Víkurfréttir - 07.09.2017, Page 2
2 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
ALLTAF PLÁSS
Í B Í L N U M
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
DAGLEGAR FERÐIR ALLA VIRKA DAGA, TVISVAR Á DAG.
S U Ð U R N E S - R E Y K J A V Í K
SÍMI: 845 0900
Sími 412 2500 - sala@murbudin.is - www.murbudin.is
Kletthálsi Reykjavík
Reykjanesbæ
Allt í röð og reglu
G 003 28 lítra 49x36x28 cm 990 kr.
G 002 52 lítra 58x42x34 cm 1.790 kr.
G 201 108 lítra 71x52x44cm 2.990 kr.
Geymslubox
með hjólum
Box í barnaherbergið
11 lítra 630 kr.
23 lítra 1.290 kr.
G 804 2,5 lítra 23x16x14 cm 290 kr.
G 803 6 lítra 28,5x20x18,5 cm 390 kr.
G 802 11 lítra 35,5x24x20,5 cm 590 kr.
G 801 18 lítra 43x28x23,5 cm 790 kr.
G 805 23 lítra 50x33,5x27 cm 990 kr.
Geymslubox
Bannað að gista
utan skipulagðra
tjaldsvæða
●● Byggja●upp●aukna●
þjónustu●á●tjaldsvæðinu
■ Bæjarráð Voga samþykkti
fyrr í sumar, að tillögu Reykja-
nes Geopark, að lögreglusam-
þykkt Sveitarfélagsins Voga verði
breytt í samræmi við ábendingu
stjórnar Reykjanes Geopark,
þess efnis að bannað verði að
gista í bílum, tjaldvögnum, hús-
bílum, fellihýsum og hjólhýsum
utan skipulagðra tjaldsvæða.
Bæjarráð samþykkir einnig að
beina þeim tilmælum til annarra
sveitarfélaga á Suðurnesjum að
lögreglusamþykktir allra sveitar-
félaganna verði samræmdar,
með það að markmiði að auka
skilvirkni löggæslu á svæðinu.
Bæjarstjórn Voga er kominn til
baka úr sumarleyfi og á fyrsta
fundi sínum eftir sumarfrí var af-
greiðsla bæjarráðs samþykkt með
sjö atkvæðum bæjarstjórnar.
Bæjarstjórn afgreiddi á sama
fundi breytingar á deiliskipulagi í
sveitarfélaginu, m.a. á tjaldsvæð-
inu. Á næsta ári er gert ráð fyrir
að byggð verði upp aukin þjónusta
á tjaldsvæðinu, m.a. er gert ráð
fyrir að setja upp nokkur smáhýsi
til gistingar, auk lítillar þjónustu-
miðstöðvar.
■ Gert er ráð fyrir því að gatnagerð við Flugvelli klárist í október eða nóvem-
ber að sögn Guðlaugs H. Sigurjónssonar, sviðsstjóra Umhverfissviðs Reykja-
nesbæjar. Miklar framkvæmdir standa nú þar yfir en á svæðinu verður bíla-
og flugtengd starfsemi, svo sem bílaleigur, bensínstöð og fleira. Þá verður ný
slökkvistöð Brunavarna Suðurnesja einnig á svæðinu.
„Það er búið að úthluta flestum
lóðunum. Nú á eftir að sortera úr
haugunum hérna og taka meðalgildi
mengunar í jarðveginum,“ segir Guð-
laugur, en í maí síðastliðnum stöðvaði
Heilbrigðiseftirlit Suðurnesja fram-
kvæmdirnar þegar gamlir rusla-
haugar frá bandaríska hernum voru
grafnir upp á svæðinu. Einnig fannst
tjara í jarðveginum. „Öll mengun er
komin upp á yfirborðið en það eru
einhver ákveðin efni yfir gildum sem
þarf að skoða. Nú er verið að endur-
mæla,“ segir Guðlaugur.
Íslenskir aðalverktakar eru fram-
kvæmdaaðili á svæðinu en kostnað-
aráætlun hljóðar upp á 500 milljónir
króna.
