Víkurfréttir - 24.08.2017, Side 23
23fimmtudagur 24. ágúst 2017 VÍKURFRÉTTIR
Grindavík í toppbaráttunni
þrátt fyrir tap
■ Grindavík tapaði fyrir Val 2:0 á
Valsvelli í Pepsí-deild á mánudag-
inn. Einar Karl Ingvarsson skor-
aði bæði mörk Valsmanna. Fyrra
markið skoraði hann á 22. mínútu
og það síðara á 80 mínútu. Grinda-
vík er í 3. - 4. sæti deildarinnar með
24 stig.
Keflavík hélt 1. sæti Inkasso-
deildar
■ Keflavík tapaði 4:2 fyrir Haukum
um síðustu helgi í Inkasso-deild-
inni. Keflavíkingar skoruðu tvö
fyrstu mörkin. Fyrsta markið var
sjálfsmark á 5. mínútu. Jeppe Han-
sen skoraði fyrir Keflavík úr víta-
spyrnu í byrjun síðara hálfleiks.
Keflavík var í þægilegri stöðu og
fátt benti til þess að Haukar myndu
jafna, hvað þá skora fjögur mörk.
Harrison Hanley minnkaði mun-
inn á 54. mínútu áður en Björgvin
Stefánsson jafnaði metin sex mín-
útum síðar. Aron Jóhannsson kom
svo Haukum yfir áður en Björgvin
gulltryggði óvæntan sigur Hauka.
Lokatölur 4-2 og þrátt fyrir tapið
er Keflavík er áfram í efsta sæti
deildarinnar með 34 stig.
Grindavík kom með eitt stig
úr Eyjum
■ Grindavík gerði 2:2 jafntefli
við ÍBV í gær í Vestmannaeyjum
í Pepsí-deild kvenna í síðustu
viku. Fyrsta markið kom strax á
3. mínútu og var það Cloé Lacasse
sem skoraði það fyrir ÍBV. Þann-
ig var staðan í hálfleik. Kristín
Anítudóttir Mcmillan jafnaði fyrir
Grindavík á 56. mínútu. ÍBV komst
aftur yfir með marki frá Kristínu
Ernu Sigurlásdóttur á 67. mínútu.
Grindvík jafnaði aftur með marki
frá Maríu Sól Jakobsdóttur á 82.
mínútu. Lokastaðan því 2:2 og er
Grindavík er 7. sæti með 14 stig.
Njarðvík og Víðir í toppsætum
2. deildar
■ Njarðvík gerði 1:1 jafntefli við
Magna frá Grenivík á föstudag.
Krystian Wiktorowicz skoraði
jöfnunarmark Njarðvíkur í upp-
bótartíma. Víðir sigraði Huginn
1:0 á laugardaginn. Ari Steinn
Guðmundsson skoraði mark Víðis
á 8. mínútu. Njarðvík er í 1. sæti og
Víðir í 3. sæti 2. deildar.
Þróttarar komnir í 3. sæti 3.
deildar
■ Þróttur Vogum sigruðu KF 2:0
í toppslag 3. deildar í um síðustu
helgi. Aran Nganpanya kom
Þrótti yfir 21. mín og Andri Björn
Sigurðsson skoraði seinna mark
Þróttara á 69. mín. Sigur Þróttara
var aldrei hættu þrátt fyrir mikla
baráttu. Mikil stemmning var á
leiknum og létu stuðningsmenn
Þróttar vel í sér heyra. Þróttarar
hafa verið um miðja deild í allt
sumar og eru í fyrsta sinn á meðal
þriggja efstu liða deildarinnar.
Reynir með sigur á Víkingsvelli
■ Reynir Sandgerði sigraði Berseki
1:0 á Víkingsvelli í 3. deild í knatt-
spyrnu karla í síðustu viku. Tomis-
lav Misura skoraði eina mark leiks-
ins fyrir Reyni á 25. mínútu. Reynir
er í næst neðsta sæti deildarinnar
með 9 stig.
Knattspyrnusamantekt
Þjónusta við Sorpeyðingarstöð Suðurnesja 2018 – 2023.
Sorphirða og útvegun íláta, flutningar og kaup á endurvinnsluefni.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir tilboðum í eftirfarandi:
Sorphirðu fyrir heimili á Suðurnesjum, útvegun á endurvinnsluílátum, flutninga efnis
og kaup á endurvinnsluefni. Útboð þetta er auglýst á EES svæðinu.
Þjónustutímabil er 5 ár, frá 1. febrúar 2018 til 31. janúar 2023.
Útboðsgögn eru afhent frá og með 28. ágúst og fást með því að senda ósk um gögn
með tölvupósti á netfangið beimur@simnet.is. Fram skal koma nafn bjóðanda svo og
nafn, símanúmer og netfang tengiliðs hjá bjóðanda.
Tilboð verða opnuð hjá Sorpeyðingarstöð Suðurnesja, Berghólabraut 7,
Reykjanesbæ, þriðjudaginn 3. október 2017 kl. 11.00.
Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf.
S o r p e y ð i n g a r s t ö ð S u ð u r n e s j a s f.
