Víkurfréttir - 24.08.2017, Page 24
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Fornbílaklúbburinn
hjólar bara í lög-
reglustjórann.
Mundi
SÍMI 421 3811 – KEFLAVÍK
31. ágúst – 2. sept.
afsláttur
af öllum vörum
nema af tilboðsvöru
KAUPAUKI
Með öllum margskiptum glerjum fylgir
annað par FRÍTT með í sama styrkleika.
Beinum sjónum
að sjónum
■ Í þessu dásemdarveðri sem hefur
verið í sumar og hef ég notið þess
að ganga og hjóla á fallegu strand-
leiðinni okkar hér í Reykjanesbæ.
Ég segi það fullum fetum að þessi
skemmtilega gönguleið hefur stór-
bætt lífsgæði mín, ég sæki andlega
og líkamlega næringu í fallegt og
margbreytilegt umhverfið, hvort
sem dagarnir eru sólríkir og lygnir
eða þungbúnir og hvassir.
Það var sérstaklega skemmtilegt nú
í vikunni að fylgjast með makrílbát-
unum að veiðum nánast við fjöru-
borðið í Keflavíkinni og sjá hafnirnar
iða af lífi frá morgni til kvölds. Ég hef
lengi átt þann draum að glæða strand-
leiðina meira lífi, fá okkur bæjarbúa
og gesti okkar meira að sjónum. Ég
er nýkomin frá sjávarborginni Seattle
í Bandaríkjunum og þar naut ég þess
að ganga meðfram sjónum, skoða mig
um á alls konar mörkuðum með fersk-
an fisk, grænmeti, ávexti og ýmsan
listvarning. Þar voru veitingastaðir,
kaffihús, barir og söfn þar sem gestir
gátu notið matar og drykkjar og fallega
sjávarútsýnisins. Við þurfum reyndar
ekki að líta út fyrir landsteinana til
að finna dæmi um iðandi mannlíf við
sjávarsíðuna - Grandinn í Reykjavík
er nærtækara dæmi. Þar hefur orðið
gríðarlegur viðsnúningur á örfáum
árum og glæsileg uppbygging marg-
víslegrar starfsemi með iðandi mann-
lífi í áður yfirgefnu húsnæði.
Strandleiðin okkar er gríðarleg auð-
lind, útsýnið fagurt með lokkandi að-
dráttarafl. Á köflum hennar er útsýnið
hinum megin því miður þó ekki alveg
jafn glæsilegt, tóm niðurnýdd hús og
vélarusl. Ég vil þó taka sérstaklega
fram að margt gott hefur verið gert,
smábátahöfnin í Grófinni, svæðið í
kringum Duus húsin og neðanverð
Hafnargatan hafa tekið stakkaskiptum
á umliðnum árum.
Mig langar svo í meira svoleiðis. Mig
langar til að nýta gömlu niðurnýddu
húsin og glæða þau lífi. Ég hef áður
nefnt gömlu sundlaugina á þessum
vettvangi og svæðið þar í kring, þar
eru ótrúleg tækifæri til þess að skipu-
leggja „mannlífsaukandi„ starfsemi.
Eins svæðin þegar komið er bæði að
Keflavíkurhöfn og Njarðvíkurhöfn.
Gamlar bensínstöðvar og verkstæði á
stórkostlegum útsýnisstöðum hrein-
lega bíða eftir nýju hlutverki.
Því segi ég - beinum sjónum okkar að
sjónum - þar er sannarlega verðmæti
að finna.
LOKAORÐ
Ragnheiðar Elínar
Rotaði lögregluþjón og
rændi bíl af vegfaranda
●● Eftirför●endaði●með●handtöku●í●Flugstöð●Leifs●Eiríkssonar
■ Lögregluþjónn var sleginn í rot
og árásarmaðurinn rændi í kjölfarið
bifreið af vegfaranda á Reykjanes-
braut og hélt á flótta. Atvikið átti sér
stað á sunnudag. Lögreglan á Suður-
nesjum veitti manninum eftirför
sem endaði með því að flóttabif-
reiðinni var ekið á anddyri Flug-
stöðvar Leifs Eiríkssonar. Maðurinn
hljóp inn í flugstöðina og hafði í
hótunum við fólk áður en hann var
handtekinn af lögreglu.
Atburðarásin hófst við Grinda-
víkurveg þar sem bifreið mannsins
var mæld á 150 km. hraða í glæfra-
akstri. Ökumaðurinn sinnti ekki
stöðvunarmerkjum lögreglu og ók á
miklum hraða eftir Reykjanesbraut
til Reykjanesbæjar. Bifreiðin ók
heilan hring í hringtorgi á Reykja-
nesbraut við Grænás með lög-
regluna á hælunum. Bifreiðinni var
einnig ekið á miklum hraða í gengum
framkvæmdasvæði, bæði við Þjóð-
braut og einnig við Aðalgötu. Þar varð
bifreiðin óökufær eftir árekstur við
umferðarmerkingar á framkvæmda-
svæðinu.
Ökumaðurinn kom út úr bifreið sinni
og lét eins og hann ætlaði að gefast
upp en kýldi svo lögreglumann þann-
ig að lögregluþjónninn rotaðist. Í
framhaldinu hljóp maðurinn að bif-
reið sem var stopp í röð á svæðinu,
barði á rúður og öskraði á ökumann-
inn. Þá reif maðurinn upp hurð á
bílnum og dró ökumanninn, konu, út
úr bílnum og hélt áfram flótta sínum
undan lögreglunni. Lögreglan elti
manninn uppi og náði honum í flug-
stöðinni.
Lögreglan segir atburðinn mjög al-
varlegan en hún gat ekki yfirheyrt
manninn fyrr en daginn eftir. Lög-
reglan hefur ekki veitt nánari upplýs-
ingar um málið en boðar tilkynningu
um atvikið sem þá verður birt á vf.is.
Frá vettvangi sl. sunnudag.