Víkurfréttir - 24.08.2017, Síða 18
18 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
KRAFTUR ● TRAUST ● ÁRANGURFasteignasalan TORG Garðatorgi 5 210 Garðabæ
Hef hafið störf á Fasteignasölunni TORG,
býð alla í fasteignahugleiðingum velkomna
í viðskipti, fagleg ráðgjöf og topp þjónusta.
Bestu kveðjur,
Gunnur Magnúsdóttir
Löggiltur fasteignasali
Sími: 864-3802
Gunnur Magnúsdóttir
Viðskiptafræðingur og löggiltur fasteignasali
Sími: 864-3802
gunnurm@fstorg.is
Stuðningsfulltrúi
Sálfræðingur
Leikskólakennari
Stuðningsfulltrúar
Eftirskólaúrræði með fötluðum ungmennum
Umsjónarkennari á miðstigi
Þroskaþjálfi
Starfsmaður á heimili fatlaðra barna
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt
nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni
Reykjanesbær - laus störf.
MYLLUBAKKASKÓLI
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA
LEIKSKÓLINN HEIÐARSEL
AKURSKÓLI
FJÖRHEIMAR
HOLTASKÓLI
MYLLUBAKKASKÓLI
VELFERÐARSVIÐ
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR
NESVELLIR
Leikfimi eldri borgara hefst aftur eftir sumarfrí mánudaginn 28. ágúst.
Boðið er upp á leikfimi mánudaga og fimmtudaga kl. 10.00 á
Nesvöllum. Allir íbúar 60 ára og eldri velkomnir. Bjóðum sérstaklega
nýja þátttakendur velkomna. Klippikort til sölu í afgreiðslu Nesvalla.
VETRARÁÆTLUN STRÆTÓ
Vetraráætlun Strætó hefur tekið gildi. Breytingarnar taka bæði til
innanbæjarstrætós og landsbyggðarstrætós, sem meðal annars ekur
til flugstöðvar og í nágrannabæjarfélög.
Áætlanir má nálgast á vefjum Reykjanesbæjar og Strætós bs.
BÓKASAFN REYKJANESBÆJAR
Skráning er hafin á Fanzine bókagerðanámskeið sem fer fram í safninu
laugardaginn 26. ágúst klukkan 11-17.
Skráning fer fram á heimasíðu safnsins;
https://sofn.reykjanesbaer.is/bokasafn.
Raunfærnimat í Verslunarfulltrúa
■ Vinnur þú við verslun og þjón-
ustu eða hefur reynslu af því?
Langar þig til að styrkja stöðu
þína á vinnumarkaði eða bæta við
menntun þína?
Ef þú ert orðin/orðinn 23 ára og
hefur unnið verslunar- og þjónustu-
störf í þrjú ár eða lengur ættir þú að
lesa áfram og kynna þér málið.
Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum (MSS) býður nú í haust upp
á raunfærnimat í Verslunarfulltrúa.
Það er 29 eininga starfstengt nám á
framhaldsskólastigi. Matið er þátt-
takendum að kostnaðarlausu.
Raunfærnimat er frábær leið fyrir
fólk til þess að kortleggja færni sína
og auka möguleikana á ýmsum
sviðum. Margir einstaklingar á
vinnumarkaðnum hafa í gegnum
áralanga reynslu, byggt upp umtals-
verða færni en ekki lokið námi af
einhverjum ástæðum. Þessir ein-
staklingar búa yfir raunfærni sem
vert er að skoða og meta. Raunfærni-
mat er ferli þar sem metin er þekking
og færni á ákveðnu sviði, sem ein-
staklingur hefur náð með ýmsum
hætti, s.s. starfsreynslu, starfsnámi,
frístundanámi, skólanámi og félags-
störfum.
