Víkurfréttir - 07.09.2017, Qupperneq 15
15fimmtudagur 7. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
Hundaskítur og tyggjó
Árið 2005 fóru börn Tjarnasels á fund
Árna Sigfússonar, þáverandi bæjar-
stjóra, vegna þess að þau sáu ekki
lengur út á sjóinn vegna sjóvarnar-
garðsins og fannst vanta útsýnispall.
Útsýnispallurinn varð síðan að veru-
leika stuttu síðar. „Leikskólinn vinnur
mikið með lýðræði og þegar það
kemur eitthvað upp á þá ræðum við
það hvernig þau geti fylgt hugmynd-
unum sínum eftir.“ Til móts við Ráð-
hús Reykjanesbæjar er skilti, hannað
af börnum Tjarnarsels, þar sem veg-
farendur eru beðnir um að henda
hundaskít og tyggjó í ruslið. „Börnin
lentu oft í því í vettvangsferðum að
stíga í hundaskít og voru hneyksluð á
tyggjóinu. Við ræddum það hvað við
gætum gert í málunum og þau hönn-
uðu þetta skilti, bæjarstjórinn kom á
leikskólann þar sem börnin kynntu
málið og skiltið varð stuttu síðar að
veruleika. Í tilefni af stórafmæli leik-
skólans verður málþing haldið í Stapa
þann 22. september næstkomandi
þar sem aðal yfirskriftin er orðaforði.
„Orðaforði skiptir svo gríðarlega
miklu máli fyrir mál- og læsisþroska
barna og hvernig þeim gengur í námi.
Við leggjum gríðarlega mikla áherslu
á það alveg frá því þau byrja hérna
tveggja ára gömul.“ Í október verður
sýning sett upp í Átthagastofunni á
Bókasafni Reykjanesbæjar um sögu
leikskólans. Þar verða til sýnis gamlar
ljósmyndir af starfi leikskólans, leik-
föng og fleira sem nú er í varðveislu
Byggðasafnsins.
Á Tjarnarseli starfar öflugur faghópur
að sögn Árdísar og mun hann halda
áfram að byggja upp gott leikskóla-
starf næstu árin.
■ „Ég elska Pólland að mörgu leyti.
Pólland varð fyrir valinu því hér
eru ekki margir Íslendingar og ég
hélt ég fengi þá kannski fulla upp-
lifun á því hvernig það væri að
búa í öðru landi,“ segir Dominika
Wróblewska, en hún stundar nám í
læknisfræði við læknaháskólann í
Bialystok í Póllandi.
Dominika hefur búið á Íslandi síðan
hún var aðeins fimm ára gömul en
hana langaði að komast í aðra menn-
ingu, kynnast nýju fólki og prófa að
standa á eigin fótum í landinu sem
hún fæddist í. „Auðvitað var ein aðal
ástæða þess að Pólland varð fyrir val-
inu sú að ég get talað pólsku og að
fjölskylda mín búi á þessum slóðum.
Ég hafði möguleika á að fara í skóla
í Ungverjalandi en eftir að hafa farið
í heimsókn til Bialystok ákvað ég að
prófa að sækja um í Póllandi og komst
inn þar. “
Námið í Póllandi er svipað því á Ís-
landi að sögn Dominiku, en hún
byrjar á sínu þriðja ári í læknisfræð-
inni nú í haust. Hún segir Pólland
ólíkt Íslandi, það sé ódýrt, fátækt sé
meiri þar en á Íslandi og mismun-
andi hugsunarhættir og viðhorf fólks.
„Maður tekur eftir því þegar maður
kemur til Íslands hversu framarlega
við stöndum í ýmsu, svo sem mann-
réttindum og heilbrigðismálum og
þá verður maður þakklátur. Pól-
land er hægt og rólega að byggjast
upp og breytast og er þekkt fyrir gott
menntakerfi þar sem menntastigið
þykir hátt. Þar eru margir góðir há-
skólar og kennarar og einnig margir
fallegir og söguríkir staðir. “
Eftir námið stefnir Dominika á það að
koma aftur til Íslands í einhvern tíma.
„En svo veit maður aldrei.“
Lærir læknisfræði
í sínu fæðingar-
landi
Að þessu leyti hefur þetta
breyst mjög mikið, en við
erum kannski líka að gera
meiri kröfur til okkar.
Það er mikill metnaður í
leikskólastarfi í Reykja-
nesbæ.“
Vinkonur fagna því að
hafa klárað lokapróf.
Dominika ásamt bekkjarfélaga sínum.
Fish House slær í gegn með fish and chips
●● Leyniuppskriftin●er●vinsæl●hjá●Kára●Guðmundssyni●eiganda●Fish●House
■ „Við erum að fá fólk aftur og
aftur hingað,“ segir Kári Guð-
mundsson, eigandi veitingastaðar-
ins Fish House í Grindavík en
staðurinn er orðinn þekktur fyrir
fish and chips eftir að Kári tók við
rekstrinum fyrir rúmlega ári síðan.
„Ég hef heyrt að fólki finnist gaman
að keyra Suðurstrandarveginn og
koma til Grindavíkur. Hér eru fullt
af veitingastöðum með góðum mat,“
segir Kári en í Grindavík, fiski-
bænum mikla, er til að mynda hægt
að fá fish and chips á fimm stöðum.
„Ég er ofboðslega ánægður með um-
sagnirnar frá fólki. Þær halda manni
gangandi,“ segir Kári.
Fish House býður upp á alls konar
mat en Kári vill ekki gefa upp upp-
skriftina að fish and chips. „Þetta
er fersk ýsa. Ég hef verið spurður af
kokkum hvernig ég geri fiskinn en
meira er ekki gefið upp,“ segir hann
léttur í lund. Sósuna útbýr hann svo
sjálfur frá grunni.
Kári hefur fengið ýmsa tónlistar-
menn á staðinn og er stefnan sett
á að halda tónleika af og til. Söng-
konan Gréta Salóme og hljómsveit
hennar Krátína-Folk band spilar á
staðnum næstkomandi laugardag en
tónleikarnir hefjast kl 22.
Veitingastaðurinn hefur einungis
verið lokaður í örfáa daga síðan Kári
tók við rekstrinum en hann segist
vera ofboðslega ánægður. „Þetta er
pínu keyrsla en veitingastaðurinn er
númer eitt, tvö og þrjú.“
Fish House er staðsett í fiskibænum mikla, Grindavík.
Einn af vinsælu réttum Fish house.
Kári sér einn um eldhús
Fish House og gerir það vel.
HÓPFERÐIR
HVERT Á LAND SEM ER
Erum með 10 til 67 manna bíla
Endilega sendið okkur póst á sbk@sbk.is
og við gerum ykkur tilboð
Kveðja SBK
SBK • Grófin 2–4 • 230 Reykjanesbæ • Sími 420 6000
sbk@sbk.is • sbk.is
Leikskólinn leggur mikla áherslu
á mál og læsi.
Börnunum á Tjarnarseli fannst ekki leiðinlegt að
vera mynduð af ljósmyndara Víkurfrétta.