Víkurfréttir - 07.09.2017, Qupperneq 17
17fimmtudagur 7. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
HS Veitur hf óska eftir öflugum starfskrafti í
þjónustuver í Reykjanesbæ
Hjá HS Veitum starfar framsækinn hópur starfsfólks sem kappkostar að ea sig í star með frumkvæði, fagmennsku
og framúrskarandi vinnubrögðum.
HS Veitur varð til 1. desember 2008 þegar Hitaveitu Suðurnesja hf. var skipt upp.
HS Veitur annast raforkudreingu á Suðurnesjum, í Hafnarrði, í hluta Garðabæjar, í Vestmannaeyjum og í Árborg.
HS Veitur annast hitaveiturekstur á Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum og vatnsveiturekstur að stórum hluta á
Suðurnesjum og í Vestmannaeyjum.
Starfsstöðvar HS Veitna hf eru órar, í Reykjanesbæ, Hafnarrði, Vestmannaeyjum og í Árborg.
Hjá HS Veitum hf starfa 98 starfsmenn.
Hæfniskröfur
- Reynsla og eða menntun sem nýtist í starfi
- Mjög góð tölvuþekking
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Þjónustulund og hæfni í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi og hæfni til að vinna undir álagi
HS VEITUR HF
www.hsveitur.is
Nánari upplýsingar veitir Þórhildur Eva Jónsdóttir deildarstjóri þjónustu í síma 422 5200.
Umsækjendur sækja um störfin á heimasíðu fyrirtækisins www.hsveitur.is.
Umsóknarfrestur er til og með 21. september 2017.
Helstu þættir starfsins eru:
- Símsvörun
- Skráning beiðna í upplýsingakerfi
- Almenn afgreiðsla og móttaka
viðskiptavina
- Skráning, úrvinnsla, eftirlit og fl.
Stolt Sea Farm er eitt af þróuðustu skeldisfyrirtækjum heims og hefur sérhæft sig í
framleiðslu á hágæða sandhverfu, úru og styrju. Stolt Sea Farm rekur skeldi í sex
löndum; Bandaríkjunum, Frakklandi, Noregi, Portúgal, Spáni og nú á Íslandi.
Stolt Sea Farm leitar að áhugasömu almennu starfsfólki í
skeldisstöð fyrirtækisins á Reykjanesi.
Leitað er að jákvæðum, heiðarlegum, duglegum og
útsjónarsömum einstaklingum sem hafa áhuga á að taka
þátt í uppbyggingu á nýju fyrirtæki.
Starfsreynsla í skeldi, skvinnslu og/eða sjómennsku er
góður grunnur.
Öllum umsóknum verður svarað.
Umsókn ásamt ferilskrá skal senda á Ólaf Arnarsson
netfang: oar@stoltseafarm.com
Umsóknarfrestur til 24. september 2017
Vilja minnka álag kennara og mæta ólíkum námsþörfum nemenda
Hilmar Geir Eiðsson er stofnandi nýsköpunarfyrirtækisins
Costner og meðstofnandi Kara Connect. Hann á rætur sínar
að rekja til Suðurnesjanna og eyddi stórum hluta upp-
vaxtaráranna sinna hjá ömmu sinni og afa á Heiðarbrúninni í
Keflavík og vann hann fyrir afa sinn og pabba uppi á Velli hjá
varnarliðinu í nokkur ár. Þeir eru miklar fyrirmyndir Hilmars
og stærsta ástæða þess að hann fór út í eigin rekstur.
„Ég vissi að það yrði mikil vinna að
stofna eigið fyrirtæki en sem elsta
barnabarn Hilmars Rafns Sölvasonar
þá er ekki annað hægt en að leysa öll
verkefni með jákvæðni og dugnaði.
Ég hef það frá honum að vera dug-
legur og jákvæður enda er hann enn í
fullu fjöri og fer í skíðaferðir nú kom-
inn á níræðisaldur.
