Víkurfréttir - 07.09.2017, Blaðsíða 18
18 fimmtudagur 7. september 2017VÍKURFRÉTTIR
TF KEF
Umsjónarmaður
fasteigna
vinna.is
Sæktu um starfið á
vinna.is/storf
Hæfniskröfur
Nám í bygg ing ar iðnaði eða tækni
menntun er kostur.
Reynsla af umsjón fast eigna.
Góð almenn íslensku og tölvu kunn
átta, lágmarks kunn átta í ensku.
Góð samskipta hæfni, sveigj an leiki
og þjón ustu lund.
Snyrti mennska, nákvæmni í starfi
og stund vísi.
Um er að ræða fullt starf sem unnið er
í nánu samstarfi við stjórn félagsins
og leigu taka. Æski legt er að um
sækjandi geti hafið störf sem fyrst.
�
�
�
�
�
Umsóknarfrestur
14. september
Fasteignafélagið TF KEF ehf.
óskar eftir að ráða umsjónarmann
með rekstri fasteigna á Ásbrú í
Reykjanesbæ.
Um er að ræða 5 fast eignir í útleigu,
samtals 10.501m2 sem skiptist í 121
herbergja hótel, 91 íbúðir og geymslu
hús næði. Leitað er að þjón ustu lund
uðum, samvisku sömum, hand lögnum
og skipu lögðum, einstak lingi sem getur
borið ábyrgð á daglegum rekstri á
fast eignum félagsins og á auðvelt með
mannleg samskipti.
GRÖFUÞJÓNUSTA
TRYGGVA EINARS
ATVINNA
Gröfuþjónusta Tryggva Einars ehf. óskar eftir að
ráða vanan bílstjóra og verkamann í vinnu.
Upplýsingar í síma 899 8144, Einar
Óskum eftir trésmiðum eða vönum byggingaverka-
mönnum, íslensku- eða enskukunnátta skilyrði.
Upplýsingar ásamt ferilskrá sendist
á netfangið andres@hjalti.is
ATVINNA
Víkurbraut 3 - 230 Reykjanesbæ - Sími 421 4443
Íþróttir á Suðurnesjum
Einn leikur í einu
Grindavík á leik gegn FH á heimavelli
Hafnfirðinga næstkomandi sunnu-
dag. „Það eru smávægileg meiðsli
innan hópsins hér og þar en við
erum með fínan hóp til þess að díla
við þetta allt saman. Í dag er stefnan
tekin leik fyrir leik, sem stendur erum
við í skemmtilegu tækifæri, bullandi
Evrópusætabaráttu. Þetta gæti farið
á báða bóga, getum sogast niður
töfluna ef við erum ekki grimmir
að sækja úrslit eða við gætum lent í
Evrópukeppninni ef við gefum allt
í leikina og fáum góð úrslit. Það er
virkilega spennandi.“
Stuðningurinn mikilvægur
„Stuðningur liðsins og kúltúrinn í
kringum liðið hefur breyst mikið,
við höfum fundið mikinn stuðning
bæði á vellinum og úti í bæ. Þó svo
við höfum verið að tapa þá er stuðn-
ingurinn sterkur, meira að segja þegar
við höfum tapað stórt. Svona skil-
greini ég einmitt stuðning, það er
ekkert mál að styðja þegar gengur vel
en það reynir á þegar illa gengur. Mér
fannst fólk halda vel við bakið á okkur
þegar illa gekk. Það er búið að vera
mikil vinna að sækja stuðninginn,
mikil vinna inn á við og núna er hún
að skila sér. Mér finnst það jákvætt og
skemmtilegt þegar það ríkir jákvæðni
og samstarf.“
Kemur velgengni liðsins þér á óvart?
