Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 8
8 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Leikskólakennari
Hegðunarráðgjafi
Stuðningsfulltrúi
Starfsmaður á heimili fatlaðra barna
Þroskaþjálfi
LAUS STÖRF
Umsóknum í öll ofangreind störf skal skilað á vef Reykjanes-
bæjar undir Stjórnsýsla: Laus störf. Þar eru jafnframt
nánari upplýsingar um auglýst störf og á Facebook síðunni
Reykjanesbær - laus störf.
LEIKSKÓLINN GARÐASEL
FRÆÐSLUSKRIFSTOFA
MYLLUBAKKASKÓLI
VELFERÐARSVIÐ
MYLLUBAKKASKÓLI
Hægt er að leggja inn almenna umsókn á sama stað. Þeim er komið til
stofnana sem eru í leit að starfsfólki.
Almennar umsóknir eru geymdar í gagnagrunni okkar í sex mánuði.
VIÐBURÐIR
DUUS SAFNAHÚS - FJÓRAR NÝJAR SÝNINGAR
Horfur í Listasal, Glyttur í Gryfjunni, Blossi í Bíósal og Próf/Test í
Stofunni. Þrjár aðrar sýningar í húsunum.
Opið alla daga kl. 12:00 til 17:00.
HLJÓMAHÖLL - VIÐBURÐIR FRAMUNDAN
Amabadama - 7. september
Eftirherman og orginallinn - 14. september
Dúndurfréttir - 28. september
Sólmundur Friðriksson, útgáfutónleikar - 29. september
Nánari upplýsingar og miðasala á hljomaholl.is.
FORELDRAFÆRNINÁMSKEIÐ
Reykjanesbær býður upp á námskeiðið „Uppeldi sem virkar – færni
til framtíðar“ fyrir foreldra tveggja ára barna. Sjá nánar á www.reykja-
nesbaer.is. Hægt verður að velja úr fjórum námskeiðum, sem hefjast:
a. 11. september kl.17:00-19:00
c. 16. október kl.17:00-19:00
b. 25. september kl.19:30-21:30
d. 30. október kl.17:00-19:00
Guðni Ágústsson og Jóhannes grínari koma fram á Suðurnesjum. Hafa slegið í gegn í sýningunni „Eftirherman og orginalinn“
„Við hófum samstarf í fyrra og
komum tuttugu sinnum fram og
alltaf fyrir fullu húsi,“ segir Guðni
Ágústsson, fyrrverandi ráðherra og
alþingismaður en orginalinn í sýn-
ingu með eftirhermunni og grínist-
anum Jóhannesi Kristjánssyni. Þeir
félagar verða með tvær sýningar á
Suðurnesjum, í Hljómahöll 14. sept.
og í Salthúsinu í Grindavík 16. sept.
Jóhannes hefur verið skemmtikraftur
í fjóra áratugi og er fræg eftirherma.
Byrjaði ferilinn eiginlega í bítla-
bænum Keflavík þegar hann var í
Fjölbrautaskóla Suðurnesja. „Ég var
hjá honum Jóni Böðvarssyni sem þá
var skólameistari, ógleymanlegur
maður og mikill snillingur,“ segir Jói
og tekur góða eftirhermu af Jóni fyrir
fréttamenn VF.
Guðni var „fórnarlamb“ hans í mörg
ár og Jói náði sunnlendingnum og
sveitamanninum mjög vel en Guðni
hefur þó vera með sérstakan „tal-
anda“ og þunga rödd. Eitthvað sem
lá vel fyrir Jóhannesi að ná. Guðni er
sammála því. „Hann hefur nú haldið
mér við. Flestir stjórnmálamenn eiga
nú að vera gleymdir þegar það er
svona langt síðan þeir hættu eins og
ég. En það var lengi skorað á okkur
í sitthvoru lagi. Komið fram saman
strákar, farið um landið og haldið
samkomur, var sagt við okkur. Hann
hermir eftir og þú segir sögur af þjóð-
frægu fólki,“ segir Guðni og bætir
við: „Svo bara allt í einu datt þetta
af himnum ofan. Við fórum af stað í
apríl í fyrra. Héldum átján sýningar
fyrir troðfullu húsi. Stendur í tvo
tíma með hléi og það er mikið hlegið.
Eiginlega ótrúlega mikið.“
Jóhannes segist ekki vera hissa á því
að það sé hlegið að Guðna. „En það
er kannski skrýtnara að hlæja að mér.