Á undanförnum árum hafa rétt tæp-
lega fjögur þúsund einstaklingar farið
í gegnum raunfærnimat í ýmsum
iðn- og verkgreinum, auk raunfærni-
mats í almennri starfshæfni, hjá MSS
og öðrum símenntunarmiðstöðvum
um allt land. Það er samdóma álit
þeirra að það hafi styrkt stöðu þeirra
og sjálfstraust. Margir hafa í kjölfarið
lokið löggiltu námi.
Matið fer þannig fram að þátt-
takendur mæta nokkrum sinnum
í Miðstöð símenntunar á Suður-
nesjum, Krossmóa 4, Reykjanesbæ.
Eftir kynningu og einstaklingsvið-
tal við náms- og starfsráðgjafa, hefst
matsferlið. Gerð er færniskráning
og í kjölfarið fer fram matssamtal
þar sem fagaðili metur stöðu við-
komandi í faginu. Matið er staðfest
með vottun og skráningu metinna
eininga í Innu, skráningarkerfi fram-
haldsskólanna.
Við raunfærnimat í Verslunarfulltrúa
eru þátttakendur metnir skv. nám-
skrá Fræðslumiðstöðvar atvinnu-
lífsins til 29 framhaldsskólaeininga.
Markmiðið er að þeir geti stytt nám
í framhaldinu og sýnt fram á reynslu
og færni í starfi eða atvinnuumsókn.
Eftir matið geta þátttakendur tekið
ákvörðun um að ljúka við það sem
uppá vantar í námi, nýtt matið sem
stökkpall í annað nám eða nýtt það
til að skoða hvar þeir eru staddir og
hvert þeir vilja stefna með hliðsjón
af því.
Hér koma að lokum ummæli eins
þeirra sem fór í gegnum raunfærni-
mat í Verslunarfagnámi hjá MSS,
Kristins Sigurjónssonar sölumanns
í Fríhöfninni á Keflavíkurflugvelli.
Hann er nú nemandi við Háskóla
Íslands:
Aðalástæðan fyrir því að ég fór í
raunfærnimat var að mig langaði í
háskólanám. Ég lauk ekki stúdents-
prófi á sínum tíma en kláraði versl-
unarskólanám í Danmörku. Hefur
alltaf langað til að starfa í markaðs-
geiranum og langaði í viðskipta-
fræði í HÍ. Ég hafði því samband
við náms- og starfsráðgjafa og fór í
raunfærnimat hjá MSS og átti eftir
það auðveldara með að sækja um í
háskólanum.
Í dag stunda ég nám í Háskóla Íslands
með fullri vinnu og gengur vonum
framar. Hef þroskast mikið sem ein-
staklingur og öðlast áhuga fyrir námi.
Ég er með mikla lesblindu sem hefur
fram að þessu haft neikvæð áhrif á
mig. Háskóli Íslands býður upp á
mjög góða þjónustu fyrir þá sem eiga
við námsörðugleika að stríða.
Raunfærnimatið hefur fært mér
vilja og trú á að ég geti lært og ég
myndi ráðleggja öllum að skrá sig í
raunfærnimat hjá næstu símennt-
unarstöð. Það er ómetanlegt að fá
starfsreynslu sína metna fyrir nám
og gefur af sér óteljandi nýja mögu-
leika í lífinu.
Nánari upplýsingar veitir Arndís
Harpa Einarsdóttir, náms- og starfs-
ráðgjafi við Miðstöð símenntunar á
Suðurnesjum, í síma 412-7500 eða
tölvupósti; arndisharpa@mss.is
Anndís Harpa
Einarsdóttir,
náms- og starfs-
ráðgjafi
Kristinn
Sigurjónsson,
nemandi við HÍ
Með SOUL í auga
■ Tónleikaröðin „Með blik í auga“
heldur áfram á Ljósanótt og í þetta
sinn verður SOUL tónlist fremst í
flokki. Arnór Vilbergsson og Guð-
brandur Einarsson sögðu okkur
aðeins frá sýningunni og undirbún-
ingi hennar.
