þá fór fram eftirfylgd í formi
aðgerðaráætlunar. Þessi samvinna
allra aðila, frábærra kennara, skóla-
stjórnenda og foreldra skilaði strax
góðum árangri. Sveitarfélagið kom
inn í þetta með miklum stuðningi.
Þetta var aðallega nýtt verklag og
verkferlar en ekki aukið fjármagn.
Það var mikill áhugi hjá fræðslu- og
bæjaryfirvöldum að fylgja þessu eftir,
sérstaklega fræðsluráðs og bæjar-
stjóra. Árni Sigfússon var bæjarstjóri
þegar þetta fór í gang og var hann
mjög áhugasamur um þetta verkefni.
Þetta var ekki bara átak sem hætti,
við erum enn að vinna eftir þessum
verkferlum. Við kynntum þetta um
allt land og margir sem sýndu þessari
vinnu okkar áhuga. Það voru mörg
sveitarfélög sem tóku þetta upp og
gerðu að sínu. Þar má nefna Hafnar-
fjörð, Árborg, Hornafjörð og Vest-
mannaeyjar. Sveitarfélögin fengu
kynningu og aðstoð við að fylgja
þessu eftir. Þetta var mikil vinna en
gaman og frábært að fá að taka þátt
í þessu.“
Tekur síðasta kaflann í lífinu öðruvísi
„Fyrir tveimur árum greindist ég með
krabbamein og var frá vinnu í tíu
mánuði. Þessi veikindi urðu til þess að
við hjónin ákváðum að hugsa málin
upp á nýtt, hætta að vinna og taka síð-
asta kaflann í lífinu öðruvísi. Maður
er þakklátur fyrir það
að koma hraustur til
baka úr svona veik-
indum og langar til að
geta átt nokkur góð ár
með fjölskyldunni. Ég
vil ekki eyða restinni
af ævinni í þetta álag
sem er búið að vera
síðustu ár. Það er búið
að vera mikið álag
í vinnunni en alltaf
gaman. Ég er laus við
við krabbameinið
og er bara í eftirliti
þessa dagana, mæti
í myndatöku tvisvar
á ári í fimm ár. Nú
er maður búin með
starfsaldurinn. Stóru
verkefnin mín frá því
ég kom til Reykjanes-
bæjar eru sérdeild-
irnar í bænum, fram-
tíðarsýnin og Logos.“
Keyptu þér sígvél
og farðu að rækta
garðinn þinn
„Ég er að ljúka störfum
og er að fara út til Sví-
þjóðar. Ég er búin að
pakka niður búslóðinni
og koma henni í geymslu. Ég er að
leita mér að húsnæði á Akureyri.
Hugmyndin er að koma aftur frá Sví-
þjóð í september og koma mér fyrir á
Akureyri. Í Svíþjóð ætla ég að fá mér
gróðurhús og rækta garðinn minn.
Krabbameinslæknirinn minn sagði
við mig: Kauptu þér stígvél og farðu
að rækta garðinn þinn.“ Ég ætla að
hugsa um barnabörnin og efla þau í
læsi. Allavega á meðan þau nenna að
vera með ömmu og afa,“ segir Gyða
að lokum.
Fjórða hvert barn á leikskóla af
erlendum uppruna
„Það eru stór verkefni framundan,
sérstaklega vegna fjölgunar íbúa hér
í sveitarfélaginu. Þetta kallar á mikla
uppbyggingu í skólamálum. Nem-
endum af erlendum uppruna hefur
fjölgað mikið hér í Reykjanesbæ. Nú
er að verða um einn fjórði af leik-
skólabörnum hér af erlendum upp-
runa og hátt í það af grunnskóla-
börnum. Það er mikið verkefni að
styðja við kennara, foreldra og nem-
endur. Síðan er öll þessi fjölgun upp
á Ásbrú. Maður veit ekki hvernig
þróunin verður þar, hvort það verði
mikið af barnafólki eða ekki. Við gæt-
um þurft að byggja þjónustu þar hratt
upp fyrir þessa nemendur, því þar
gæti þeim fjölgað um helming. Svo
er stór uppbygging í kringum nýja
skólann í Innri-Njarðvík. Það verður
að halda vel á spöðunum næstu árin.
Það er mikið af stórum verkefnum
framundan næstu árin og skemmtileg
vinna fyrir þá sem taka við.“
●● Gyða●Margrét●Arnmundsdóttir,●
deildarstjóri●sérfræðiþjónustu,●
lætur●af●störfum●eftir●farsælan●
starfsferil●hjá●Reykjanesbæ
Gott og öflugt skólasamfélag í Reykjanesbæ
Nemendur í Reykjanesbæ hafa náð góðum árangri
á samræmdum könnunarprófum síðustu ár. Ein af
ástæðunum fyrir þessu er breytt verklag sem var tekið
upp í sveitarfélaginu. Gyða Margrét Arnmundsdóttir
er einn af höfundum þessa breytta verklags og fram-
tíðarsýnar Reykjanesbæjar í menntamálum. Hún lýkur
nú störfum hjá Reykjanesbæ eftir langan og farsælan
starfsaldur. Hún hefur komið víða við í fræðslumálum í
Reykjanesbæ og fékk nýlega tilnefningu til Hvatningar-
verðlauna fræðsluráðs fyrir að hafa komið að stofnun
Asparinnar, sem er sérúrræði fyrir nemendur með
fötlun í Njarðvíkurskóla.
Gyða með fyrrverandi samstarfskonum
Kolfinnu, Hafdísi og Vigdísi.
Gyða stofnaði Öspina árið 2002 ásamt þáverandi sérkennslufulltrúa.
Nýlega fór af stað úrræði í 88 hús
-
inu fyrir drengi með einhver frávi
k.