Víkurfréttir - 07.09.2017, Síða 6
6 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
SÚLAN
MENNINGARVERÐLAUN REYKJANESBÆJAR 2017
Menningarráð Reykjanesbæjar óskar eftir tilnefningum vegna menningarverð-
launa Reykjanesbæjar. Tilnefna skal einstakling, hóp og/eða fyrirtæki sem
unnið hafa vel að menningarmálum í bænum. Tilnefningum skal skilað í Ráðhúsið
Tjarnargötu 12 eða á netfangið: sulan@reykjanesbaer.is fyrir 1. október næst-
komandi. Upplýsingar um verðlaunahafa fyrri ára og nánari reglur má finna á vef
Reykjanesbæjar.
Menningarráð Reykjanesbæjar
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykja-
nesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími 421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar
Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002,
rannveig@vf.is // Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Sigfús Aðal-
steinsson, sími 421 0001, fusi@vf.is // Umbrot: Jóhann Páll Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís
Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000
eintök // Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið fusi@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á þriðjudegi fyrir útgáfudag,
sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á þriðju-
dögum. Sé fimmtudagur frídagur þá kemur blaðið út á miðvikudögum og skilafrestur auglýsinga færist fram um
einn sólarhring. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga. Blað sem kemur út á fimmtudegi er dreift á þeim degi
og föstudegi inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkurfrétta, vf.is. Það er mat
ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta. Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir,
hvort sem það birtist í blaðinu eða á vefsíðum Víkurfrétta.
Lesandi vikunnar í Bókasafni Reykjanesbæjar
„Það er gott að vaska
upp og vera með
hljóðbók í eyrunum“
Einar Valur Árnason
kennari við FS er lesandi
vikunnar í Bókasafni
Reykjanesbæjar
Hvaða bók ertu að lesa núna?
Þessa stundina er ég að lesa Með
lífið að veði eftir Yeonmi Park. Þetta
er átakanleg samtíma saga norður
kóreskrar stúlku sem flúði Norður-
Kóreu yfir til Kína í leit að frelsi.
Þetta er rosaleg bók.
Hver er þín eftirlætis bók?
Það er Ender´s Game eftir Orson
Scott Card. Sú bók minnir mig
mikið á góða dvöl í Danmörku.
Þetta er vísindaskáldskapur og
sú eina í þeim flokki sem ég hef
lesið. Góður vinur minn, Kristinn
Björnsson, mælti með henni þar
sem hann er mikill aðdáandi vís-
indaskáldskapar.
Hver er eftirlætis höfundurinn
þinn?
Þessa dagana er það Simon Sinek.
Ég hef nýlega hlustað á tvær bækur
eftir hann en það eru Start with why
og Leaders eat last, báðar ótrúlega
skemmtilegar. Þeir sem hafa áhuga
á stjórnun og markaðssetningu ættu
ekki að láta þær fram hjá sér fara.
Hvernig bækur lestu helst?
Það er enginn einn flokkur sem ég
les helst. Ég les eiginlega það sem
konan mín kemur með heim, ann-
ars hef ég verið að færa mig yfir í
hljóðbækur þar sem ég er svo lengi
að lesa. Það er gott að vaska upp og
vera með hljóðbók í eyrunum.
Hvaða bók hefur haft mest áhrif
á þig?
Ég myndi segja The Goal eftir
Eliyahu M. Goldratt. Sú bók hélt
mér á tánum í náminu mínu.
Hvaða bók ættu allir að lesa?
Mýrin eftir Arnald Indriðason er
auðvitað alltaf klassík og er eigin-
lega skyldulesning fyrir alla.
Hvar finnst þér best að lesa?
Það er alltaf best að leggjast upp í
rúm með krakkana, lesa kvöldsögu
og taka smá lögn. Annars hlusta
ég líka mikið á bækur og þá getur
maður verið á flakki.
Hvaða bækur standa upp úr sem
þú vilt mæla með?
