Víkurfréttir - 07.09.2017, Síða 16
16 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
Greta Salóme - Krátína Folk Band
Laugardaginn 9.sept - 22:00
Fish House - Bar & Grill - Grindavík
Aðgangseyrir 2000
Stuð-ðlubræðingur og Palm West hitar
upp með sínu gæða kántríi!
Lóa Bergljót Þorsteinsdóttir er hótelstjóri á Geo Hotel í Grinda-
vík en hótelið er til húsa í gamla Festi og hefur reksturinn
síðastliðin tvö ár gengið mjög vel. Lóa segist hins vegar finna
fyrir því að hátt gengi krónunnar sé farið að segja til sín og að
ferðamaðurinn spari örlítið meira en hann gerði áður.
Vantar betri samgöngur
Geo Hotel leggur mikið upp úr því
að hafa afslappað og heimilislegt
andrúmsloft. Staðsetning hótelsins
heillar marga ferðamenn en það eru
aðeins tíu mínútur frá hótelinu að Bláa
Lóninu og þeir sem gista á hótelinu
geta fengið far í Lónið ef þeir óska
eftir því. „Við mælum samt sem áður
með því að fólk sé á eigin bíl ef það
ætlar að skoða sig um, sérstaklega
ef það stoppar stutt,“ segir Lóa, en
samgöngur á milli Grindavíkur og
höfuðborgarinnar og til Reykjanes-
bæjar eru af skornum skammti og Lóa
segir að bæta þurfi verulega úr þeim.
Hún segir einnig að rútuferðir frá
Bláa Lóninu og til Reykjavíkur séu vel
nýttar af þeim sem gista hjá þeim en
að ferðamaðurinn sé samt sem áður
bundinn opnunartíma Bláa Lónsins
sem styttist á veturnar. Sumum finnst
það ekkert mál á meðan öðrum langar
að vera lengra fram á kvöld í höfuð-
borginni til þess að borða góðan mat
og njóta kvöldsins. Þá er eini val-
kosturinn leigubíll ef þú ert ekki með
bílaleigubíl. Verð á leigubíl frá Reykja-
vík til Grindavíkur getur kostað svipað
og gisting yfir eina nótt á hótelinu.
Geo Hotel er með 36 herbergi og 75
rúm og hafa gestir verið duglegir að
gefa því einkunn á Facebook síðu þess,
sem og á Trip Advisor.
Morgunmaturinn er lofaður, flestir
eru sammála því að það sé notalegt
að gista á hótelinu og að rúmin séu
góð, frábært sé að hafa Nettó búðina
við hliðina á hótelinu, sundlaugin sé
nánast í bakgarðinum og humarsúpan
á Bryggjunni er orðin heimsfræg að
sögn Lóu. Það skemmir heldur ekki
fyrir að flugvöllurinn sé í tuttugu mín-
útna fjarlægð.
Erfitt að ráða starfsmenn
Það er orðið erfiðara að ráða fólk í
vinnu að sögn Lóu en hún finnur fyrir
því eins og aðrar starfsstéttir. Fólk sem
vinnur á hótelinu þarf helst að vera
búsett í Grindavík eða nágrenni þess
og það getur reynst erfitt vegna skorts
á húsnæði. Lítið sem ekkert leiguhús-
næði er í boði og því erfitt að fá fólk
til vinnu. Fáir vilja líka nota einka-
bílana sína til að keyra á milli vegna
kostnaðar og komutími rútunnar til
Grindavíkur hentar ekki alltaf vinnu-
tíma hótelsins.
„Gengið tekur sinn toll finn ég. Fólk
fer ekki eins mikið út að borða og það
gerði áður. Það fer mikið í Nettó og
kaupir sér eitthvað frekar en að fara
út að borða.“ Eftir að gengið hækkaði
segist Lóa taka vel eftir því eftir að
ferðamenn fari minna út að borða því
ruslið og matarafgangar hafi aukist
töluvert inni á herbergjum.
Þjónusta í Grindavík hefur aukist til
muna á síðastliðnum tveimur árum,
Nettó lengdi opnunartímann sinn og
einn veitingastaður hefur bæst við
flóruna. „Það er mikill uppvöxtur í
ferðamannaiðnaðinum hér í Grinda-
vík,“ segir Lóa en litlar sem engar
samgöngur til og frá bænum hafa nei-
kvæð áhrif.
Sækja í kyrrðina
Ýmsar náttúruperlur eru í nágrenni
Grindavíkur, þar á meðal Hópsnesið.
„Ferðamönnum finnst gott að koma
í kyrrðina og vera með sjálfum sér.
Starfsmenn hótelsins eru duglegir að
segja þeim frá ýmsum gönguleiðum á
svæðinu, til dæmis Hópsneshringnum
þar sem skipsflök og húsarústir eru
ásamt kindum og hestum. Þessi kyrrð
og útivera gerir flesta dolfallna, margir
fara líka þangað til að sjá sólarlagið,“
segir Lóa.
Bókað er langt fram í desember hjá
Geo Hotel og eru áramótin þéttbókuð
enda vinsæll tími fyrir ferðamenn
hér á landi. Lóa segir hins vegar að
hún sjái minnkun í bókunum vegna
skattlagningar á ferðamannaiðnaðinn,
ásamt háu gengi krónunnar.
