Víkurfréttir - 07.09.2017, Síða 19
19fimmtudagur 7. september 2017 VÍKURFRÉTTIR
Controller
Job description:
• Responsible with the Finance Manager for the
hands on, day to day responsibilities of the
accounting function
• Responsible for a timely and accurate monthly
close including the reconciliation of all general
ledger accounts
• Bank reconciliations
• Preparation of monthly, quarterly and annual
consolidated financial statements prepared on an
IFRS basis. Research IFRS issues as they arise
• Preparation of management reporting
• Coordination of VAT filings
• Ownership of the Accounts Payable Function
Job qualifications:
• Relevant educational background
• Accounting experience preferably public
accounting and global experience
• Good organizational, time management,
customer service and problem-solving skills
• Ability to work well independently
• Strong written and verbal communication skills
• The ability to write and speak fluent English
• The ability to read Icelandic is also required
• Broad general knowledge in basic Office
programs. NAV experience a plus
For more information contact:
Sverrir Briem
sverrir@hagvangur.is
Inga S. Arnardóttir
inga@hagvangur.is
Please fill out application on hagvangur.is
Application deadline: September 12
SKÓGARHLÍÐ 12 105 REYKJAVÍK SÍMI 520 4700
Verne Global is looking for a vibrant employee who is analytical, accurate and highly motivated. This is an exciting
role with global responsibility for companies in the US, UK and Germany in addition to companies in Iceland.
Verne Global is based in Reykjanesbær.
Verne Global is a multinational company which offers data center space with an affordable 100%
carbon neutral power solution that has unparalleled pricing predictability; a range of server density
options; and efficiency without extra expense by using natural cooling.
Íþróttir á Suðurnesjum
Markmaður Keflavíkur varði
tvær vítaspyrnur
■ Keflvíkingar gerðu sér góða ferð
norður á miðvikudaginn í síðustu
viku þegar þeir mættu Þór í In-
kasso deildinni. Þeir eru á góðri
leið að tryggja sér sæti í Pepsi-
deild karla. Mörk Keflavíkur skor-
uðu Adam Árni Róbertsson á 32.
mínútu, Jeppe Hansen úr víti á 39.
mínútu og lokamark Keflavíkur
skoraði Lasse Rise einungis mín-
útu eftir mark Jeppe. Markmaður
Keflvíkinga, Sindri Kristinn Ólafs-
son, fór á kostum í leiknum en
hann varði tvær vítaspyrnur.
Njarðvík á toppi annarar
deildarinnar
■ Njarðvíkingar unnu lið Vestra í
2. deildinni síðastliðinn laugardag
á Njarðtaksvellinum. Þeir nálgast
Inkasso deildina óðum og tróna
á toppi annarrar deildarinnar
með 41 stig. Staðan var orðin 2-0
þegar einungis fimmtán mínútur
voru liðnar af leiknum en Kenneth
Hogg skoraði bæði mörkin. Birkir
Freyr Sigurðsson kom Njarðvík
í 3-0 í upphafi seinni hálfleiks.
Lokatölur leiksins urðu 3-1.
Víðir í toppbaráttu í annari
deildinni
■ Víðismenn mættu Tindastól á
Sauðárkróksvelli í 2. deildinni á
laugardaginn þar sem lokaniður-
stöður urðu 4-2. Mörk Víðismanna
skoruðu Ari Steinn Guðmunds-
son á 52. mínútu og Patrik Snær
Atlason á 90. mínútu. Þetta tap
Víðismanna gæti reynst þeim dýr-
keypt en með sigri í þessum leik
hefðu þeir verið aðeins einu stigi
á eftir Magna sem er í öðru sæti
deildarinnar en Víðir er því þriðja.
Víðir og Njarðvík eigast við næst-
komandi laugardag kl. 14 á Nes-
fisk-vellinum. Stórleikur þar á
ferðinni þar sem barist verður um
hvert stig á lokasprettinum.
Erfið lokabarátta hjá Reyni
Sandgerði
■ Reynir gerði góða ferð til Ólafs-
fjarðar síðastliðinn sunnudag
þegar þeir mættu KF í þriðju
deildinni. Reynir sigraði KF með
einu marki gegn engu og var það
Dimitrije Pobulic sem skoraði
mark Reynis á 29. mínútu. Sem
stendur er Reynir í 9. sæti 3.
deildarinnar eða næst síðasta sæti.
Reynir er með þrettán stig en til
þess að halda sér áfram í þriðju
deildinni þurfa þeir sigur í tveimur
síðustu leikjum deildarinnar. Þeir
þurfa einnig að vona að Dalvík/
Reynir næli sér einungis í eitt stig
í tveimur síðustu leikjum sínum.
Grindavík missir mikilvæga
leikmenn
■ Grindavík mætti Val á heimavelli
í Pepsi-deild kvenna síðastliðinn
miðvikudag og endaði leikurinn
með sigri Vals og urðu lokatölur
leiksins 0-3. Grindavík er sem
stendur í sjöunda sæti Pepsi-deildar
kvenna. Grindavík lék án Guðrúnar
Bentínu Frímannsdóttur og Söru
Hrundar Helgadóttur. Sara hefur
nú lagt skóna tímabundið á hilluna
vegna tíðra höfuðhögga og heila-
hristinga, óvíst er hvort Bentína spili
meira með liðinu í sumar. Grinda-
vík mætir FH næst á Kaplakrikavelli
þann 6. september.
Keflavík með sigur á heimavelli
■ Keflavík sigraði Þrótt Reykjavík
á heimavelli í fyrstu deild kvenna
síðastliðinn föstudag. Þóra Kristín
Klemenzdóttir tryggði Keflavík
stigin þrjú og kom markið á 47.
mínútu. Keflavík er í fjórða sæti
deildarinnar. Natasha Moraa
Anasi leikmaður Keflavíkur spil-
aði sinn fyrsta leik í sumar eftir
barneignarfrí. Síðasti leikur Kefla-
víkur fer fram þann 9. september
næstkomandi en þá mætir Kefla-
vík Víkingi Ólafsvík á Nettóvell-
inum.
Knattspyrnusamantekt
DEILDARSTJÓRI FRÍLAGERS
IGS ehf leitar að öflugum einstaklingi í spennandi og krefjandi starf deildarstjóra Frílagers.
Helstu verkefni.
• Ábyrgð á daglegum rekstri frílagers
• Birgðastýring
• Áætlanagerð
• Dagleg samskipti við viðskiptavini og stofnanir
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun eða sambærileg menntun
• Góð Excel og bókhalds þekking
• Hæfni í mannlegum samskiptum og stjórnun
• Góð íslensku- og enskukunnátta
• Mikið frumkvæði og frjó hugsun
• Öguð, skipulögð og sjálfstæð vinnubrögð
• Útsjónarsemi og heiðarleiki.
Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS (www.igs.is) fyrir 21. september 2017
STÖRF HJÁ IGS EHF.