Víkurfréttir - 07.09.2017, Side 20
Krossmóa 4a, 4. hæð, 260 Reykjanesbær
Sími: 421 0000 Póstur: vf@vf.is
Afgreiðslan er opin virka daga kl. 09:00 - 17:00
Auglýsingasími: 421 0001
S T Æ R S T A F R É T T A - O G A U G L Ý S I N G A B L A Ð I Ð Á S U Ð U R N E S J U M
facebook.com/vikurfrettirehf twitter.com/vikurfrettir instagram.com/vikurfrettir
Smoke get’s in
your eyes – ætli
það dugi til að
svæfa kísilverið?
Mundi
Að skara fram úr
Ég var talsvert föst í þeirri hugs-
un svona þegar ég var að nálgast
miðjan aldur, hvernig líf mitt hefði
orðið öðruvísi ef ég hefði vitað jafn
mikið um lífið og tækifærin sem
bjóðast þegar ég var unglingur. Af
þeim sökum hef ég tekið ófáa fjöl-
skyldufundi með dætrum mínum
tveimur undanfarið, þar sem ég
hef reynt að útskýra fyrir þeim
hvernig þær eru skaparar eigin
hamingju, hvernig það er undir
þeim einum komið hvaða tækifæri
þær ákveða að nýta sér til þess að
ná árangri og að vera sáttar með
lífið og tilveruna. Það var erfiðara
en ég bjóst við að taka þessa um-
ræðu, reyndi ansi marga vinkla
til þess að styðja mál mitt; kvik-
myndir, greinar, heimildamyndir
ofl. Það er nefnilega frekar erfitt
að koma einhverju jafn mikilvægu
til leiðar til barnanna sinna byggt
á eigin reynslu, sérstaklega þegar
um ræðir nokkur kynslóðabil og
áralangur munur í þroska og lífs-
ins leik. Þeim leið eflaust eins og
mér leið þegar foreldarar mínir
eða amma og afi voru að reyna
að leggja mér lífsreglurnar. Þegar
maður er unglingur þá er maður
ódauðlegur, tíminn stendur í stað
og það er bara frekar nauðsynlegt
að chilla.
Þarna er ég ekki að gagnrýna unga
fólkið okkar í dag, þvert á móti og
þess þá heldur dætur mínar sem
nýta sín tækifæri afbragðs vel. Ég
er heldur ekki að gera lítið úr eigin
verðleikum, en finnst stundum eins
og ég hefði geta gert betur og því hef
ég viljað forðast að mín börn þurfi
að díla við þessa hugsun þegar þær
verða miðaldra. Ég hef hins vegar
gert mér ljóst, þegar ég eins og aðrir
Íslendingar verð vitni að gróskunni
hjá íslenskum ungmennum í dag og
afrekum þeirra á öllum sviðum, að
orð eru óþörf í þessu samhengi. Við
sem foreldrar höfum lagt okkar að
mörkum í foreldrastarfi í skólum,
tómstundum og gæðastundum og
öll gert eins vel og við getum hverju
sinni. Þetta er ekki spurning um að
taka spjallið þegar börnin eru að
verða fullorðin, við foreldrar erum
að leggja inn í þeirra banka frá upp-
hafi.
Ég hef því ekki minnstu áhyggjur
af æsku landsins, foreldrabetrungar
með meiru sem sjá einhvern veginn
lífið fyrir sér á fallegan og áhyggju-
lausan hátt. Upplýstari en ég var
nokkurn tímann sem unglingur
og meðvitaðri um þau tækifæri
sem þeim bjóðast. Hvort sem um
menntun, afrek í íþróttum eða list-
sköpun er að ræða þá stöndum við
ótrúlega vel með unga fólkið okkar.
Við Íslendingar teljum 335 þúsund
manns, sem er 0,4% af íbúafjölda
Þýskalands eða 0,5% af íbúafjölda
Frakklands. Þetta eru þjóðir sem við
erum að keppa við í hópíþróttum
eins og fótbolta, körfubolta og
handbolta og berum okkur gjarnan
saman við. Fáránlega skemmtilegt!
FÁÐU MEIRA MEÐ NÝJUM
NISSAN QASHQAI
• Nýtt útlit
• Ný tækni
• Ný innrétting
Nú er Nissan Qashqai, einn vinsælasti sportjeppi landsins til margra
ára, kominn í nýrri og breyttri útgáfu. Nýtt útlit, ný innrétting og nýjar
skemmtilegar tæknilausnir sem auka ánægju og akstursöryggi.
VERÐ FRÁ:
3.550.000 KR.
E
N
N
E
M
M
/
S
ÍA
/
N
M
8
3
7
2
7
N
is
s
a
n
Q
a
s
h
q
a
i
2
0
3
x
3
4
5
V
F
l
jo
s
a
n
o
o
o
*M
ið
að
v
ið
u
pp
ge
fn
ar
tö
lu
r f
ra
m
le
ið
an
da
u
m
e
ld
sn
ey
tis
no
tk
un
í
bl
ön
du
ðu
m
a
ks
tr
i.
GE bílar - Umboðsaðili BL
Reykjanesbæ
www.gebilar.is
420 0400 WWW.GEBILAR.IS
SÍMI 4200400
LOKAORÐ
Ingu Birnu Ragnarsdóttur