Víkurfréttir - 24.08.2017, Page 22
22 fimmtudagur 24. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Gerðaskóli óskar eftir fólki í eftirtalin störf:
Starfsmaður skólasels, eftir hádegi
Skólaliði 80%
Stuðningsfulltrúi 80%
Umsóknarfrestur er til 7. september
Umsóknir, ásamt upplýsingum um umsagnaraðila berist á
netfangið johann@gerdaskoli.is eða eva@gerdaskoli.is
Nánari upplýsingar veita Jóhann 8984808
og Eva 8984496.
GERÐASKÓLI ATVINNA
■ Umsóknir óskast útfylltar á www.icelandair.is/umsokn
eigi síðar en 4. september 2017.
Nánari upplýsingar veita:
Sigurð Á. Einarsson í netfanginu sigurdurae@its.is.
KOMDU TIL LIÐS
VIÐ OKKUR
STARFSVIÐ:
■ Ýmis vinna í viðhaldi innréttinga
í farþegarými ugvéla Icelandair.
■ Vinnan fer að mestu fram í lengri
viðhaldsstoppum ugvéla í skýli yr
vetrarmánuðina. Á sumrin er unnið að
hluta úti í línuumhvernu við smærri
lagfæringar í stuttum stoppum.
MENNTUN OG HÆFNI:
■ Aldurstakmark 20. ár
■ Hafa gott vald á íslenskri tungu.
STARFSMAÐUR Á INNRÉTTINGAVERKSTÆÐI
TÆKNIÞJÓNUSTA ICELANDAIR ITS Á KEFLAVÍKURFLUGVELLI LEITAR
AÐ ÖFLUGUM LIÐSMANNI TIL STARFA Á INNRÉTTINGAVERKSTÆÐI
ITS. UM ER AÐ RÆÐA DAGVINNU ÞAR SEM VINNUTÍMINN ER
7:45-15:40 MÁNUDAGA - FÖSTUDAGA.
Við leitum að kraftmiklum og áhugasömum einstaklingi í spennandi og kreandi starf í góðu starfsumhver.
Liðsmanni með framúrskarandi samskiptahæleika sem nnst gott að vinna sem hluti af liðsheild í síbreyti-
legu alþjóðlegu umhver. Lögð er rík áhrersla á öguð og sjálfstæð vinnubrögð, samviskusemi og eftirfylgni.
ATVINNA
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN FJÖRHEIMAR
FÉLAGSMIÐSTÖÐIN FJÖRHEIMAR ÓSKAR EFTIR STARFSFÓLKI Í HLUTASTÖRF !
Um er að ræða þrjár 40 % stöður í eftirskólaúrræði með fötluðum ungmennum.
Vinnutími er virka daga frá 13.00 – 16.00.
Hæfniskröfur:
- Góð færni í mannlegum samskiptum
- Reynsla af starfi með ungmennum æskileg
- Hæfni til að vinna sjálfstætt
- Hreint sakavottorð
- Reynsla af starfi með fötluðum æskileg
Umsækjendur þurfa að hafa náð 19 ára aldri.
Sækja þarf um störfin á vef Reykjanesbæjar
www.reykjanesbaer.is/stjornkerfi/laus-storf
Umsóknarfrestur er til 31. ágúst, æskilegt er að viðkomandi geti byrjað sem fyrst.
Að auki er óskað eftir starfsmönnum í kvöldvinnu í
félagsmiðstöðinni og möguleiki er á starfi um helgar í
Útideild Reykjanesbæjar.
Ljósanæturhlaup Lífstíls
●● Hlaupið●í●minningu●Björgvins●Arnars
■ Árlegt Ljósanæturhlaup Lífs-
tíls fer fram miðvikudaginn 30.
ágúst næstkomandi. Í ár munu
500 krónur af hverri skráningu
renna til Barnaspítala Hringsins
til minningar um Björgvin Arnar
sem lést fyrir fjórum árum síðan
en hann fæddist með sjaldgæfan
genagalla.
Líkamsræktarstöðin Lífstíll sér um
framkvæmd hlaupsins en hlaupið
verður í kringum götur Reykjanes-
bæjar. Vegalengdirnar sem í boði
verða eru 3 km, 7 km og 10 km.
Ljósanótt er ein stærsta fjölskyldu-
skemmtun landsins og því er tilvalið
fyrir alla fjölskylduna að skella sér
saman að hlaupa, enda eru vega-
lengdir í boði fyrir alla. Hlaupið hefst
og endar við Líkamsræktarstöðina
Lífsstíl.
Forskráning er inn á hlaup.is.
