Víkurfréttir - 24.08.2017, Síða 14
14 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Söguskilti afhjúpað á stórafmæli Tjarnasels
■ Nýtt söguskilti við Strandleið var afhjúpað í dag en skiltið var gjöf frá
Reykjanesbæ til Tjarnasels í tilefni 50 ára afmælis leikskólans. Skiltið er
við steintröllin „Stein og Sleggju“ sem horfa út á hafið neðan við Bakkalág.
Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, og leikskólabörn
Tjarnasels afhjúpuðu söguskiltið.
Nokkur lög voru sungin af leikskóla-
börnunum, þar með talinn afmælis-
söngurinn og bæjarstjórinn bauð
öllum upp á ís.
Þetta er eitt af fyrstu skiltunum sem
nú hafa verið sett upp á íslensku og
ensku í bænum en fleiri skilti munu
bætast við á næstu vikum. Um er að
ræða skilti sem innihalda upplýsingar
um sögu bæjarfélagsins, sögu þjóðar
og landafræði. Erlendir ferðamenn,
ekki síður en heimamenn, sýna
skiltunum mikinn áhuga en þau eru
unnin af starfsfólki Reykjanesbæjar,
Plexígleri og Skiltagerðinni.
HOLLT, GOTT
OG HEIMILISLEGT
Opnað verður fyrir áskrift 22.ágúst
á www.skolamatur.is
skolamatur.is I Sími 420 2500
skolamatur@skolamatur.is I Iðavellir 1, 230 Reykjanesbær
Þú finnur okkur á
Vel gekk að ráða í grunnskólana á Suðurnesjum
■ Vel gengur að ráða í grunn-
skólana á Suðurnesjum og enginn
skortur er á starfsfólki. Eitthvað er
um að leiðbeinendur séu í stöðum
grunnskólakennara en flestir
þeirra eru með aðrar háskóla-
gráður eða í kennaranámi.
Í Reykjanesbæ verða 217 kennarar
starfandi við grunnskóla Reykja-
nesbæjar í vetur. Af þeim eru 174
með kennsluréttindi. Leiðbeinendur
verða 43 og af þeim eru 27 með há-
skólagráðu og margir að ljúka námi
til kennsluréttinda.
Í Stóru Vogaskóla er búið að ráða
í allar kennarastöður fyrir þetta
skólaár. Óvenju margir eru ekki með
kennsluréttindi, af 25 kennurum eru
8 sem eru ekki með kennsluréttindi.
Allir nema einn eru með háskóla-
menntun, ýmist eiga þeir lítið eftir
í kennsluréttindin eða eru með aðra
háskólagráðu.
Í Gerðaskóla eru 26 kennarar í 24
stöðugildum og búið er að ráða í
allar stöður. Sótt var um undanþágu
fyrir fjórar kennarastöður. Þar af er
einn sem er með BA í félagsráðgjöf
og búinn að kenna sl. þrjú ár, tveir
eru með Bed gráðu í grunnskóla-
fræðum en ekki leyfisbréf því það
var eftir að krafan um mastersnám
kom fram. Einn kennari, sem er
menntaður leikskólakennari, mun
kenna í 1. bekk og fylgir nemendum
úr leikskólanum.
Í Sandgerðisskóla er lítil breyting
á starfsmannahópnum og búið er
að ráða í allar stöður og sömu sögu
er að segja um Grunnskólann í
Grindavík.
●● Emilía●Björg●fyrrverandi●Nylon●söngkona●stofnar●söngskóla●á●Suðurnesjum
„Ég vil að nemendur gangi út eftir
tímann með bros á vör og fullir
sjálfstrausts,“ segir Emilía Björg
Óskarsdóttir, en í vor stofnaði hún
Söngskóla Emilíu. Hún segir við-
tökurnar hafa verið rosalega góðar
og að fullt hafi verið á fyrsta nám-
skeið hennar á innan við viku.
„Það var því greinilegt að fleira fólki
fannst þetta vanta á Suðurnesjunum.
Söngskóli Emilíu er fyrir alla. Innst
inni elska allir að syngja. Við leitum
í tónlist við hinar ýmsu aðstæður. Ég
vinn mest með jákvæðni, að byggja
upp sjálfstraust nemenda og láta þeim
líða vel með sig sjálfa,“ segir Emilía.
Hún var meðlimur hljómsveitarinnar
Nylon en árið 2007 sagði hún skilið
við hljómsveitina. „Ég hef reynslu
af söngkennslu svo ég ákvað að gera
þetta bara sjálf. Námskeiðin hafa
gengið rosalega vel. Ég er í góðu sam-
bandi við foreldra og það skiptir mig
máli.“
Emilía hefur nú verið búsett í Reykja-
nesbæ í þrjú ár og segist elska að búa
hér. „Hér er allt til alls. Við gætum
ekki hugsað okkur að búa annars
staðar.“
Í sumar voru námskeiðin í boði fyrir
krakka á grunnskólaaldri en í haust
mun Emilía einnig bjóða upp á nám-
skeið fyrir 16 ára og eldri. „Þar geta
fullorðnir áhugasöngvarar komið og
fengið kennslu í tækni. Ég býð einnig
upp á einkatíma.“
Upplýsingar um skólann má finna
á Facebook-síðu skólans „Söngskóli
Emilíu“, en skráningar fara einnig
fram þar. Þá talar Emilía einnig reglu-
lega um skólann á snapchat undir
nafninu emiliabj.
Innst inni elska allir að syngja
Kolbrún Dís syngur
eins og engill.
Kolbrún Dís, Ingibjörg Svava, Guðbjörg,
Drífa og Nanna Ísold æfa fyrir lokatón-
leikana.
Emilia reynir að byggja upp sjálfstraust nemenda
og láta þeim líða vel með sig sjálfa.
Emilía með efnilegum söngkonum.
Gabríel og Tómas styrktu
Rauða Krossinn
■ Þeir Gabríel Aron Sævarsson og
Tómas Tómasson söfnuðu á dög-
unum pening til styrktar Rauða
Krossinum, en þeir söfnuðu pen-
ingnum hjá ættingjum og foreldrum
sínum.
Rauði krossinn vill færa þeim bestu
þakkir fyrir.
■ Eldur var kveiktur við 88 húsið á
Hafnargötu í Keflavík á áttunda tím-
anum á sunnudagskvöld. Eldurinn
logaði í porti undir trépalli en það
var vegfarandi sem réðst til
atlögu gegn eldinum með
handslökkvitæki.
Slök kv i l ið Br unavar na
Suðurnesja kom svo á vett-
vang og slökkti í glæðum.
Kveikt hafði verið í eldfimum efnum í
portinu. Lögreglan á Suðurnesjum fer
með rannsókn málsins.
Tilraun til íkveikju í 88 húsinu
Frá slökkvistarfi við 88 húsið í Reykjanesbæ.
VF-mynd: Hilmar Bragi