Ég var svo heppinn að fá tækifæri til
að spila knattspyrnu með Keflavík í
tvö ár sem var mikil reynsla. Eftir að
ég færði mig um set fór bæði áhug-
inn að minnka og meiðsli að verða
tíðari. Á þessum tímapunkti var ég
á fullu í Háskólanum í Reykjavík og
búinn að stofna mitt fyrsta fyrirtæki,
nýsköpunarfyrirtækið Costner. Þegar
ég útskrifast flækist staðan enn frekar
og verkefnin voru orðin miklu fleiri
þar sem ég dróst inn í annað fyrir-
tæki sem heitir Kara Connect. Þar er
ég meðstofnandi en það fyrirtæki er
afsprengi fjarþjónustu fyrirtækisins
Trappa.“
Costner er sprotafyrirtæki sem sér-
hæfir sig í hugbúnaðarlausnum innan
menntageirans.
Í dag býður Costner upp á Kafteininn
sem er mælaborð kennarans ásamt
því að námstengdu forritunum Mál-
farinn, Fróði og Prím sem eru fyrir
nemendur.
Stafrænn dauði
„Hugmyndin með Costner var fyrst
og fremst sú að við vildum einfalda
aðgengi og utanumhald námsfram-
vindu í forritun sem önnur fyrirtæki
hafa þróað. Það sem er nýstárlegt við
þessa hugmynd er að hingað til hafa
fáir námsleikir birt gengi nemenda á
rauntíma en hvergi hefur hugmynda-
fræðin verið sú að birta framvindu
nemenda úr ólíkum forritum. Við
erum nú þegar búin að búa til þrjá
ólíka en mjög öfluga námsleiki og
getum við því sannreynt vöruna sem
við erum að gera núna en við stefnum
þó að því að útvíkka eitt af forritum
okkar. Það heitir Málfarinn og snýr
eingöngu að íslensku. Markmiðið
okkar er að bæta inn síðar meiri
þjálfun í stafsetningu og lestri. Hin
námsforritin eru auðvitað einnig á
íslensku en það besta sem við getum
gert er að styðja við íslenskt hugvit
ef ekki á að fara illa og það er okkar
markmið hjá Costner.“
Þið hafið farið í nokkra skóla til
þess að prófa forritið, hvernig hefur
það gengið?
„Mjög vel. Áherslan okkar liggur í
að létta á álagi kennara og viðbrögð
þeirra hafa verið mjög jákvæð“.
Mæta þörfum nemenda
Hversu mikilvægt er að allir geti
unnið á sínum hraða?
„Við höfum heyrt frá
kennurum að í dag sé þó
nokkur pressa á skóla að
bjóða upp á einstaklings-
miðað nám og ólíkar nálg-
anir eru teknar til að mæta
þeim þörfum.
Sumir hafa reynt að
skipta nemendum upp í
hópa eftir getu en rann-
sóknir hafa sýnt fram á að
sú nálgun sé ekki endi-
lega sú besta. Best væri
ef ólíkir nemendur gætu
unnið í sama umhverfi
óaðgreindir og unnið að
verkefnum sem henta
viðkomandi getu. Því
þykir okkur mikilvægt
kennarinn geti haft góða
yfirsýn yfir framvindu nemenda í
bekknum þrátt fyrir að nemendur
vinni á ólíkum hraða og jafnvel í
ólíkum forritum.“
Finnland fremstir í flokki
Hverjir þróuðu og hönnuðu þessi forrit?
