Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 9
9fimmtudagur 7. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
A U G LÝ S I N G U M N Ý T T D E I L I S K I P U L A G
Á K E F L A V Í K U R F L U G V E L L I
Skipulagsnefnd Keflavíkurflugvallar auglýsir hér með, í samræmi við
1. mgr. 41. greinar skipulagslaga nr. 123/2010, tillögu að deiliskipulagi
á flugþjónustusvæði Keflavíkurflugvallar. „Austursvæði — Háaleitishlað “.
Deiliskipulagssvæðið er um 108 ha og liggur í suðausturjaðri Keflavíkurflugvallar.
Það afmarkast til suðurs af umráðasvæði Landhelgisgæslunnar, til vesturs
af flugbrautarsvæði, til norðurs af deiliskipulagi NA-svæðis og til suðausturs
af götunni Þjóðbraut að skipulagssvæði Reykjanesbæjar. Deiliskipulagið byggir
á aðalskipulagi Keflavíkurflugvallar 2013–2030 sem nú er í staðfestingarferli.
Deiliskipulagstillaga þessi verður til sýnis á skrifstofu skipulagsfulltrúa
Keflavíkurflugvallar í Flugstöð Leifs Eiríkssonar og á heimasíðu Keflavíkur-
flugvallar frá og með 4. september 2017.
www.kefairport.is/Um-felagid/Throun/Deiliskipulag/
Þeir sem telja sig eiga hagsmuna að gæta gefst kostur á að gera athugasemdir við
deiliskipulagstillöguna. Frestur til að gera athugasemdir rennur út 18. október 2017.
Skila skal skriflegum athugasemdum til: Skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar,
Flugstöð Leifs Eiríkssonar, 235 Keflavíkurflugvelli eða sveinn.valdimarsson@isavia.is.
Keflavíkurflugvelli, 28. ágúst 2017
F.h. Skipulagsnefndar Keflavíkurflugvallar
Sveinn Valdimarsson, skipulagsfulltrúi Keflavíkurflugvallar.
Bæjarstjórn Sveitarfélagsins Voga samþykkti þann 30. ágúst 2017 að auglýsa eftirfarandi tillögur að
breytingu á deiliskipulagi, skv. 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010:
Iðnaðarsvæði við Vogabraut.
Breytingin felst í eftirfarandi: Lóðirnar við Heiðarholt 2, 2a og 4 eru sameinaðar í eina lóð, Heiðar-
holt 2. Stærð sameinaðar lóðar er 6.725 m2. Vegna sameiningar lóðanna eru gerðar breytingar á
bygginarreitum og verður einn byggingarreitur innan sameinaðar lóðar. Stærð og lega byggingar-
reitsins er í samræmi við byggingarreiti aðliggjandi lóða til suðurs, sem og bindandi byggingarlína.
Sjálfsafgreiðslustöð eldsneytis sem gert var ráð fyrir á lóðinni fellur út eftir breytinguna og er því
ekki þörf fyrir einstefnu aðkomuleið akandi umferðar inn á lóðina frá Vogabraut og fellur hún út.
Jarðvegsmön norðan Vogabrautar mun framlengjast um 50 m. Gert er ráð fyrir húsgerð A innan
sameinaðar lóðar og verður nýtingarhlutfall það sama og fyrir húsgerð A eða 0,4.
Iðndalur.
Breytingin felst í eftirfarandi: Bætt er við aðkomuleið að baklóðum á milli lóða við Iðndal 15 og 23.
Heitisbreyting er gerð á lóðum við Iðndal 5 og 5A sem verða Stapavegur 5 og 5A. Breyting er gerð
á lóðarmörkum við Stapaveg 5, 5A og 7. Lóð við Stapaveg 7 stækkar til suðurs og minnka lóðir við
Stapaveg 5 og 5A vegna þess. Lóð við Stapaveg 7 stækkar úr 7.457 m² í 8.294 m². Lóð við Stapaveg
5 minnkar úr 1.075 m² í 813 m². Lóð við Stapaveg 5A minnkar úr 2.078 m² í 1.524 m². Vegna breyttra
lóðarmarka breytast byggingareitir og aðkoma akandi umferðar að lóðum við Stapaveg 5 og 5A.
Lóðarmörk og lóðarstærð við Iðndal 1 eru leiðrétt. Nýtingarhlutfall lóða hækkar úr 0,4 í 0,5.
Tillögurnar eru settar fram á uppdrætti ásamt greinargerð og vísast til þeirra um nánari upplýsingar.
Tillögurnar verða til sýnis á skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar frá og með með
þriðjudeginum 5. september 2017 til og með þriðjudagsins 17. október 2017. Tillögurnar eru einnig
aðgengilegar á vef Sveitarfélagsins Voga, www.vogar.is/Skipulag/Skipulag_i_kynningu/.
Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillögurnar.
Skila skal skriflegum athugasemdum til skrifstofu Sveitarfélagsins Voga, Iðndal 2, 190 Vogar eða á
netfangið skrifstofa@vogar.is eigi síðar en þriðjudaginn 17. október 2017.
Vogum, 5. september 2017
f.h. bæjarstjórnar,
Ásgeir Eiríksson, bæjarstjóri
AUGLÝSING
Um skipulag í Sveitarfélaginu Vogum.
Tillögur að breytingu á deiliskipulagi
■ Síðastliðinn fimmtudag voru
opnaðar fjórar nýjar sýningar í jafn-
mörgum sölum í Duus húsum og
buðu sýnendur upp á ljóðaupplestur
og tónlist. Í listasal er einkasýning
Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar,
Horfur. Í Gryfjunni sýnir Elísabet
Ásberg verk unnin úr silfri. Verkin
eru öll með skírskotun í undir-
djúpin og hæfa því rými Gryfjunnar
vel. Sýninguna nefnir hún Glyttur.
Í Bíósalnum hafa myndlistarkonan
Sossa og ljóðskáldið Anton Helgi
Jónsson sameinað krafta sína í hinni
erótísku sýningu Blossa. Sossa og
Anton hafa áður unnið skemmtilega
saman með mynd- og ljóðlist. Anton
Helgi las upp ljóð við opnunina. Í nýj-
asta rými Duus Safnahúsa, Stofunni,
sýnir tónlistarkonan Fríða Dís Guð-
mundsdóttir 57 olíumálverk sem hafa
að fyrirmynd 57 þungunarpróf. Með
sýningunni vill Fríða Dís vekja athygli
á því að barnalán sé ekki sjálfgefið og
hefur sýningin skírskotun í hennar
eigin reynslu. Eftir margar tilraunir
birtust loksins II strik á þungunar-
prófinu. Systkinin Fríða Dís og Smári
Guðmundsbörn úr Klassart fluttu
tónlist við opnunina.
Opnun listasýninga
í Duus húsum
FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222
Frá sýningu Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar.
Anton Helgi flutti ljóð á opnuninni fyrir gesti Duus húsa,
Sossa stendur við hlið hans og hlustar á frásögn hans.
Fríða Dís og Smári Guðmundsbörn fluttu tónlist
í sýningarsal Fríðu Dísar.
Gestir á sýningu Fríðu Dísar.
Sýningagestir skoða verk Elísabetar Ásberg.