Víkurfréttir - 07.09.2017, Side 12
12 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Hjartans þakkir til allra sem sýnt hafa okkur fjölskyldunni samúð,
styrk og aðstoð vegna veikinda og útfarar elskulegs eiginmanns,
föður, sonar og afa,
Tuma Hafþórs Helgasonar,
sem kvaddi okkur þann 8. ágúst sl. á líknardeild Landspítalans í
Fossvogi.
Sigrún Þorsteinsdóttir Elsa Skúladóttir
Sara Dís Tumadóttir Helgi Þór Jónsson
Helgi Týr Tumason
Lára Hafrún Tumadóttir
Brynjar Berg Tumason
Innilegar þakkir til ykkar allra sem sýnduð okkur samúð og hlýhug
við andlát og útför elskulegs eiginmanns míns,
föður og fósturföður,
Þorkels Indriðasonar,
(Kela í HF).
Njarðarvöllum 6, Njarðvík,
áður að Melteigi 4, Keflavík,
Unnur Óskarsdóttir
Sigurður Þorkelsson
Louise Steindal Webb
Marteinn Webb
FJÖLBREYTTIR MÖGULEIKAR Á SÖNGNÁMI
Laus pláss í söngdeild
Getum bætt við okkur nokkrum söngnemendum.
Mjög spennandi verkefni framundan.
Kennarar: Dagný Jónsdóttir, söngur
Jóhann Smári Sævarsson, söngur
Helga Bryndís Magnúsdóttir, meðleikur
Byrjendanámskeið fyrir 15 ára og eldri:
Hefur þig alltaf langað til að læra að syngja en haldið að þú getir það ekki?
Komdu þá á þriggja vikna námskeið fyrir byrjendur í söng og sjáðu hvort þetta er
eitthvað fyrir þig.
Eða kannski alveg í hina áttina..finnst þér gaman að syngja og hefur þú sungið allt
þitt líf? Komdu þá og lærðu grunntæknina í söng svo þú getir sungið áfram allt
þitt líf.
Námskeiðið verður haldið 13. september – 4. október og kostar 15.000 kr.
Kennt í einkatímum og hóptímum á léttan og skemmtilegan hátt.
Kennari: Jóhann Smári Sævarsson.
Söngnámskeið fyrir kórfólk:
Ert þú í kór og langar að geta sungið betur, lagað öndunina, verða ekki eins
þreytt(ur) eftir æfingar?
Eða hefur þig alltaf langað til að syngja í kór en hefur ekki þorað?
Komdu þá á fimm vikna söngnámskeið fyrir kórfólk
og við skulum kippa þessu í liðinn.
Námskeiðið fer fram 9. október – 11. nóvember og kostar 25.000 kr.
Kennd verður raddbeiting, öndun og grunnatriði í tónfræði og nótnalestri.
Kennt í einkatímum og hóptímum.
Kennari: Jóhann Smári Sævarsson.
Skólastjóri
Það var sannkölluð hátíð í bæ í Höfnum á sunnudag á Ljósa-
nótt en þá voru tónleikar í Kirkjuvogskirkju þar sem Elíza
Geirsdóttir Newman og KK komu fram.
■ Menningarfélagið í Höfnum var
með opið hús í gamla skólahúsinu
á Ljósanótt en þar kenndi margra
grasa eins og áður. Í þetta sinn fengu
gestir innsýn inn í líf og list Hafnar-
búans, hvernig hann upplifir sig og
sitt nánasta umhverfi, hvað brýst
fram og rekur á land umheimsins í
beljandi rokinu.
Valgerður Guðlaugsdóttir sýndi röð
vatnslitamynda sem hún nefnir „Ég
sé rautt“ og er upplifun hennar á um
hverfi sínu. Þá var í boði nýr varn
ingur frá Menningarfélaginu, m.a.
sérstakir Hafnabolir, derhúfur og
póstkort. Hafnir eiga marga velunn
ara og aðdáendur.
Sjónvarp Víkurfrétta sýndi frá tón
leikunum og ræddi við Elízu fyrir þá.
Hægt er að sjá það á vf.is og á Face
booksíðu Víkurfrétta.
Ljúfir tónar í Kirkjuvogskirkju á Ljósanótt
Kirkjan full af gestum sem fengu flotta tónleika.
KK fór á kostum í Kirkjuvogskirkju.
VF-myndir/pket.
Elíza söng nokkur lög og „hitaði“ upp fyrir KK.
Er slökkvitækið á sínum stað?
IÐAVELLIR 3 – 230 REYKJANESBÆR – SÍMI 420 2020 – ELDVARNIR.IS
YFIR 40 ÁRA REYNSLA AF SÖLU, EFTIRLITI OG ÞJÓNUSTU SLÖKKVITÆKJA
SLÖKKVITÆKI, ELDVARNARTEPPI, REYKSKYNJARAR
KOLSÝRUHLEÐSLA OG ÞOLPRÓFUN ÞRÝSTIHYLKJA