„Okkur langaði til þess að búa til
gleðisýningu í ár og soul-tónlist er vel
til þess fallin að bjóða upp á gleði og
glens og ótrúlega skemmtilega tón-
list en þetta er sjöunda árið sem við
höldum tónleika í þessari tónleika-
röð.“
Hvernig lög verða í sýningunni?
„Við höfum alltaf unnið með söguna
í gegnum lögin. Í ár byrjum við til
dæmis á lögum frá Ray Charles,
færum okkur yfir í Aretha Franklin,
Marvin Gaye og munum síðan enda
með góðum smell, hver veit hvort
við lumum ekki á rappi í lokin. Þetta
er mikil lagaflóra, gleði og rosalega
skemmtileg tónlist.“
Guðbrandur segir að soul-tónlistin
hafi í raun og veru byrjað í kirkjunni
en þar á hún sinn uppruna í gospelinu.
„Flytjendur í ár eru heimamenn
ásamt nokkrum stórstjörnum á borð
við Jón Jónsson sem er með frábært
soul raddsvið, Stefanía Svavarsdóttir
og Jóhanna Guðrún koma einnig
fram, en þær hafa sungið með okkur
áður. Eyþór Ingi sem er frábær söngv-
ari og svo er það enginn annar en
stuðboltinn og reynsluboltinn sjálfur
Helgi Björns.“ Arnór segir þó að hinir
flytjendurnir séu stútfullir af reynslu
eins og Helgi en hann sé bara eins og
gamalt rauðvín, verði bara betri með
hverju árinu.
Þið hafið komið víða við á síðast-
liðnum árum. Er ekkert mál að vera
með nýtt efni nýjar hugmyndir?
„Í kringum áramótin er púlsinn tek-
inn og þá er ákveðið hvort við ætlum
að gera þetta einu sinni enn eða hætta
þessu. Það hefur gengið vel undan-
farin ár en til að byrja með fórum
við yfir íslenska tónlist og tímabilin
hennar. Eftir það fórum við síðan að
færa okkur yfir í þema. Í fyrra vorum
við með kántrý tónlist og það hafði
enginn sérstaka trú á henni þegar ég
skaut því að en sú sýning heppnaðist
afar vel,“ segir Guðbrandur.
Arnór er hljómsveitarstjórinn og
hefur í nægu að snúast fyrir sýning-
una og heldur utan um stóran hóp
af tónlistarfólki. Við spurðum hann
hvernig gengi að halda utan um þetta
allt saman.
„Þetta er mjög auðvelt í raun og veru.
Það sem er svo gott við þetta er hversu
sjóaðir allir eru orðnir í þessu. Í ár
erum við til dæmis með sömu menn
í hljómsveitinni og hafa spilað með
okkur síðastliðin fjögur ár. Við erum
í raun og veru að æfa í litlum hópum,
bandið æfir sér, blásturshljóðfæra-
leikarar sér og síðan einn og einn
söngvari. Á mánudeginum fyrir sýn-
ingu hittumst við öll í Andrews leik-
húsinu og æfum saman.“
Langur tími fer í undirbúning á
svona sýningu og hálfu ári fyrir hana
er byrjað að útsetja, senda út plön, fá
raddir og margt fleira. Guðbrandur
segir að fyrsti listinn sem hann setti
saman á Spotify hafi innihaldið 200 lög
en síðan var grisjað smám saman úr
honum og að lokum urðu 20 lög fyrir
valinu. Hann nefnir einnig að hann
hafi reynsluna umfram Arnór í þessari
tónlist, því hann sé gamall reynslubolti.
Sýningin er frumsýnd þann 30. ágúst
og eru örfáir miðar eftir á þá sýningu.
Tvennir tónleikar vera svo 3. septem-
ber klukkan 16 og 20. Miðasala er á
midi.is
Fimmtudagskvöld kl. 20:00
Helgi Björnsson á æfingu.