Miðbæ Barcelona skellt í lás
■ „Ekki mjög skemmtilegt að svona
gerist nánast í bakgarðinum hjá
manni,“ segir Sandgerðingurinn
Jóna Júlíusdóttir sem er búsett í
hverfinu þar sem
Sendiferðabíl var ekið á hóp fólks við
Römbluna í Barcelona á Spáni síðast-
liðinn fimmtudag er þrettán manns
létu lífið og hundrað særðust. Sand-
gerðingurinn Jóna Júlíusdóttir er bú-
sett í Barcelona og var hún nýkomin
heim úr göngutúr þegar Víkurfréttir
náðu af henni tali daginn eftir at-
burðina. Fáir voru á ferli um svæðið
en borgin þó farin að vakna og taka
við sér á ný eftir hörmungar fimmtu-
dagsins.
„Ég var sofandi þegar þetta gerðist. Ég
ætlaði að fara niður í bæ að vesenast
en svaf mjög illa og ákvað að leggja
mig frekar. Ég vaknaði fyrst við Skype
hringingu frá mömmu sem ég huns-
aði (sorrý mamma) en svo kom með-
leigjandinn inn og sagði mér hvað
hafði gerst við enda götunnar okkar.
Við tóku klukkutímar í símanum að
láta fólk vita og tékka á vinum hér
og svara skilaboðum frá fólki heima
áður en maður gat skráð sig örugga á
Facebook,“ segir Jóna.
Daginn eftir voðaverkið hjá Jónu fór
að mestu leyti í það að skoða spænsku
fréttirnar ásamt mikilli bið. „Þar
sem við búum á Römblunni var út-
göngubann lengst hér á svæðinu. Fólk
í öðrum hverfum mátti orðið snúa
heim en við máttum ekki fara út í búð.
Miðbænum var bara skellt í lás. Svo
um miðnætti náði ég loks að fara að
lesa fréttir. Það er ekki mjög skemmti-
legt að svona gerist nánast í bakgarð-
inum manns. Svo er ansi vinsælt torg
Plaza Reial á móti okkur og við vorum
hræddar um aðra sprengingu þar.“
Á Facebook síðu Jónu sagðist hún
hafa verið þakklát fyrir að hafa átt
svefnlitla nótt og verið sofandi þegar
atvikið átti sér stað. Vinur Jónu starfar
sem læknir rétt fyrir utan Barce-
lona og var kallaður út á eitt stærsta
sjúkrahúsið í þar til þess að vinna
eftir atburði fimmtudagsins. Hann er
sérfræðingur í slysa- og bráðalækn-
ingum og kom hann heim eftir mið-
nætti. Allt tiltækt læknalið hafði verið
kallað út og voru sumarfrí aukaatriði.
Jóna segir lögregluna, sjúkralið og
lækna hetjurnar þeirra.
Þessir atburðir voru frekar súrealískir
að sögn Jónu og þá sérstaklega þegar
þeim var tjáð að einn árásarmann-
anna hafði falið sig inni á veitinga-
stað nálægt þeim. Margir vinsælir
veitingastaðir og meðal annars stórt
veitingatorg eru nálægt þeim og hefði
árásin í raun og veru geta átt sér stað
hvar sem er í kringum íbúðina þeirra.
Jóna þakkar öllum þeim sem hugsað
hafa til hennar eftir atburði fimmtu-
dagsins en hún hafði ekki undan síð-
astliðinn fimmtudag að svara skila-
boðum, símhringingum og símtölum
á Skype eftir að fréttirnar bárust til
Íslands.
Þátttaka í íþróttum og tómstundum getur skipt sköpum
■ „Það er mjög fjölbreytt íþrótta-
og tómstundastarf í bænum okkar.
Þátttaka barna og ungmenna í slíku
starfi getur skipt sköpum,“ segir
Hafþór Barði Birgisson, íþrótta- og
tómstundafulltrúi Reykjanesbæjar,
í viðtali við FFGÍR, Foreldrafélög
grunnskólanna í Reykjanesbæ.
„Það kennir ýmissa grasa hjá okkur.
Stærstu íþróttirnar eru að sjálfsögðu
sund og fimleikar, ásamt körfu- og fót-
bolta. Það eru margar góðar íþrótta-
greinar í gangi. Svo er líka fjölbreytt
tómstundastarf í boði. Við erum með
félagsmiðstöð fyrir 13 til 16 ára krakka
og einnig ungmennahús fyrir 16 ára og
eldri. Svo er gott starf, bæði hjá KFUM
og KFUK, Skátunum og mörgum
öðrum,“ segir Hafþór og hvetur börn
til þátttöku í starfinu.
FFGÍR vill einnig hvetja foreldra til
að skrá börn sín til þátttöku nú þegar
skólastarf er að hefjast. Foreldrar geta
sótt um hvatagreiðslur, en fyrir hvert
barn eru þær 21.000 krónur. Upp-
lýsingar um hvatagreiðslurnar er að
finna á mittreykjanes.is. Þeir sem
eiga í erfiðleikum með að sækja um
greiðslurnar geta haft samband við
Hafþór.