En já, maður fer vítt um völlinn og
þetta kallast svona sagnakvöld. Ég fer
tíu þúsund ár aftur í tímann, þegar
það er verið að lýsa því hvernig Guðni
varð til. David Attinborough kemur
með skýringu á því, sem þið sjáið bara
á showinu. Þetta er svona héðan og
þaðan og alveg til nútímans og lífinu
sjálfu, bara í salnum eða hvað sem er.
Ef ég sé einhvern þekktan aðila frá því
svæði sem við erum á, læt ég hann
vaða á hann. Guðni fer kannski meira
beint í eitthvað, ég fer svona um víðan
völl líka, svo hermi ég eftir og geri
eitthvað skemmtilegt.“
Guðni, þið eruð glettilega líkir og
svo getur hann hermt eftir þér.
Getur þetta ekki orðið vandræða-
legt?
„Jú, jú, þetta var bara mjög hættulegt
á tímabili. Ég get sagt þér að margir
erlendir ráðherrar sem heimsóttu mig
í minni ráðherratíð, sögðust öfunda
mig að eiga svona nákvæmt eintak
af sjálfum mér. Ég hefði getað sent
Jóhannes á heilu samkomurnar, hann
hefði geta haldið mínar ræður og oft
drakk hann viskí á börum, bara út
á mig.
Svo náttúrlega minnist ég þess þegar
móðir hans, hún tók feil á okkur. Ég
kom einu sinni á Heilsuhælið í Hvera-
gerði. Hún var þar, stökk upp og
sagði: „Nei, ertu kominn Jói minn?“
Eins var það með barnabörn mín, þau
fóru og hnipptu í jakkann hans Jó-
hannesar og spurðu hvort hann vildi
ekki taka sig upp.“
Fimmtugasta starfsár Kvennakórs Suðurnesja að hefjast
- Opin æfing miðvikudaginn 13. september
■ Kvennakór Suðurnesja var stofn-
aður 22. febrúar 1968 og heldur
því upp á 50 ára afmæli á næsta
ári. Í tilefni af stórafmælinu verða
haldnir glæsilegir tónleikar í Stapa
á afmælisdaginn, 22. febrúar 2018,
þar sem kórinn, ásamt einsöngv-
urum og hljómsveit, mun flytja lög
og texta eftir Suðurnesjamenn, bæði
innfædda og aðflutta. Má þar nefna
Rúna Júl, Jóhann Helgason, Magnús
Þór, Gunna Þórðar og Ingibjörgu
Þorbergs o.fl. auk laga með yngri
hljómsveitum eins og Valdimar, Of
Monsters and Men og Klassart.
Í næstu viku hefjast æfingar fyrir af-
mælistónleikana og verður kórinn
með opna æfingu í KK-salnum,
Vesturbraut 17 – 19, miðvikudaginn
13. september kl. 20 þar sem nýjar
konur geta mætt og prófað að syngja
með eða bara hlustað og kynnt sér
starfið. Í lok æfingar verður Pálínu-
boð að hætti kórkvenna. Allar kon-
ur sem vilja taka þátt í skemmtilegu
söngstarfi í góðum félagsskap eru vel-
komnar á æfinguna. Eina skilyrðið er
að geta sungið.
Það er fleira framundan á starfsárinu
en stórafmæli, en í vor er ætlunin
að fara í söngferðalag til Færeyja og
halda þar tónleika þar sem fluttur
verður hluti af Suðurnesjaprógramm-
inu af afmælistónleikunum og jafnvel
skellt í nokkur færeysk lög.
Það er því skemmtilegt og spennandi
ár framundan og tilvalið fyrir konur
sem hafa áhuga á söng og vilja vera
með í þessu frábæra starfi að mæta á
opna æfingu næsta miðvikudag.
Fórnarlambið og grínarinn í dúett
Jóhannes og Guðni í Hljómahöllinni í Reykjanesbæ.
VF-mynd/pket.
Gunnar leikstýrir
næsta verkefni Leik-
félags Keflavíkur
■ Gunnar Helgason verður leikstjóri
næsta verkefnis Leikfélags Keflavíkur.
Gunnar hefur áður leikstýrt hjá leikfélag-
inu þegar Ávaxtakarfan var sýnd árið
2014. Það verk naut mikilla vinsælda.
Áætlað er að setja upp barnasýningu sem
frumsýnd verður í október næstkomandi.
Kynningarfundur verður haldinn mánu-
daginn 11. september næstkomandi kl. 20 í
Frumleikhúsinu að Vesturbraut 17 þar sem
allir eru velkomnir, en miðað er við að þátt-
takendur hafi náð 18 ára aldri.