Víkurfréttir - 24.08.2017, Blaðsíða 17
17fimmtudagur 24. ágúst 2017 VÍKURFRÉTTIR
Lúxusgisting við höfnina í Grindavík
Lúxusgisting með útsýni yfir höfnina í Grindavík, sem ber
heitið Harbour View, verður í boði frá og með 1. september
næstkomandi en Grindvíkingarnir Gylfi Ísleifsson, Jakob
Sigurðsson, Kjartan Sigurðsson, Sigurður Óli Hilmarsson og
Þormar Ómarsson standa á bakvið fyrirtækið.
„Við fengum hugmyndina að þessu
fyrir nokkrum árum þegar við
keyrðum fram hjá svæðinu, að vera
með eitthvað flott þarna, með útsýni
yfir höfnina,“ segir Jakob í samtali
við Víkurfréttir, en þessa dagana er
framkvæmdunum að ljúka. „Húsin
eru tilbúin að innan og í vikunni ættu
þau að vera alveg klár en við gefum
okkur góðan tíma í að prófa áður en
við förum að bjóða borgandi kúnnum
að koma.“
Unnið er að tíu húsum en áætlað
er að þau verði tuttugu. Jakob segir
framkvæmdirnar kostnaðarsamar en
lagt var upp úr því að húsin væru vel
einangruð, úr gæðaefni og byggð til að
þola íslenskar aðstæður.
Nú þegar reka Jakob, Kjartan og
Sigurður fyrirtækin Fjórhjólaævin-
týri ehf. og Reykjanes bike. „Þetta
verkefni er til að efla ferðaþjónustu í
Grindavík og til að hafa meiri mögu-
leika,“ segir Jakob og tekur það fram
að í Grindavík sé þjónusta til fyrir-
myndar. „Hér er hugsað vel um
kúnnann. Þjónustan á svæðinu hefur
verið vel rekin síðustu ár og við erum
að skila frá okkur ánægðu fólki. Svo
fannst okkur kjörið að tengja þetta
við tjaldsvæðið i hérna í Grindavík
sem er glæsilegt.“
Ferðamenn í Grindavík hafa aldrei
verið fleiri en nú í sumar, en í júní var
aðsóknarmet á tjaldsvæðinu slegið
þegar gestafjöldinn fór yfir þrjú þús-
und.
Ferðamennirnir leita oft
niður á höfn og njóta
þess að sjá lífið þar.
Virkjaðu
hæfileikana
Máttur kvenna er nám fyrir konur sem vilja öðlast þekkingu og færni í
rekstri fyrirtækja.
Kennsla fer fram í fjarnámi þar sem þátttakendur geta sjálfir stjórnað því
hvenær horft er á fyrirlestra og verkefni unnin, allt eftir hentugsemi hvers
fyrir sig.
Kynntu þér málið á bifrost.is
Námið byggir á fjórum
kjarnanámskeiðum
• Upplýsingatækni
• Fjármál og bókhald
• Stofnun fyrirtækja og rekstrarform
• Markaðs- og sölutækni
Á vinnuhelgum verður
ennfremur lögð áhersla á
• Námstækni
• Nýsköpun og frumkvöðlar
• Skapandi stjórnun
• Framsækni og tjáning
Næsta námskeið hefst 15. september