Þarf að bæta sam-
göngur til Grindavíkur
●● segir●Lóa●Bergljót●Þorsteinsdóttir●hótelstjóri●Geo●Hotel.●●
Reksturinn●hefur●gengið●vel●en●samdráttur●í●bókunum●fyrir●næsta●ár
Lóa Bergljót
Þorsteinsdóttir,
hótelstjóri.
Séð inn í eitt af smekklegum
herbergjum hótelsins.
Gamla félagsheimilið Festi er
orðið glæsilegt hótel.
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Eftirtaldar bifreiðir og aðrir lausafjár-
munir verða seldar miðvikudaginn 13.
september 2017 kl. 12:15 við skrifstofu
sýslumannsins á Suðurnesjum, Vatns-
nesvegi 33, Keflavík:
AH923 AM291 BK748 BN681 DH383
DJ742 DX626 FD002 FDD31 FS976
IXV38 JF060 JJ580 JN337 JS444
KS965 KY886 LK626 LO141 LX785
MX662 NK449 NP164 NV452 NV627
OF576 OG864 ON554 PD679 PN640
RS808 RV300 SL536 SS200 ST054
TD680 TT130 UD490 US485 VB714
YGY40 YR321 YS330 YU399 ZR457
ZS899 ZY987.
Krani Terex 1999 30 T, BS -0163.
Sýslumaðurinn
á Suðurnesjum
5. september 2017,
Ásgeir Eiríksson, stað-
gengill sýslumanns.
UPPBOÐ
Bílaviðgerðir
Smurþjónusta
Varahlutir
Brekkustíg 38 - 260 Njarðvík
sími 421 7979
www.bilarogpartar.is
Verið velkomin
á samkomu
alla sunnudaga
kl. 11.00
Hvítasunnu-
kirkjan í Keflavík,
Hafnargötu 84
SVEITARFÉLAGIÐ
VOGAR
Bæjarstjóri óskast
Laus er til umsóknar staða bæjarstjóra í Sveitarfélaginu
Vogum. Við leitum að kraftmiklum aðila til að leiða áfram-
haldandi uppbyggingu í sveitarfélaginu.
Menntunar- og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er skilyrði.
• Reynsla af stjórnun og rekstri æskileg. Þekking og
reynsla í opinberri stjórnsýslu er skilyrði.
• Jákvæðni og framúrskarandi hæfni í mannlegum
samskiptum.
Umsóknum skal skila fyrir 20. nóvember á skrifstofu
Sveitarfélagsins Voga Iðndal 2 eða á netfangið
skrifstofa@vogar.is.
Umsókn skal fylgja starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem
gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir
hæfni viðkomandi í starfið.
Upplýsingar um starfið veitir Inga Sigrún Atladóttir,
inga.sigrun@vogar.is
s. 844-8510.
Við Stóru-Vogaskóla í Sveitarfélaginu
Vogum, vantar kennara í smíði og
umsjónarkennara á yngsta stigi.
Menntunarkröfur: kennsluréttindi.
Nánari upplýsingar veita:
Svava Bogadóttir, skólastjóri og Hálfdan Þorsteinsson
aðstoðarskólastjóri í síma 440-6250. Einnig er hægt að
senda fyrirspurnir og umsóknir á: skoli@vogar.is
www.storuvogaskoli.is
Laun samkvæmt kjarasamningi Kennarasambands
Íslands og Launanefndar Sveitarfélaga.
Umsóknarfrestur er til 27. maí.
Sveitarfélagið Vogar
Tómstunda- og fé gsmálafræðingur
óskast
Sveitarfélagið Vogar auglýsir laust til umsóknar starf tómstunda
og fél gsmálafræðings. Um framtíðarstarf er að ræða.
Starfið felur í sér ábyrgð á skipulagningu og umsjón með fram-
kvæmd félags- og menningarstarfs fyrir íbúa sveitarfélagsins.
Megin markmiðið er að bjóða bæði eldri og yngri íbúum sveitar-
félagsins upp á gæða félags- og menningarstarf í góðu samráði
við öldunga- og ungmennaráð.
Verksvið
Helstu verkefni felast í skipulagningu og mótun dagskrár
félagsstarfs sem uppfyllir þarfir og kröfur notenda þjónustunnar.
Framkvæmd viðburða á dagskrá og þátttaka í skipulagningu og
framkvæmd stærr viðburða innan sveitarfélagsins. Skipulagning
og utanumhald vinnuskólans. Einnig er tómstunda- og félagsmála-
fræðingur næsti yfirmaður starfsfólks í félagsmiðstöð ungmenna
og starfsmanns í Álfagerði.
Hæfniskröfur
Háskólamenntun (B.A. gráða hið minnsta) í tómstunda- og
félagsmálafræði er skilyrði. Hugmyndaauðgi, góð verkkunnátta
og hæfileiki til að vinna sjálfstætt og eiga frumkvæði að þeim
verkefnum sem starfinu tilheyra. Lipurð í mannlegum samskiptum
og samstarfsvilji. Góð þekking og/eða reynsla af félagsstarfi.
Nánari upplýsingar veitir Stefán Arinbjarnarson í síma 867-8854.
Umsóknarfrestur er til 16. september 2017. Umsóknum
skal skila á netfangið stefan@vogar.is. Öllum umsóknum verður
svarað.
Geo Hotel leggur mikið upp
úr því að hafa afslappað og
heimilislegt andrúmsloft.
Staðsetning hótelsins heillar
marga ferðamenn en það
eru aðeins tíu mínútur frá
hótelinu að Bláa Lóninu.