„Mitt markmið var að staðsetja liðið
í deildinni og ég bjóst ekki við því
að við myndum byrja eins raunin
var. Við fengum góð úrslit, vorum að
spila vel en svo jafnaðist þetta allt út á
slæmum kafla en það voru risa úrslit
okkur í hag til að byrja með. Ég bjóst
alveg við því að við myndum halda
okkar veru í þessari deild en að vera
að berjast um Evrópusæti er eitthvað
sem ég bjóst ekki við á þessum tíma-
punkti.“
Markmið Grindavíkur var að ná í
22 stig og halda þar með sæti sínu
í deildinni. Óli Stefán segir að liðið
hafi verið ansi nálægt því snemma í
sumar en þurfti aðeins að bíða eftir
því að komast yfir stigalínuna. „Það
kom á endanum og við höldum
ótrauðir áfram og viljum gera betur
en Grindavík hefur gert áður stiga-
lega séð en besti árangur Grindavíkur
er 31 stig. Við eigum sex stig í það og
vinnum þetta leik frá leik.“
Baráttuleikur í Kaplakrika
Eins og staðan er í dag er FH jafnt
Grindavík að stigum en er með betri
markatölu og eiga leik til góða. „Á
sunnudaginn er tækifæri fyrir okkur að
velta FH-ingum af stalli. Þeir eru með
mjög gott lið en hafa verið að ströggla
aðeins í deildinni. Við eigum erfiða úti-
leiki eftir gegn FH, ÍBV og KA. Mér
persónulega finnst samt alltaf gaman
að spila þessa leiki. Ég elska að fara út
á land og spila. Við reynum alltaf að
búa til góða stemningu í kringum úti-
leikina og lítum jákvætt á þá. Grindavík
hefur verið að sýna góða spilamennsku
í síðustu leikjum sínum og við ætlum að
taka frammistöðuna úr þeim leikjum,
vinna úr henni og tryggja lokaleikina.“
Misstu þrjá heimamenn
Óli Stefán segir að breiddin í hópnum
sé góð, það sé skemmtileg blanda
af erlendum leikmönnum, heima-
mönnum og leikmönnum sem koma
ekki frá Grindavík en spila með lið-
inu. „Ég hef reynt að búa til lið sem
státar af fleiri heimamönnum en það
auðveldaði okkur hins vegar ekki að
missa þrjá sterka leikmenn á besta
aldri. Jósef, Óli Baldur og Markó fóru
eða hættu og því er þessi vinna byrjuð
aftur. Marínó Axel hefur komið mjög
sterkur inn og það eru leikmenn sem
fæddir eru 1999, 2000 og 2001 sem
koma sterkir inn á næstu einu til
tveimur árum.“
Skýr markmið frá byrjun
„Við höfum alltaf haft skýr markmið,
vissum hvað við getum og hvert við
ætluðum, þau markmið voru skýr á
fimm ára planinu. Við erum tveimur
árum á undan því eins og staðan er í
dag. Fimm leikir eru samt sem áður
eftir af tímabilinu og það væri frábært
að komast í Evrópukeppnina.“
Gróska hjá Suðurnesjaliðunum
„Nánast öll liðin í knattspyrnunni á
Suðurnesjum hafa verið að standa
sig mjög vel í boltanum. Ég vona
persónulega að Keflavík komist
upp í Pepsi-deildina því það er lang
skemmtilegast að spila þar. Stelpurnar
hér í Grindavík eru á svipuðu róli og
við að reyna að staðsetja sig í deild-
inni með ungt og efnilegt lið, góða er-
lenda leikmenn og stelpur sem koma
ekki héðan. Það eru spennandi tímar
á þessu svæði og það sýnir að fólk er
að vinna sína vinnu vel sem er mikil-
vægt í þessum bransa.“
Alltaf hægt að bæta aðstöðuna
Grindvíkingar geta æft allt árið í Hóp-
inu sem er knattspyrnuhús en Óla
Stefáni finnst vanta gervigrasvöll úti.
„Það væri frábært að fá útivöll í fullri
stærð, þá gætum við spilað alla okkar
vetrarleiki hér í Grindavík og þyrftum
ekki að sækja þá út fyrir bæjarfélagið.
Við eigum alltaf að reyna að bæta að-
stöðuna okkar og þrýsta á bæjaryfir-
völd. Það er líka mikilvægt að miða
sig við bestu aðstöðuna, ekki næst
bestu. Í bæjarfélagi eins og okkar sem
stendur sterkt að vígi ætti það ekki að
vera neitt mál.“
Stuðningur bæjarbúa ómetanlegur
segir Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindvíkinga sem bjóst ekki við að félagið yrði í baráttu um Evrópusæti
kjlkjlkj
Óli Stefán Flóventsson, þjálfari Grindavíkur í
Pepsi-deild karla, er hæstánægður með gengi
liðsins í sumar. Fimm leikir eru eftir af deild-
inni og stefnan er sett á Evrópusæti en þó eru
erfiðir útileikir eftir. Óli Stefán vonast til þess
að Keflvíkingar tryggi sér sigur í Inkasso-deild
karla því Suðurnesjaleikirnir séu þeir allra
skemmtilegustu. Blaðamaður Víkur frétta
hitti Óla Stefán og spjallaði um sumarið,
framhaldið og markmið liðsins.
Óli Stefán segir sínum mönnum til á hliðarlínunni.
Óli Stefán gefur leikmanni
Grindavíkur góð ráð áður en
hann fer inn á völlinn.
Grindvíkingar fagna marki
sínu ákaft við hornfánann
í leik gegn KR.