Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2017, Page 10

Víkurfréttir - 21.12.2017, Page 10
10 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg. ÖÐRUVÍSI GJAFAVÖRUR HAFNARGÖTU 23 • ZOLO.IS HÖN NU N: VÍ KU RF RÉ TT IR Verslum í heimabyggð Í VERSLUNINNI ORMSSON, HAFNARGÖTU 25, er hægt að kaupa hin ýmsu heimilistæki, jafnt stór sem smá. Rafmagnstannburstar njóta alltaf mikilla vinsælda hjá yngri kynslóðinni og fást þessir skemmtilegu tannburstar undir 3.000 krónum í versluninni. Sous Vide eldun-araðferðin hefur heldur betur náð að heilla landann og fæst Sous Vide tæki í Ormsson en Ólöf María Karlsdóttir verslunarstjóri segir að tækið sé afar vinsælt hjá þeim. DRAUMALAND selur fallega gjafavöru sem gaman væri að fá í jólapakkann. Verslunin er staðsett að TJARNARGÖTU 2 og njóta Meriaki handsápurnar mikilla vinsælda og fást þær á undir 3.000 krónur stykkið. Rosendahl vör- urnar rjúka út að sögn Nönnu Soffíu Jónsdóttur, verslunareignanda Draumalands. Fallegu pipar- og saltstaukarnir frá Rosendahl eru tilvalin jólagjöf, klassísk og tímalaus hönnun. ÍÞRÓTTA- OG ÚTIVISTARVERSLUNIN K-S PORT AÐ HAFNARGÖTU 29 býður upp á íþróttafatnað og hlýjan og góðan útivistarfatnað á góðu verði. Hæ gt er að fá íþróttaboli í jólapakkann undir 3.000 kr ónum hjá þeim og Zo-On úlpurnar eru hlý og notaleg gjöf undir jólatréð en þær hafa verið vinsælar undanfar in misseri segir Sigurður Björgvinsson eigandi. FJÓLA GULLSMIÐUR ER STAÐSETT Á HAFNARGÖTU 34, en Fjóla hefur starfað um árabil á Hafnargötunni og hefur jólaverslunin gengið vel. Þessi fallegi bolli með Línu Langsokk fæst hjá Fjólu og kostar undir 3.000 krónur. Danska skartgripalínan Heiring nýtur mikilla vinsælda að sögn Fjólu og hafa englahálsmenin í línunni verið vinsæl í nafna- og skírnargjafir. Í VERSLUNINNI LINDEX Í KROSSMÓA 4 er hægt að fá ýmislegt sniðugt í jólapakkann fyrir jólin. Mjúku gjafirnar eru þó í miklum meirihluta hjá þeim. Þessar litríku og fallegu buxur og peysa fást undir 3.000 krónur í Lindex.Verslunarstjóri Lindex í Reykjanesbæ, Guðrún Árný Einarsdóttir, segir að pelsarnir séu mjög vinsælir um þessar mundir og en þessi fallegi bleiki pels fæst í Lindex, tilvalið í jólapakkann. Hundarnir fara svo sannarlega ekki í jóla köttinn í ár en í DÝRABÆ, KROSSMÓA 4, fást þessi r sniðugu pakkar undir jólatréð fyrir ferfættlingan a og eru þeir báðir undir 3.000 krónur saman. Í þeim er hundanammi, dót og alls kyns gotterí fy rir besta vin mannsins. Vinsælasta vara búðarinna r er hins vegar Barking Heads hundafóðrið.

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.