„Við erum með gríðarlega stórt teymi
sem hefur unnið þrekvirki síðustu
mánuði. Aðalheiður Hreinsdóttir
einn meðstofnenda, tók stöðu mína
sem framkvæmdarstjóri eftir að ég
stofnaði Köru Connect, hún hefur
gert kraftaverk ásamt litlu teymi for-
ritara. Þau hafa smíðað bæði allt við-
mót fyrir kennara, öll námsforritin
þrjú og auk þess hafa þau unnið að
hugmyndafræðinni að baki lausn-
inni. Virtur og öflugur finnskur
menntahraðall hefur boðið Costner
upp á samstarf sem felst meðal annars
í því að aðstoða við uppbyggingu og
þróun fyrirtækisins. Finnland er með
eitt öflugasta menntakerfi heims og
Costner gæti lært ýmislegt af þeirra
hugmyndafræði. Okkur þykir sannur
heiður að vera valin enda eru innan
við 10% af umsækjendum sam-
þykktir.“
Forritin sem Costner býður nú þegar
upp á eru fyrir 1.-3. bekk og segir
Hilmar að stefnan sé sett á að bjóða
upp á enn frekari stuðning fyrir yngri
nemendur á næstunni, stærðfræði-
leikurinn Prím verið þróaður með
yngri nemendur í huga.
Byggja á fjarskiptatækni
Hvaðan kemur hugmyndin um
Kara Connect?
„Upphaflega var Þorbjörg Helga Vig-
fúsdóttir að keyra tilraunaverkefni á
Patreksfirði og leiðir okkar lágu fyrst
saman í gegnum sameiginlegan vin
okkar sem er prófessor í HR en við
höfðum bæði brennandi áhuga á að
hjálpa þeim sem ekki fengu þá þjón-
ustu sem þeir áttu rétt á. Fyrirtækið
Kara Connect hannar hugbúnað sem
heitir Kara og er byggður á fjarskipta-
tækni sem gerir skjólstæðingum og
sérfræðingum kleift að þiggja og veita
bestu fáanlegu þjónustu og meðferð
sem völ er á, óháð staðsetningu og
tíma.“
Er mikilvægt að sem flestir hafi
greiðan aðgang að sérfræðiþjón-
ustu?
„Það er mjög mikilvægt og réttur
okkar að hafa aðgengi að slíkri þjón-
ustu samkvæmt lögum. Ekki bara
það að hafa aðgengið heldur að allir
hafi það hvort sem þeir búi á höfuð-
borgarsvæðinu eða Grímsey.“
Staðsetningin skiptir ekki máli
Horfið þið mikið til landsbyggðar-
innar þar sem sérfræðiþjónusta er
af skornum skammti?
„Við gerðum það í fyrstu en ekki
lengur. Þú getur alveg eins verið sér-
fræðingur og búið í Grímsey og sinnt
einstaklingum sem búsettir eru á
höfuðborgarsvæðinu og öfugt. Í dag
erum við með sérfræðinga í Reykja-
vík sem sinna einstaklingum þar í
gegnum Köru. Það er allur gangur á
því hvar staðsetningin er en vissulega
er þörfin meiri á landsbyggðinni.“
Hilmar segir þau hafi lagt inn nokkrar
tillögur til heilbrigðisráðuneytisins
eftir fund með ráðherra um stöðu
mála í fjarþjónustu. Ein tillagan var
að setja upp „Körurými“ til dæmis á
Heilsugæslu Suðurlands með það að
markmiði að ná fram heildstæðari
þjónustu í geðheilbrigði, auka þar
með aðgengi að þjónustu sérfræðinga
og kynna nýjar leiðir með tækni fyrir
öllum þátttakendum verkefnisins.
„Með því að bjóða upp á slíka þjón-
ustu væri hægt að draga úr ýmsum
kostnaði til dæmis vegna ferðalaga,
vinnutaps og óskilvirkni á með-
höndlun vandamáls. En tillagan er
enn til skoðunar.
Það er okkar skoðun að stjórnvöld
og stofnanir séu of uppteknar til þess
að innleiða tækni og verkferla til þess
sem leiða til hagræðingar og aukinnar
skilvirkni en við erum þó nokkuð á
eftir öðrum Skandinavíuþjóðum.“Hilmar Geir Eiðsson, stofnandi ný-
sköpunarfyrirtækisins Costner og
meðstofnandi Kara Connect.
Nemendur í Háaleitisskóla.