Víkurfréttir - 21.12.2017, Qupperneq 25
25MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
„Jökull fékk gott tækifæri að upp
lifa Grænland. Hann fór í snjósleða
ferðir með góðum ferðahóp og kynnti
íslenskar pönnukökur fyrir vinum
okkar, stundum komst ég líka með.
Einnig komumst við út á sjó, í veiði
ferðir og skoðunarferðir á litlum
bátum og ýmislegt fleira skemmti
legt.“
GEKK Í HÁLFTÍMA Í VINNUNA
Grænland er risastórt land og liggur
byggðin að mestu út við strendur í
bæjum og þorpum. Það liggja ekki
vegir á milli landshluta líkt og á Ís
landi, þannig að samgöngurnar eru
með skipum, flugvélum eða bátum.
„Ég hef örugglega ekki aldrei gengið
jafn mikið og þetta síðasta ár. Ég gekk
í vinnuna en það tók mig um 25 til
30 mínútur að ganga og mér þótti
það alveg sjálfsagt, ég tók ekki strætó
nema að það væri orðið verulega kalt
eða ég væri of sein til að ganga.“
BJUGGU Í SKÓLABÆNUM SISIMIUT
Bærinn sem Björg starfaði í heitir
Sisimiut, en þar búa rúmlega sex
þúsund manns og þar er starfrækt
sjúkrahús. Bærinn er um sjötíu kíló
metra norðan við heimskautsbaug. Á
Grænlandi eru starfrækt sjúkrahús
og heilsugæslur í stærri bæjunum,
sem einnig þjónusta þorpin í ná
grenninu, en í þeim eru einnig litlar
heilsugæslustöðvar með einum eða
tveimur starfsmönnum. „Það er að
færast í aukana að heilbrigðisstarfs
menn á Grænlandi séu grænlenskir,
sem er mikilvægt. Ljósmæðurnar
þurfa að fara til Danmerkur til að
mennta sig ásamt læknunum, en þau
koma gjarnan í starfsnám til Græn
lands. Hjúkrunarfræðingarnir eru
menntaðir í Nuuk og það er komið
upp ágætis nám þar.“
Bærinn sem Björg og Jökull bjuggu í
er skólabær, en Björg segir að námi
sé dreift vel um landið. Iðnmenntun
og menntun á heilbrigðissviðinu er til
dæmis ekki endilega í sama bænum
og svo er kennaranám staðsett annars
staðar. Þannig safnast ekki allir saman
á sama punktinn.
TALAÐI SKANDINAVÍSKU Í GRÆNLANDI
Grænlenskan er tungumál sem fáir
ná tökum á, nema að vera fæddir og
uppaldir í því málumhverfi. Það er
mjög sérstætt og ólíkt okkar nor
rænu málum hér í Skandinavíu. „Ég
talaði dönsku eða svokallaða skandi
navísku og það gekk ljómandi vel, en
við vorum alltaf með túlka með okkur
ef að þess þurfti. Oft var það þannig að
konurnar vildu fá túlka með okkur til
að byrja með svona rétt á meðan við
vorum að kynnast og svo gekk þetta
ágætlega eftir það. Grænlenskan er
mjög erfið og maður lærir ekki nema
eitt og eitt orð en það var stundum
hægt að átta sig á því hvað var verið
að tala um, því þeir eiga líka tökuorð
úr dönskunni en í heildina er þetta
gjörólíkt.“
„Á GRÆNLANDI ER ALLT FRÍTT“
Á Grænlandi var alltaf nóg að gera
og mikið um barneignir, heilbrigðis
kerfið úti er gott að sögn Bjargar og
góð þjónusta í boði. Hún segir einn
ig að grænlenskar konur séu mjög
Við erum svo heppin að
eiga góðan vin sem á
hundasleða og tók okkur
með. Það var stórkostlegt
að fara með innfæddum
manni á sleða.
Ég gekk í vinnuna en
það tók mig um 25 til 30
mínútur að ganga og mér
þótti það alveg sjálfsagt,
ég tók ekki strætó nema að
það væri orðið verulega
kalt eða ég væri of sein til
að ganga.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
Ísjakar á stangli.
Íþróttaakademía
Flugakademía
Ragnar kláraði flugnám árið 2012
og starfar nú sem flugmaður hjá
Icelandair. Hátt í 300 nemendur
stunda nú atvinnuflugmannsnám
í Flugakademíu Keilis.
Takk fyrir frábært afmælisár
Háskólabrú
Davíð útskrifaðist af Háskólabrú
árið 2014. Hann er hönnuður hjá
Porsche í Þýskalandi.
Á næsta ári verður boðið upp
á alþjóðlega Háskólabrú þar
sem hægt verður að stunda
frumgreinanámið á ensku.
Háskólabrú
Flugakademía
Hildur Björk útskrifaðist sem
atvinnuflugmaður í byrjun árs 2014
og starfar nú sem flugmaður hjá
Icelandair. Boðið er upp á bæði
áfangaskipt og samtvinnað flugnám,
auk flugnámsbrautar Icelandair.
Árið 2008 útskrifuðust 85 nemendur í fyrstu útskrift okkar, en síðan þá hafa yfir þrjú
þúsund einstaklingar lokið námi í Keili. Deildirnar eru nú orðnar fjórar með á annan
tug námsframboða, starfsfólk hátt í eitt hundrað og árleg velta nálægt einum milljarði.
Keilir var stofnaður þann 4. maí 2007 og fagnaði því tíu ára starfsafmæli á árinu sem
er að líða. Á þessum tíma hefur fjöldi háskólamenntaðra á Suðurnesjum margfaldast
samhliða því að námstækifærum hefur fjölgað á svæðinu. Keilir hefur frá upphafi
kappkostað að bjóða upp á nám sem höfðar jafnt til þarfa nútíma nemenda og krafa
atvinnulífsins, og þannig mætt örum breytingum í kennsluháttum og á vinnumarkaði.
Við þökkum samstarfsaðilum, starfsfólki og nemendum skólans - núverandi og
fyrrverandi - fyrir samstarfið og samveruna á undanförnum árum. Kærar þakkir fyrir
árið sem er að líða. Við hlökkum til þess næsta.
Tæknifræði
Fida útskrifaðist með BS gráðu í
tæknifræði og rekur nú fyrirtækið
geoSilica Iceland.Tæknifræðinámið
heyrir undir Háskóla Íslands og
undirbýr nemendur fyrir þróun
og sköpun framtíðartækni.
Háskólabrú
Fida var í fyrsta útskriftarhóp
Háskólabrúar Keilis árið 2008 en
í dag hafa yfir1.500 einstaklingar
lokið náminu og hafa 85% þeirra
haldið áfram í háskólanám.
Íþróttaakademía
Agnes útskrifaðist sem ÍAK
einkaþjálfari 2016 og starfar sem
einkaþjálfari í World Class. Námið
er hið eina sinnar tegundar á Íslandi
og hlaut á dögunum evrópska
gæðavottun EREPS.
Sigrún er tíu barna móðir á
Eyjanesi í Hrútafirði og lauk
Háskólabrú Keilis í fjarnámi
árið 2014. Hægt er að sækja
Háskólabrú í staðnámi og
fjarnámi, bæði með og án vinnu.
Guðmundur lauk leiðsögunámi í
ævintýraferðamennsku árið 2014
og rekur núna Kind Adventure.
Námið er á háskólastigi og tekur
átta mánuði, þar sem helmingur
þess fer fram í náttúru Íslands.