Víkurfréttir - 21.12.2017, Page 8
8 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Nýjar vörur frá
Búðaráp Rönnslu og Sobbu:
Verslum í heimabyggð
Hver hefur ekki sagt oft og mörgum sinnum:
„Æi, ég nenni ekki til Reykjavíkur að versla“?
Það hafa eflaust margir brunað til höfuðborgar-
innar til þess að leita að gjöf undir jólatréð en
gripið í tómt og komið til baka í heimabyggð og
fundið það sem leitað var að. Í Reykjanesbæ eru
margar verslanir sem bjóða upp á mikið úrval
af gjafavöru fyrir unga sem aldna. Blaðamenn
Víkur frétta tóku hús á nokkrum verslunum í
Reykjanesbæ og fundu jólagjafir undir 3.000
krónum og einnig vinsælustu vöru verslananna.
Sólborg Guðbrandsdóttir
solborg@vf.is
Rannveig Jónína Guðmundsdóttir
rannveig@vf.is
BÚÐARÁP
HERRAFATAVERSLUNIN VIBES, AÐ HAFNARGÖTU 32, hefur verið starfrækt í um eitt og hálft ár og er hún full af flottum vörum fyrir fólk á öllum aldri. Derhúfur hafa verið vinsælar hjá unga fólkinu undanfarin misseri en þessar derhúfur fást í mörgum litum í Vibes á undir 3.000 krónur. Hvíti gallajakkinn er heitur í Evrópu um þessar mundir að sögn Írisar Harðardóttur eiganda og hefur rúllukraga-bolurinn líka notið mikilla vinsælda í ár.
Rúna, eigandi GALLERÍ KEFLAVÍK AÐ HAFNARGÖTU 32, er með margt flott í versluninni sinni. Þessir fallegu eyrnalokkar fást í Gallerí undir 3.000 krónur og segir Rúna að pelsarnir hafi verið afar vinsælir í ár og þeir rokið út. Þessir fallegu pelsar fást í Gallerí Keflavík en ýmsir litir eru til í búðinni.
HÚSGAGNAVERSLUNIN BÚSTOÐ er flestum Suður-
nesjabúum kunn enda rótgróin verslun í hjarta
Reykjanesbæjar, staðsett að TJARNARGÖTU 3.
Þessi fallegu hús fást hjá þeim fyrir tæpar 3.000
krónur og í rökkrinu kemur falleg birta af kertinu
inn í húsinu. Hnettirnir hafa verið vinsælir undan-
farin misseri og fást hnettir í alls konar litum og
stærðum í Bústoð.