Víkurfréttir - 07.09.2017, Page 1
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
• fimmtudagur 7. september 2017 • 35. tölublað • 38. árgangur
Eimskip | Korngörðum 2 | 104 Reykjavík | Sími 525 7000 | www.ebox.is
auðveldar smásendingar
eBOX flytur minni sendingar frá
Evrópu til Íslands. Sendingin þín
kemur heim með fyrstu ferð.
Auðvelt og fljótlegt.
Í STÓRUM SKIPUM RÚMAST LÍKA
SMÆRRI SENDINGAR
einföld reiknivél
á ebox.is
F
ÍT
O
N
/
S
ÍA
Stuðningur
bæjarbúa er
ómetanlegur
Hálfrar aldar
afmæli Tjarnarsels
fagnað allt árið 1814
Kosning meðal íbúa sveitarfélag-
anna Garðs og Sandgerðis fer fram
þann 11. nóvember nk. um sam-
einingu sveitarfélaganna. Snemma í
sumar skipuðu bæjarstjórnir sveitar-
félaganna 6 manna samstarfsnefnd
um sameiningu og hefur nefndin
skilað áliti ásamt skýrslu þar sem
fram koma ýmsar upplýsingar um
málið. Bæjarstjórnir Garðs og Sand-
gerðis hafa báðar fundað tvívegis
um málið. Á fundi bæjarstjórnanna
á þriðjudag, 5. september, var til-
laga samstarfsnefndar um kjördag
staðfest.
Á heimasíðu sveitarfélaganna má
nálgast kynningarefni um málið fram
að kosningu. Kosning íbúa sveitar-
félaganna fer samkvæmt lögum um
kosningar til sveitarstjórna. Athygli
er vakin á því að atkvæðagreiðsla utan
kjörfundar hefst þann 18. september
hjá Sýslumanninum á Suðurnesjum
og á bæjarskrifstofum Sandgerðis og
Garðs.
Verði að sameiningu Sandgerðis-
bæjar og Sveitarfélagsins Garðs mun
sameinað sveitarfélag fá 100 millj-
óna króna framlag frá Jöfnunarsjóði
sveitarfélaga. Fjármunirnir eru til
að standa undir kostnaði við endur-
skipulagningu á þjónustu samein-
aðs sveitarfélags og verður greidd á
fjórum árum
Í tilkynningu á heimasíðum Garðs og
Sandgerðis eru íbúar sveitarfélaganna
hvattir til að kynna sér málið og taka
virkan þátt í atkvæðagreiðslunni þann
11. nóvember og hafa þannig áhrif á
framtíðarskipan sveitarfélaganna.
■ Stjórn United Silicon hefur gefið
út að verksmiðja United Silicon í
Helguvík verður ekki ræst að nýju
næstu þrjá mánuði en áður hafði
Umhverfisstofnun sent félaginu
bréf um að verksmiðjunni sé ekki
heimilt að endurræsa ljósbogaofn
hennar nema með skriflegu leyfi
stofnunarinnar. „Stjórn félagsins
vinnur auk þess að því að styrkja
innviði félagsins og gerir ekki ráð
fyrir að koma þurfi til uppsagna
starfsfólks. Hluti þess mun vinna
að endurbótum á vinnustaðnum
auk þess sem kapp verður lagt á að
nota næstu þrjá mánuði til að styrkja
starfsfólk í störfum sínum með því
að auka þjálfun og fræðslu á meðan
hefðbundin verkefni liggja niðri.
Mannauður félagsins er lykilatriði
til að tryggja framtíðarrekstur verk-
smiðjunnar,“ segir í tilkynningu frá
stjórn United Silicon.
Þá segir einnig:
„Í bréfi Umhverfisstofnunar (UST) frá
1. september var félaginu tilkynnt um
þá niðurstöðu UST að endurræsing
ofns verksmiðjunnar sé óheimil nema
með skriflegri heimild frá stofnuninni
að loknum fullnægjandi endurbótum
og ítarlegu mati á þeim.
Stjórn félagsins tekur alvarlega þá
miklu ábyrgð sem fylgir því að reka
starfsemi sem þessa og vill gera það í
góðri sátt við nærsamfélagið og eftir-
litsaðila og í samræmi við ákvæði laga
og starfsleyfis. Stjórn félagsins mun
á næstu mánuðum vinna að endur-
skipulagningu rekstrar til að tryggja
rekstrarhæfni félagsins til frambúðar.
Í því samhengi leggur stjórnin áherslu
á að tryggja hagsmuni kröfuhafa fé-
lagsins, starfsfólks þess og hag sveitar-
félagsins af tekjum af rekstri félagsins.
Hluti þess verkefnis er að tryggja fé-
laginu fjármagn til að ráðast í allar
nauðsynlegar úrbætur til að bæta
rekstur verksmiðju félagsins.
Áður hafði United Silicon í svörum
til UST veitt upplýsingar um fjöl-
mörg úrbótaverkefni sem ætlunin er
að ráðast í á greiðslustöðvunartíma.
Ákvörðun UST kallar á enn frekari
greiningu á mögulegum úrbótum og
tímasetta áætlun um þær.
Multiconcult er norsk ráðgjafarverk-
fræðistofa í fremstu röð á Norður-
löndum og hefur unnið með félag-
inu frá því síðasta vor og mun halda
áfram að vera lykilráðgjafi félagsins í
endurbótaferli næstu mánaða. Multi-
consult fékk Norsku loftgæðarann-
sóknastofnunina (NILU) til liðs til
að rannsaka og greina útblástur frá
verksmiðjunni og mun það starf halda
áfram.“
●● Verksmiðja●United●Silicon●ekki●ræst●næstu●þrjá●mánuði
Kísilverið svæft til jóla
Kosið um samein-
ingu Sandgerðis og
Garðs 11. nóvember
Bæjarstjórnir Garðs og Sandgerðis
hafa báðar fundað tvívegis um málið.
Á fundi bæjarstjórnanna á þriðjudag,
5. september, var tillaga samstarfs-
nefndar um kjördag staðfest. Myndin
er frá fundi bæjarstjórnar Garðs.
Kísilver United Silicon í Helguvík. VF-mynd:Hilmar Bragi
LJÓSANÓTT
SUÐURNESJAMAGASÍN Á HRINGBRAUT OG VF.IS
Ljósanæturstökk!
Nokkur hundruð krakkar mættu í sundlaugarpartý í
Sundmiðstöð Keflavíkur á Ljósanótt. Þessi unga snót
sýndi flotta takta þegar hún tók glæsilegt stökk fyrir
framan myndavélina hjá Sólborgu Guðbrandsdóttur.