--- Útboð verksamninga ---
■ Karen Guðnadóttir úr Golfklúbbi
Suðurnesja gerði sér lítið fyrir og
sigraði á öðru mótinu í röð á Eim-
skipsmótaröðinni í golfi en um síð-
ustu helgi var keppt á síðasta móti
ársins, Sequritas mótinu, þar sem
leikið var um GR bikarinn. Karen
vann eftir æsispennandi keppni og
var höggi betri en Berglind Björns-
dóttir sem varð stigameistari ársins.
Karen lék hringina þrjá á 11 höggum
yfir pari en fór á kostum á loka-
hringnum sem hún lék á pari. Hún
fékk fjóra fugla á fyrstu átta holunum
og náði svo forystu í mótinu þegar
fimm holur voru eftir og hélt henni.
Fyrir lokaholuna voru þær jafnar,
Karen og Berglind, en GS-konan
tryggði sér sigur með því að fá par
en Berglind fékk skolla. Vel gert hjá
Karen sem hefur verið að bæta sig
þegar liðið hefur á sumarið. Hún
vann Hvaleyrarbikarinn fyrir tveimur
vikum, varð í 4. sæti á Íslandsmótinu í
höggleik og vann svo núna lokamótið.
Karen endaði í 2. sæti í stigakeppni
Eimskipsmótaraðarinnar.
Golfkúbbur Suðurnesja átti tvo aðra
keppendur í kvennaflokki en Laufey
Jóna Jónsdóttir varð í 9. sæti á 27 yfir
pari og Kinga Korpak sem rak lestina
á 33 yfir pari en Kinga var langyngsti
keppandinn í mótinu, aðeins 14 ára.
Kinga kom gríðarlega á óvart þegar
hún blandaði sér í toppbaráttuna á
næsta síðasta mótinu á Hvaleyri þegar
hún leiddi fyrir lokahringinn. Gekk
hins vegar illa á lokahringnum og
Karen kom, sá og sigraði og fór m.a.
holu í höggi í því mótinu eins og við
sögðum frá nýlega.
Suðurnesjamenn áttu einn keppanda
í karlaflokki en Guðmundur Rúnar
Hallgrímsson úr GS varð í 13.-14. sæti
á 7 yfir pari en hann endaði í 31. sæti
í stigakeppni ársins. Guðmundur lék
á mótaröðinni í sumar í fyrsta skipti
í mörg ár og stóð sig vel þó hann hafi
ekki náð í verðlaunasæti.
Íþróttir á Suðurnesjum
Annar sigur
Karenar Guðna-
dóttur í röð á
Eimskipsmóta-
röðinni
Breytum notuðum
fatnaði í matvæli
Fatasöfnun Fjölskylduhjálpar Íslands er opin
alla virka daga frá kl 13 til 18
að Baldursgötu 14, Reykjanesbæ.
Baldursgötu 14, Reykjanesbæ
Eyþór keppir á HM í taekwondo
●● Einungis●tveir●Íslendingar●keppt●á●mótinu●en●
báðir●eru●þeir●Keflvíkingar
■ Keflvíkingurinn Eyþór Jónsson
keppir á Heimsmeistaramóti ung-
menna í taekwondo í Sharm El
Sheikh í Egyptalandi. Mótið fer
fram dagana 24.- 27. ágúst.
Eyþór hefur verið í ungmennalands-
liðinu í langan tíma og hefur náð
góðum árangri bæði innanlands og
erlendis.
Hann er meðal annars ríkjandi Ís-
landsmeistari í sínum flokki, bikar-
meistari, sigraði opna hollenska
og opna skoska mótið, allt á þessu
tímabili. Eyþór verður eini fulltrúi
Íslands á þessu móti, en hann keppir
í -65 kg flokki.
Þetta er í annað sinn sem Íslendingur
keppir á þessu móti, en fyrir tveimur
árum keppti Keflvíkingurinn Ágúst
Kristinn Eðvarðsson á sama móti.
ÍÞRÓTTA- OG TÓMSTUNDARÁÐ
ÓSKAR EFTIR STEFNUMÓTUN
TÓMSTUNDAFÉLAGA Í REYKJANESBÆ
Íþrótta- og tómstundráð óskar eftir því að forsvarsmenn tómstunda-
félaga í Reykjanesbæ komi saman og fari yfir hver séu brýnustu verk-
efnin í náinni framtíð og að hugað verði að stefnumótun í starfi sínu.
Óskað er eftir að sent verði á íþrótta- og tómstundafulltrúa á net-
fangið hafthor.birgisson@reykjanesbaer.is fyrir 15. september nk.
Fulltrúum gefst svo kostur á að fylgja eftir
stefnumótun á fundi
ÍT ráðs í byrjun október.
Aron, Samúel og Sindri í landsliðshópnum
■ U21 landsliðshópurinn sem
mætir Albaníu þann 4. september
næstkomandi á Víkingsvelli hefur
verið valinn. Þrír Suðurnesjamenn
eru í hópnum en það eru þeir Aron
Freyr Róbertsson sem leikur með
Grindavík, Samúel Kári Friðjóns-
son leikmaður Valerenga í Noregi og
Sindri Kristinn Ólafsson sem leikur
með Keflvíkingum.
Leikurinn verður fyrsti leikur liðsins
í undankeppni Evrópumóts U21 árs
landsliða árið 2019.