Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 13
13fimmtudagur 7. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
TILLAGA UM SAMEININGU
SVEITARFÉLAGSINS GARÐS OG SANDGERÐISBÆJAR
Samstarfsnefnd um sameiningu Sveitarfélagsins Garðs og Sandgerðisbæjar hefur tekið saman
greinargerð um sameiningu sveitarfélaganna. Á grundvelli hennar er það álit nefndarinnar að fram
eigi að fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um sameiningu sveitarfélaganna.
Álit nefndarinnar og greinargerð hafa verið rædd við tvær umræður í bæjarstjórnum sveitarfélag-
anna, án atkvæðagreiðslu, samkvæmt 2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Atkvæðagreiðsla um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna fer fram 11. nóvember 2017 í báðum
sveitarfélögunum. Við ákvörðun á kjördegi hefur þess verið gætt að tillagan verði kynnt íbúum
sveitarfélaganna með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara eins og áskilið er í 4. mgr. 119. gr. sveitar-
stjórnarlaga nr. 138/2011.
5. september 2017.
F.h. Sveitarfélagsins Garðs,
Magnús Stefánsson bæjarstjóri.
F.h. Sandgerðisbæjar,
Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri.
Skýrsla KPMG, “Sameining sveitarfélaga, sviðsmyndir um mögulega framtíðarskipan sveitarfélag-
anna” er aðgengileg á heimasíðum sveitarfélaganna; svgardur.is og sandgerdi.is.
S o r p e y ð i n g a r s t ö ð S u ð u r n e s j a s f.
B e r g h ó l a b r a u t 7 - 2 3 0 R e y k j a n e s b æ r
Botnösku- og
spilliefnaskýli 2017
Verkfræðistofa Suðurnesja ehf. fyrir hönd Sorpeyðingarstöð Suðurnesja sf. óskar eftir
tilboðum í verkið: “Sorpeyðingarstöð Suðurnesja – Botnösku- og spilliefnaskýli
2017”.
Verkið felst í að byggja 125 m² skýli sem ætlað er fyrir spilliefni, ásamt 66 m² skýli sem
ætlað er fyrir botnösku.
Báðum skýlunum skal skilað fullfrágengnum að utan og innan.
Þessu verki skal að fullu lokið eigi síðar en 22. janúar 2018.
Útboðsgögn á rafrænu formi verða afhent á skrifstofu Verkfræðistofu Suðurnesja ehf.,
Víkurbraut 13, Reykjanesbæ, frá og með fimmtudeginum 7. september 2017. Tilboð
verða opnuð á sama stað, föstudaginn 22. september 2017, kl. 11:00 að viðstöddum
þeim bjóðendum sem þess óska. Verkaupi áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum
telji hann þau utan ásættanlegs kostnaðarramma.
Reykjanesbær
opnaði bókhaldið
●● taka●skref●í●átt●til●framtíðar
■ Reykjanesbær steig stórt skref í
inn í framtíðina sl. föstudag og
opnaði bókhald bæjarins á heima-
síðu Reykjanesbæjar. Nú er hægt er
að skoða tekju- og gjaldaliði alveg
niður í einstaka birgja gegnum vef
Reykjanesbæjar. Nú er fyrsti árs-
fjórðungur ársins 2017 aðgengilegur
í Opna bókhaldinu og allt árið 2016.
Ársfjórðungum verður bætt við um
leið og árshlutauppgjör hefur verið
sent til Kauphallar í samræmi við
reglur um útgáfu skuldabréfa.
Helga María Finnbjörnsdóttir við-
skiptafræðingur í hagdeild Reykjanes-
bæjar segir markmiðið með opnun
bókhaldsins vera það að gera fjárhags-
upplýsingar aðgengilegar bæjarbúum
og öðrum áhugasömum. Einnig að
skýra frá ráðstöfun opinberra fjár-
muna sveitarfélagsins. „Stjórnendur
Reykjanesbæjar hafa fundið fyrir
auknum áhuga á rekstri bæjarfélags-
ins og gagnsæi í meðferð fjármuna.
Þetta er skref í því að svara því kalli.“
Við hönnun og uppsetningu Opna
bókhaldsins hefur sérstök áhersla
verið lögð á skýrt, einfalt og not-
endavænt viðmót þannig að ekki sé
þörf á mikilli fjármálaþekkingu til að
afla sér gagnlegra upplýsinga. Helga
segir kostina við opnun bókhaldsins
vera skýra. „Kostirnir við gagnsæi af
þessum toga eru margvíslegir. Með
auknu aðgengi að upplýsingum og
aðhaldi íbúa mun umræða verða upp-
lýstari, ákvarðanataka betri og lýð-
ræðisþátttaka aukast.“
Opna bókhaldinu er skipt í tvo hluta;
tekjur og gjöld. Tekjur eru brotnar
niður á málaflokka, þjónustuþætti og
einstaka tekjuliði og hægt er að skoða
heildartekjur valinna tímabila. Niður-
brot gjalda er sambærilegt en þar er
einnig hægt að skoða niðurbrot niður
á einstaka birgja.
Frá opnun bókhalds Reykjanesbæjar
í ráðhúsinu. VF-mynd/rannveig.
Mikið álag á starfsmanni
heimaþjónustu í Garði
■ Mikið álag er á starfsmanni
Sveitarfélagsins Garðs sem annast
heimaþjónustu í fullu starfi og
nokkur heimili bíða þess að fá
þjónustu. Með auknum íbúafjölda
í sveitarfélaginu mun þjónustuþörf
aukast, samhliða auknum kröfum
um markvissari stuðningsþjónustu
við þá sem þurfa á aðstoð að halda
til að geta búið á eigin heimilum.
Þetta kom fram á fundi bæjarráðs
Garðs þar sem félagsleg heima-
þjónusta var til umræðu og sat Una
Kristófersdóttir frá félagsþjónust-
unni fundinn undir dagskrárliðnum.
Lagt er til að sveitarfélagið ráði
starfsmann í 50% viðbótar stöðugildi
til að vinna að heimaþjónustu. Það
var samþykkt á fundinum.
Minni kostnaður af skóla-
gögnum en gert var ráð fyrir
■ Kostnaður Sveitarfélagsins Garðs
var minni en gert var ráð fyrir þegar
ráðist var í að hafa gjaldfrjálsan
grunnskóla og útvega nemendum
ókeypis skólagögn.
Í minnisblaði Magnúsar Stefáns-
sonar bæjarstjóra er vísað til sam-
þykktar bæjarráðs um að nemendur
Gerðaskóla fái til afnota skólagögn án
endurgjalds. Sveitarfélagið Garður var
aðili að örútboði Ríkiskaupa á skóla-
gögnum fyrir grunnskólanemendur.
Í minnisblaðinu er gerð grein fyrir
niðurstöðu örútboðsins, þar sem hag-
stæðasta tilboð felur í sér að kostnaður
sveitarfélagsins verði mun minni en
gert hafði verið ráð fyrir.
Fimmtudagskvöld kl. 20:00