Serrano opnar veitingastað í Reykjanesbæ
■ Serrano mun opna glæsilegan veitingastað í verslunarmiðstöðinni í
Krossmóa, Reykjanesbæ snemma árs 2018. Leigusamningur hefur verið
undirritaður milli Serrano og fasteignafélagsins Urtusteins ehf. Húsnæðið
er 176 fermetrar og verður veitingastaðurinn staðsettur þar sem Dýra-
bær hefur verið og mun hafa sér inngang af bílastæðum norðan megin
verslunarmiðstöðvarinnar auk aðgengis úr sameign. Serrano fær rýmið
afhent í lok september og hefjast þá framkvæmdir við að innrétta staðinn.
Staðurinn mun svo opna snemma árs 2018, segir í frétt frá Urtusteini.
Serrano er ein vinsælasta skyndi-
bitakeðja landsins, sem býður uppá
hollan og ferskan skyndibita með
mexíkósku ívafi. Serrano er íslensk
keðja sem stofnuð var árið 2002.
Staðurinn í Krossmóa verður tíundi
veitingastaður Serrano og annar
staðurinn utan höfuðborgarsvæðis-
ins. Gera má ráð fyrir fjórum til
fimm stöðugildum við staðinn.
„Það er spennandi að geta loks
opnað stað í Reykjanesbæ. Við
höfum fengið margar áskoranir í
gegnum tíðina og því velt þessu lengi
fyrir okkur. Við vildum fá aðgengi-
legt húsnæði á góðum stað í bænum
og teljum við Krossmóa uppfylla
þau skilyrði frábærlega. Við erum
afskaplega spennt fyrir þessu,“ segir
Emil Helgi Lárusson stofnandi og
eigandi Serrano.
„Við erum mjög ánægðir með
þennan samning og teljum að
það felist í því viðurkenning fyrir
Krossmóa og aukin tækifæri til að
þjónusta viðskiptavini okkar. Við
vitum að íbúar Suðurnesja þekkja
þjónustu og vöruframboð Serrano
og það er ánægjulegt að geta aukið
framboð og þjónustu hjá okkur hér
á svæðinu. Verslunarmiðstöðin var
stækkuð árið 2008 og hýsir m.a.
verslanir Nettó, ÁTVR, Lindex, Bíla-
naust, Lyfju og Dýrabæ, auk þess að
vera með þjónustufyrirtæki í hús-
inu. Húsið er um 10.000 fermetrar
og staðsett í hjarta bæjarins. Við
bjóðum nýjan og glæsilegan veit-
ingastað velkominn á Suðurnes,“
segir Skúli Skúlason, framkvæmda-
stjóri Urtusteins fasteignafélags.
Leggur áherslu á mikilvægi upp-
byggingar Helguvíkurhafnar
- sem farmflutningahafnar fyrir Suðurnes
■Bæjarráð Sveitarfélagsins Garðs
leggur áherslu á mikilvægi upp-
byggingar Helguvíkurhafnar sem
farmflutningahafnar fyrir Suður-
nes og hvetur stjórnvöld til að
veita áformum um uppbyggingu
hafnarinnar brautargengi í sam-
gönguáætlun 2018 til 2021.
Greinargerð frá hafnarstjóra Helgu-
víkurhafnar var tekin fyrir á fund-
inum í tengslum við Samgöngu-
áætlun 2018 til 2021, þar sem fjallað
er um uppbyggingaráform hafnar-
innar og mikilvægi þess að sveitar-
félögin á Suðurnesjum styðji við
þau.
Bæjarráð og bæjarstjórn Voga hefur
einnig tekið málið fyrir og er sam-
mála um mikilvægi uppbyggingar
Helguvíkurhafnar sem farmflutn-
ingahafnar landshlutans og hvetur
fjárveitingarvaldið til að veita upp-
byggingaráformum hafnarinnar
brautargengi í Samgönguáætlun
2018 til 2021.
Framkvæmdir við Flugvelli í fullum gangi
Frá Helguvíkurhöfn. VF-mynd: Hilmar Bragi
Séð yfir vinnusvæðið á Flugvöllum.