Fyrst er það Bjarnastaðabangsarnir.
Þær eru stuttar, þægilegar og svo er
alltaf svo mikið að gerast hjá þeim.
Svo get ég hiklaust mælt með bók-
inni sem ég er að lesa núna, Með
lífið að veði, alveg mögnuð bók.
Ef þú værir fastur á eyðieyju og
mættir bara taka með þér eina
bók, hvaða bók yrði fyrir valinu?
Ef ég væri fastur á eyðieyju þyrfti ég
að taka með mér praktíska bók. Eftir
góða leit myndi ég velja Outdoor
survival skills eftir Larry Dean Ol-
sen. Ég hef ekki lesið hana en ég er
viss um að hún myndi koma sér vel.
Hvað er framundan í vetur?
Það sem er framundan í vetur er
að vera duglegri við að lesa, kenna
í Fjölbrautaskóla Suðurnesja. Svo
eigum við von á erfingja í nóvember
sem við erum spennt að hitta.
Körfuboltasýning var opnuð
í Bókasafni Reykjanesbæjar
á Ljósanótt. Á sýningunni
eru ýmsir munir, búningar,
myndir og úrklippur og fleira
úr körfuboltasögu Njarð-
víkinga og Keflvíkinga.
Bæði félögin hafa verið mjög sigursæl
í áratugi í efstu deild körfuboltans á
Íslandi og titlarnir líklega hvergi fleiri
á landinu bæði í karla- og kvenna-
flokki.
„Magn munanna sem bárust til
okkar stjórnast sennilega af nokkrum
þáttum en mig grunar að öflugt sam-
félag og enn öflugri körfuknattleikslið
vegi þyngst. Hlutfall Íslandsmeistara
í Reykjanesbæ er sennilega með því
hæsta á landinu. Meistaradeildir karla
og kvenna í Njarðvík og Keflavík hafa
átt og eiga enn glæstan feril og hér er
hægt að skyggnst aftur í tímann. Hér
má líta á búninga frá mörgum tíma-
bilum, bikara, medalíur, úrklippu-
bækur, fréttir, handbækur, söluvarn-
ing og margt fleira. Á skjánum má sjá
örfá fréttabrot og myndina „Upphafið
að stórveldinu“ í leikstjórn Keflvík-
ingsins Garðars Arnarssonar,“ sagði
Anna Margrét Ólafsdóttir, verkefna-
stýra á bókasafninu við opnun sýn-
ingarinnar sem er hin glæsilegasta.
Kjartan Már bæjarstjóri Reykjanes
bæjar mældi hæð sína en á veggnum
má sjá hæð margra körfuboltamanna
úr Keflavík og Njarðvík. Hæstur var
Jónas Jóhannesson en nú er það nýj
asti leikmaður UMFN, Ragnar Nath
anaelsson.
Séð inn í átthagastofuna á bókasafninu þar sem sýningin er.
Körfuboltasýning í bókasafninu
Hugleiðsluhádegi á Bókasafni Reykjanesbæjar
Bókasafn Reykjanesbæjar mun
bjóða upp á hugleiðsluhádegi alla
mánudaga í vetur, frá klukkan
12:15 til 12:30. Hugleitt verður á
neðri hæð safnsins í Búrinu, sem
er vinnuherbergi. Þeir sem vilja
taka þátt þurfa ekki að mæta með
neitt með sér en pullur og stólar
verða á staðnum.
Fyrsta hugleiðsluhádegið fer fram
mánudaginn 4. september. Tím-
arnir verða ýmist leiddir af Rann-
veigu Lilju Garðarsdóttur eða Önnu
Margréti Ólafsdóttur, sem báðar eru
menntaðir jógakennarar.
Gott er að taka sér smá stund fyrir
sig sjálfan í amstri dagsins til að
kyrra hugann og næra hann með
góðri orku fyrir daginn. Tímarnir
standa öllum til boða, að kostnaðar-
lausu.