Víkurfréttir


Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 1

Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M • fimmtudagur 7. september 2017 • 35. tölublað • 38. árgangur Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is auðveldar smásendingar eBOX flytur minni sendingar frá Evrópu til Íslands. Sendingin þín kemur heim með fyrstu ferð. Auðvelt og fljótlegt. Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA SMÆRRI SENDINGAR einföld reiknivél á ebox.is F ÍT O N / S ÍA Stuðningur bæjarbúa er ómetanlegur Hálfrar aldar afmæli Tjarnarsels fagnað allt árið 1814 Kosning meðal íbúa sveitarfélag- anna Garðs og Sandgerðis fer fram þann 11. nóvember nk. um sam- einingu sveitarfélaganna. Snemma í sumar skipuðu bæjarstjórnir sveitar- félaganna 6 manna samstarfsnefnd um sameiningu og hefur nefndin skilað áliti ásamt skýrslu þar sem fram koma ýmsar upplýsingar um málið. Bæjarstjórnir Garðs og Sand- gerðis hafa báðar fundað tvívegis um málið. Á fundi bæjarstjórnanna á þriðjudag, 5. september, var til- laga samstarfsnefndar um kjördag staðfest. Á heimasíðu sveitarfélaganna má nálgast kynningarefni um málið fram að kosningu. Kosning íbúa sveitar- félaganna fer samkvæmt lögum um kosningar til sveitarstjórna. Athygli er vakin á því að atkvæðagreiðsla utan kjörfundar hefst þann 18. september hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum og á bæjarskrifstofum Sandgerðis og Garðs. Verði að sameiningu Sandgerðis- bæjar og Sveitarfélagsins Garðs mun sameinað sveitarfélag fá 100 millj- óna króna framlag frá Jöfnunarsjóði sveitarfélaga. Fjármunirnir eru til að standa undir kostnaði við endur- skipulagningu á þjónustu samein- aðs sveitarfélags og verður greidd á fjórum árum Í tilkynningu á heimasíðum Garðs og Sandgerðis eru íbúar sveitarfélaganna hvattir til að kynna sér málið og taka virkan þátt í atkvæðagreiðslunni þann 11. nóvember og hafa þannig áhrif á framtíðarskipan sveitarfélaganna. ■ Stjórn United Silicon hefur gefið út að verksmiðja United Silicon í Helguvík verður ekki ræst að nýju næstu þrjá mánuði en áður hafði Umhverfisstofnun sent félaginu bréf um að verksmiðjunni sé ekki heimilt að endurræsa ljósbogaofn hennar nema með skriflegu leyfi stofnunarinnar. „Stjórn félagsins vinnur auk þess að því að styrkja innviði félagsins og gerir ekki ráð fyrir að koma þurfi til uppsagna starfsfólks. Hluti þess mun vinna að endurbótum á vinnustaðnum auk þess sem kapp verður lagt á að nota næstu þrjá mánuði til að styrkja starfsfólk í störfum sínum með því að auka þjálfun og fræðslu á meðan hefðbundin verkefni liggja niðri. Mannauður félagsins er lykilatriði til að tryggja framtíðarrekstur verk- smiðjunnar,“ segir í tilkynningu frá stjórn United Silicon. Þá segir einnig: „Í bréfi Umhverfisstofnunar (UST) frá 1. september var félaginu tilkynnt um þá niðurstöðu UST að endurræsing ofns verksmiðjunnar sé óheimil nema með skriflegri heimild frá stofnuninni að loknum fullnægjandi endurbótum og ítarlegu mati á þeim. Stjórn félagsins tekur alvarlega þá miklu ábyrgð sem fylgir því að reka starfsemi sem þessa og vill gera það í góðri sátt við nærsamfélagið og eftir- litsaðila og í samræmi við ákvæði laga og starfsleyfis. Stjórn félagsins mun á næstu mánuðum vinna að endur- skipulagningu rekstrar til að tryggja rekstrarhæfni félagsins til frambúðar. Í því samhengi leggur stjórnin áherslu á að tryggja hagsmuni kröfuhafa fé- lagsins, starfsfólks þess og hag sveitar- félagsins af tekjum af rekstri félagsins. Hluti þess verkefnis er að tryggja fé- laginu fjármagn til að ráðast í allar nauðsynlegar úrbætur til að bæta rekstur verksmiðju félagsins. Áður hafði United Silicon í svörum til UST veitt upplýsingar um fjöl- mörg úrbótaverkefni sem ætlunin er að ráðast í á greiðslustöðvunartíma. Ákvörðun UST kallar á enn frekari greiningu á mögulegum úrbótum og tímasetta áætlun um þær. Multiconcult er norsk ráðgjafarverk- fræðistofa í fremstu röð á Norður- löndum og hefur unnið með félag- inu frá því síðasta vor og mun halda áfram að vera lykilráðgjafi félagsins í endurbótaferli næstu mánaða. Multi- consult fékk Norsku loftgæðarann- sóknastofnunina (NILU) til liðs til að rannsaka og greina útblástur frá verksmiðjunni og mun það starf halda áfram.“ ●● Verksmiðja●United●Silicon●ekki●ræst●næstu●þrjá●mánuði Kísilverið svæft til jóla Kosið um samein- ingu Sandgerðis og Garðs 11. nóvember Bæjarstjórnir Garðs og Sandgerðis hafa báðar fundað tvívegis um málið. Á fundi bæjarstjórnanna á þriðjudag, 5. september, var tillaga samstarfs- nefndar um kjördag staðfest. Myndin er frá fundi bæjarstjórnar Garðs. Kísilver United Silicon í Helguvík. VF-mynd:Hilmar Bragi LJÓSANÓTT SUÐURNESJAMAGASÍN Á HRINGBRAUT OG VF.IS Ljósanæturstökk! Nokkur hundruð krakkar mættu í sundlaugarpartý í Sundmiðstöð Keflavíkur á Ljósanótt. Þessi unga snót sýndi flotta takta þegar hún tók glæsilegt stökk fyrir framan myndavélina hjá Sólborgu Guðbrandsdóttur.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.