Víkurfréttir - 24.08.2017, Qupperneq 20
20 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
LJÓSANÆTURBLAÐ VÍKURFRÉTTA
KEMUR ÚT MIÐVIKUDAGINN 30. ÁGÚST.
EFNI Í BLAÐIÐ ÞARF AÐ BERAST Í SÍÐASTA LAGI Á MÁNUDAGINN.
SENDIÐ EFNI Á VF@VF.IS. SÍMI FRÉTTADEILDAR ER 421 0002.
Þriggja ára beið í tíu tíma með gat á hausnum
„Skelfilegt ástand á
Heilbrigðisstofnun
Suðurnesja,“ segir móðir
drengsins
■ „Mér finnst þetta skelfilegt.
Á ekki að fara að gera eitthvað í
þessum málum? “ spyr Ásdís
Ágústsdóttir, en fyrr í vikunni
beið hún í tíu klukkustundir eftir
læknisþjónustu fyrir þriggja ára
son sinn.
Aron hafði fengið gat á hausinn á
leikskólanum sínum og eftir hádegi
fór hann ásamt móður sinni á slysa-
og bráðamóttöku Heilbrigðisstofn-
unar Suðurnesja til aðhlynningar.
Þar biðu þau í þrjá og hálfan tíma
án nokkurrar læknisaðstoðar. Einn
læknir var á vakt á spítalanum sem
að sögn Ásdísar hafði engan tíma til
að tala við þau. „Eftir þessa bið fékk
ég óþægilega tilfinningu fyrir þessu
svo ég ákvað að fara með hann til
Reykjavíkur.“
Á Landspítalanum í Fossvogi var vel
tekið á móti þeim og þeim fylgt á
sérstaka barnastofu en eftir það tók
við rúmlega fjögurra klukkustunda
bið. Aroni var gefið kæruleysislyf
klukkan 21 þar sem hann var svo
saumaður af lækni. „Ég er rosalega
ánægð að hafa farið með hann til
Reykjavíkur en þetta ástand er skelfi-
legt. Aron stóð sig hins vegar eins og
hetja,“ segir Ásdís.
Bæta þarf við starfsfólki á Heil-
brigðisstofnun Suðurnesja svo álagið
minnki en Ásdísi finnst ólíklegt að
það gerist. „Ég sá aðeins einn lækni
og tvær hjúkrunarkonur á flakki á
HSS. Það er fáránlega mikið að gera
hjá þeim. Það er mikið af frábæru
fólki að vinna á HSS en ástandið þar
er bara skelfilegt.“
■ „Húsnæðisskortur einn og sér
leiðir ekki til aðkomu barnaverndar
eða til þess að mál verði barna-
verndarmál,“ segir Hera Ósk Ein-
arsdóttir, sviðsstjóri velferðarsviðs
Reykjanesbæjar, í pistli sínum á vef
Reykjanesbæjar. Töluverð umræða
hefur verið á samfélagsmiðlum og
í fjölmiðlum um húsnæðisvanda
fólks á svæðinu og aðkomu barna-
verndar í þeim málum.
Aðkoma barnaverndar í málum barna
byggir á barnaverndarlögum og berist
tilkynning um að aðbúnaði og um-
önnun barns sé ábótavant ber barna-
vernd skylda til að hefja könnun máls.
„Það eru svo margar og misjafnar
ástæður fyrir því að fólk er í hús-
næðisvanda en óhætt er að fullyrða að
þær eru í fæstum tilvikum til komnar
vegna vanrækslu foreldra,“ segir Hera.
Telji barnavernd að þörf sé á stuðningi
við viðkomandi barn og fjölskyldu
þess er reglan sú að stuðningurinn
sé barninu fyrir bestur. Vistun barns
utan heimilis kann að koma til álita
en er ekki fyrsti kostur í þeirri vegferð.
Sé niðurstaðan sú að ekki sé ástæða til
aðgerða á grundvelli Barnaverndar-
laga að lokinni könnun, þá er málinu
lokað hjá barnavernd.
