Víkurfréttir - 24.08.2017, Blaðsíða 16
16 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
■ Það er ávallt löng röð fyrir utan
starfsstöð Fjölskylduhjálpar Íslands
á Suðurnesjum þegar matarút-
hlutun fer fram. Það eru um 400
manns á skrá sem leita sótt reglulega
um matargjafir. Matarúthlutun er
einu sinni í mánuði en þá koma þeir
sem á hjálp þurfa að halda og sækja
sér matarpakka sem eiga að duga í
fimm máltíðir. Fjölskylduhjálp Ís-
lands er líknarfélag sem rekið með
sjálfshjálparfé. Tvisvar á ári er fjár-
munum safnað fyrir starfsemina.
„Stórir styrktaraðilar aðstoða okkur
en það er enginn stór styrktaraðili af
Suðurnesjum. Bláa Lónið hefur verið
duglegt að færa okkur handklæða-
gjafir og annað sem verður eftir hjá
þeim. Sigurjón í Sigurjónsbakarí er
gull af manni. Hann frystir allt sem
selst ekki yfir daginn og færir okkur.
Ég er hissa á því að stórfyrirtæki eins
og fyrirtæki í sjávarútvegi láti sig
þetta ekki varða,“ segir Anna Valdís
Jónsdóttir varaformaður Fjölskyldu-
hjálpar Íslands og verkefnastjóri
starfseminnar í Reykjanesbæ.
Sorglegt að sjá hve margir lifa við
fátækramörk
Að sögn Önnu er þörfin mikil hér
á svæðinu og fjöldinn sem leitar til
Fjölskylduhjálparinnar alltaf jafn stór.
„Við finnum ekki fyrir þessu góðær-
inu sem talað er um. Margir sem leita
hingað eru á leigumarkaðnum og
leiguverð hefur hækkað mikið. Þetta
þýðir að þessi hópur hefur minna fé
á milli handanna til matarinnkaupa.
„Hér kemur fólk sem hefur ekki geta
borgað rafmagnsreikninginn sinn og
því hefur verið lokað fyrir rafmagnið,
jafnvel búið við rafmagnsleysi í
nokkrar vikur. Ég er búin að starfa við
þetta í sex ár og get ekki séð að þetta
hafi neitt lagast á þessum tíma. Það
er sorglegt að sjá eldri borgara sem
hafa unnið alla sína ævi og borgað til
samfélagsins lifa við fátækramörk. Ég
hef heyrt af fólki sem býr á Nesvöllum
sem á ekki fyrir mat þegar það hefur
greitt leiguna og önnur nauðsynleg
útgjöld.“
„Það kom til okkar maður sem
vinnur fulla vinnu sem náði ekki
endum saman. Þegar hann var búinn
að borga leiguna, barnameðlögin og
annað sem hann þurfti að borga átti
hann 20.000 kr. eftir. Hann gat því
ekki veitt börnunum sínum mikið
þegar þau komu til hans. Hann gat
heldur ekki gefið börnunum sínum
afmælisgjafir. Þetta er bara eitt dæmi
um þá sem leita til okkar.“
Fjölskylduhjálp sér til þess að fólk fái
matargjafirnar þegar það kemst ekki
sjálft á svæðið að sækja þær. „Ætt-
ingar sjá stundum um að aka fólki
hingað. Það kemur líka fyrir að fólk
eigi ekki heimagengt vegna veikinda
og þá reynum við að finna lausn á
því. Það eru þung skref hjá sumum að
koma hingað og þurfa að viðurkenna
að þeir eigi ekki ofan í sig og á,“ segir
Anna Valdís.
Neyðin mest þegar skólarnir byrja
og fyrir jólin
„Erfitt er hjá sumum foreldrum
þegar skólarnir byrja. Það eru ýmis
aukaútgjöld eins og að kaupa nesti
fyrir börnin í skólann og það kemur
fyrir að foreldrar geti ekki keypt
nesti fyrir börnin. Við finnum mest
fyrir neyðinni fyrir jólin en þá nær
röðin yfir hundrað manns. Það er líka
tíminn sem við fáum flestar gjafirnar
en það eru fleiri sem gefa eitthvað
fyrir jólin. Við erum með pakkatré
við Nettó Krossmóa. Pakkarnir fara
allir til þeirra sem þurfa aðstoð um
jólin. Ef það eru einhverjir pakka eftir
þá fara þeir í afmælisgjafir eða jafn-
vel jólagjafir ári síðar. Við aðstoðum
líka foreldra sem geta ekki keypt föt
fyrir börnin sín. Nokkur jól keyrðum
við maðurinn minn mat til fólks til
klukkan sex á aðfangadag.“
Eigum að hugsa um hvort annað
„Við rekum einnig verslun með
notaðar og nýjar vörur hér í hús-
næðinu. Allur ágóði af sölunni fer
til Fjölskylduhjálpar. Það eru alltaf
einhverjir sjálfboðaliðar sem aðstoða
okkur hér í búðinni. Það gefur þeim
tilgang að koma hingað og hjálpa til.
Það koma líka nokkrir frá Björginni
sem er geðræktarmiðstöð Suðurnesja
og aðstoða okkur. Hingað í búðina
kemur líka mikið af fólki sem þarf að
fá ræða sín mál. Við þurfum að vera
sáluhjálparar líka. Margir eiga erfitt
og þurfa að ræða við einhvern. Það er
svo ríkt í okkur að fela fátækt en við
eigum að hugsa um hvort annað, þess
vegna eru við á þessari jörð,“ segir
Anna að lokum.
Finnum ekki fyrir góðærinu hér
Anna Valdís Jónsdóttir verkefna-
stjóri starfseminnar í Reykjanesbæ.
„Við eigum að hugsa um hvort annað,“
segir verkefnastjóri Fjölskylduhjálpar Íslands
Á LJÓSANÓTT ER OPIÐ FIMMTUDAG TIL LAUGARDAGS
FRÁ KL. 11:00 – 21:00
MATSEÐILINN ER Á WWW.SOHO.IS
TILVALIÐ FYRIR VINNUSTAÐI AÐ PANTA OG SÆKJA
FISKRÉTTIR // STEIKUR // SALÖT // KAFFI // KÖKUR
Soho Catering – Veisluþjónusta // Hrannargata 6 // Sími: 421 7646 // Gsm 692 0200 // www.soho.is