Víkurfréttir - 21.12.2017, Qupperneq 2
2 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
FINNDU OKKUR Á FACEBOOK
JÓLA- OG
NÝÁRSKVEÐJUR
SENDUM VIÐSKIPTAVINUM OKKAR OG
ÖÐRUM SUÐURNESJAMÖNNUM OKKAR BESTU
845 0900
Útgefandi: Víkurfréttir ehf., kt. 710183-0319 // Afgreiðsla og ritstjórn: Krossmóa 4a,
4. hæð, 260 Reykjanesbæ, sími 421 0000 // Ritstjóri og ábm.: Páll Ketilsson, sími
421 0004, pket@vf.is // Fréttastjóri: Hilmar Bragi Bárðarson, sími 421 0002, hilmar@
vf.is // Blaðamenn: Rannveig Jónína Guðmundsdóttir, sími 421 0002, rannveig@vf.is
// Sólborg Guðbrandsdóttir, sími 421 0002, solborg@vf.is // Auglýsingastjóri: Ásta
Kristín Hólmkelsdóttir, sími 421 0001, asta@vf.is // Útlit & umbrot: Jóhann Páll
Kristbjörnsson, johann@vf.is // Afgreiðsla: Aldís Jónsdóttir, sími 421 0000, aldis@
vf.is, Dóróthea Jónsdóttir, dora@vf.is // Prentun: Landsprent // Upplag: 9000 eintök
// Dreifing: Íslandspóstur // Dagleg stafræn útgáfa: vf.is og kylfingur.is
Tekið er á móti auglýsingum á póstfangið asta@vf.is. Auglýsingar berist fyrir kl. 17:00 á
mánudegi fyrir útgáfudag, sem er almennt á fimmtudögum. Móttaka smáauglýsinga er
á vf.is. Smáauglýsingar berist fyrir kl. 15:00 á mánudögum. Sé fimmtudagur frídagur þá
kemur blaðið út á miðvikudögum. Dreifing blaðsins tekur að jafnaði tvo daga og er dreift
inn á öll heimili á Suðurnesjum.
Efni til Víkurfrétta skal berast á póstfangið vf@vf.is. Aðsendar greinar birtast á vef Víkur
frétta, vf.is. Það er mat ritstjórnar hvaða greinar birtast í prentaðri útgáfu Víkurfrétta.
Ekki er greitt fyrir aðsent efni, texta eða myndir, hvort sem það birtist í blaðinu eða á
vefsíðum Víkurfrétta.
FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM
MANNLÍF Á SUÐURNESJUM
VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM
ÍÞRÓTTIR Á SUÐURNESJUM
UMRÆÐAN Á SUÐURNESJUM
Síðustu vikur hefur talsvert verið
rætt um umsvif Bandaríkjamanna
á Keflavíkurflugvelli og fjárveitingu
upp á um einn og hálfan milljarð
króna sem Bandaríkjaher hefur
fengið til að endurnýja flugskýli
á Keflavíkurflugvelli. Friðþór Ey-
dal fv. upplýsingafulltrúi Varnar-
liðsins og núverandi starfsmaður
ISAVIA þekkir vel til þessara mála.
Er bandaríski herinn að koma aftur?
„Ég hef þann starfa hjá ISAVIA að
fylgjast með þessum málum og hafa
umsjón með þeirri þjónustu sem við
erum að veita í þessu sambandi. Þetta
er dálítið ofsagt. Það hefur ekkert
breyst hjá Bandaríkjamönnum. Þeir
vilja og nýta aðstöðu á Íslandi eftir því
sem þeim hentar í hagræðingarskyni
fyrst og fremst. Eftir að þeir fóru að
nota nýjar kafbátaleitarflugvélar þá
þurfa þeir að koma oftar á þessar
slóðir til þjálfunar. Þá er gott að geta
stungið þeim inn í hús og það er það
sem stefnt er að varðandi breytingar
á flugskýli hérna en þeir eru ekki að
koma hingað til að vera með fasta
viðveru eða neitt slíkt. Ef þeir týna
kafbát einhverntímann svona vestar-
lega í hafinu þá er þægilegra að leita
hans héðan frá Keflavíkurflugvelli
heldur en frá Skotlandi, þar sem þeir
ætla að vera með meginaðstöðuna á
þessu svæði“.
Þær framkvæmdir sem bandaríski
herinn hefur nú fengið fjárveitingu
til er að breyta húsgafli á flugskýli
831 á Keflavíkurflugvelli, þannig að
hurðarop verður hækkað þannig að
koma megi stéli nýju kafbátaleitar-
flugvélanna þar inn en stél nýju Po-
seidon-vélanna er hærra en á gömlu
Orion-vélunum. Þá verður einnig reist
þvottastöð stil að skola sjó og seltu af
vélunum þegar þær hafa komið inn
til lendingar.
HÆRRI HURÐ Á FLUGSKÝLI FYRIR EINN OG HÁLFAN MILLJARÐ KRÓNA
- og reisa þvottastöð til að skola sjó og seltu af kafbátaleitarflugvélum
Agusta Westland CH-149 Cormorant, björgunarþyrla kanadíska flughersins var við æfingar á Íslandi í ársbyrjun
2016. Hér er þyrlan framan við flugskýli 831 á Keflavíkurflugvelli. Til stendur að gera breytingar á flugskýlinu en
hækka þarf hurðarop svo stél Poseidon-kafbátaleitarflugvélarinnar komist inn í skýlið. Myndin hér að neðan sýnir
kafbátaleitarfélina og eins og sjá má á myndinni er stél hennar mjög hátt. Myndirnar tók Hilmar Bragi Bárðarson.
Gleðileg jól og farsælt komandi ár
Þökkum kærlega fyrir viðskiptin á árinu sem er að líða.
Sjáumst á nýju ári!
Opnunartími á Langbest yfir jól og áramót:
Þorláksmessa 11–22 - Aðfangadag lokað - Jóladag lokað - Annan jóladag opið frá 17–22
Gamlársdagur lokað - Nýársdagur opið frá 17–22
TÖLVUBÚNAÐI FYRIR 20 MILLJÓNIR STOLIÐ
- Lögregla leitar upplýsinga
Tölvubúnaði að verðmæti um 20 milljónir króna var stolið úr
húsnæði að Heiðartröð 554, Ásbrú í Reykjanesbæ aðfararnótt 6.
desember sl. Í húsnæðinu var verið að setja upp gagnaver og var
búnaðurinn til þess ætlaður. Um er að ræða 600 skjákort, 100
aflgjafa, 100 móðurborð, 100 minniskubba og 100 örgjörva og
var þetta allt glænýtt.
Sá eða þeir sem þarna voru að
verki höfðu komist inn í gegnum
lítið gat á norðurgafli hússins
en fyrir það hafði verið fest spó-
naplata. Innbrotið átti sér stað
á tímabilinu frá 20:00 að kvöldi
þriðjudagsins 5. desember til kl.
09:10 að morgni miðvikudagsins
6. desember. Í byggingu að Heiðar-
tröð 555 hafði einnig verið farið
og þaðan einnig stolið nokkru af
tölvubúnaði. Lögreglan á Suður-
nesjum rannsakar málið og biður
þá sem kunna að búa yfir upp-
lýsingum um það, að hafa samband
í síma 4442200. Jafnframt að koma
upplýsingum á framfæri sé verið
að bjóða til sölu nýjan tölvubúnað
samanber ofangreint.