Hera segir það reynslu velferðarráðs
að foreldrar reyni að gæta hagsmuna
barna sinna og veiti þeim það öryggi
sem þau þurfa. Sú leið sé oft fundin í
gegnum tengslanet fjölskyldunnar en
að hún geti líka falist í því að foreldrar
kaupi gistingu á gistiheimili, AirB&B,
leigi herbergi og búi tímabundið við
þröngar aðstæður.
Samkvæmt lögum er það hlutverk
sveitarfélaga að aðstoða íbúa sem
eru tekjulágir eða með þunga fram-
færslubyrgði í gegnum félagslega
húsnæðiskerfið og segir Hera sveitar-
félagið nokkuð vel sett með íbúða-
fjölda í félagslega kerfinu í saman-
burði við önnur sveitarfélög, þó bið-
listinn sé langur. „Íbúar sem leita til
félagsþjónustu sveitarfélaga vegna
húsnæðismála sinna fá ráðgjöf við
húsnæðisleit, upplýsingar um ýmis
stuðningsúrræði fyrir tekjulægstu
hópana, m.a. sérstakan húsnæðis-
stuðning sveitarfélagsins og lán til
fyrirframgreiðslu húsnæðis. Félags-
þjónusta sveitarfélagsins reynir eftir
bestu getu að koma til móts við fólk
í þessari erfiðu stöðu, m.a. með því
að auðvelda þeim þannig aðgengi að
almenna leigumarkaðinum.“
Barnafólk sem leitar að eigin frum-
kvæði til barnaverndar vegna hús-
næðisvanda síns er bent á að snúa sér
til félagsþjónustu sveitarfélaga. Út-
hlutun félagslegs húsnæðis er verkefni
velferðarsviðs Reykjanesbæjar og fé-
lagslegt húsnæði í Reykjanesbæ er
rekið af Fasteignum Reykjanesbæjar
ehf.
Húsnæðisskortur leiðir ekki
til aðkomu barnaverndar
U M S Ó K N A R F R E S T U R :
3 . S E P T E M B E R 2 0 1 7
U M S Ó K N I R :
I S AV I A . I S/AT V I N N A
V I L T Þ Ú V E R Ð A H L U T I
A F G Ó Ð U F E R Ð A L A G I ?
Hjá Isavia starfar öflugur hópur fólks sem allt hefur það að markmiði að vera hluti af
góðu ferðalagi þeirra sem fara um flugvelli félagsins og íslenska flugstjórnarsvæðið.
Nú vantar okkur fleiri til að vera hluti af góðu ferðalagi með okkur.
V A K T S T J Ó R I F A R Þ E G A Þ J Ó N U S T U
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Helstu verkefni eru stýring raðakerfa í flugstöðinni, upplýsingagjöf og aðstoð við
farþega og utanumhald hóps starfsmanna sem veita farþegum bestu mögulegu þjónustu.
Vaktstjóri er ábyrgur fyrir því að öllum verkefnum farþegaþjónustu sé sinnt.
Um vaktavinnu er að ræða.
Hæfniskröfur
• Góðir stjórnunarhæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
• Menntun/starfsreynsla sem nýtist í starfi
• Yfirburða þjónustulund og jákvæðni
• Líkamleg hreysti fyrir göngur og stöður
• Góð samskiptahæfni
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Þriðja tungumál er kostur
Umsækjendur þurfa að standast bakgrunnsskoðun ríkislögreglustjóra vegna aðgangs
að haftasvæði flugverndar.
Leitað er að stafsmönnum sem hafa lipra og þægilega framkomu, eiga auðvelt með að vinna
undir álagi, sýna af sér frumkvæði í starfi, eru skipulagðir í verkum sínum og áhugasamir.
Isavia hefur hlotið gullmerki PwC fyrir launajafnrétti í jafnlaunaúttekt PwC árlega frá 2015.
Við erum stolt af þeirri niðurstöðu og er hún í takt við jafnréttisáætlun félagsins sem
hefur það að markmiði að nýta hæfni, krafta og kunnáttu starfsmanna til fulls án þess
að kynbundin mismunun eigi sér stað.
Maren hefur starfað við
uppbyggingu á Keflavíkur-
flugvelli í tvö ár. Hún er hluti
af góðu ferðalagi.