Víkurfréttir - 21.12.2017, Síða 26
26 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
hraustar enda sé fólk stöðugt á hreyf-
ingu og fari ferða sinna fótgangandi.
Fáir eiga bíla og fólk tekur bara strætó
eða leigubíla. „Á Grænlandi er allt
frítt, þú greiðir ekki fyrir þá læknis-
þjónustu sem þú þarft á að halda og
lyf eru frí líka, það sem þú þarft á
að halda er greitt fyrir þig, eða þú
borgar með sköttunum þínum. Ef
þú þarft meiri þjónustu eða stærri
aðgerðir eða eitthvað slíkt þá ertu
sendur til Nuuk eða Danmerkur. En
svo blekkir veðrið oft á tíðum, það
þarf jafnvel að fella niður flug vegna
veðurs og skyggnis en maður skilur
ekkert í því þegar maður lítur út um
gluggann því veðrið er gott niðri í
byggð. Sviptivindar eru sterkir og
flugvellirnir liggja undir fjöllunum.
Firðirnir eru sums staðar þröngir og
það má líkja þessu við að fljúga til Ísa-
fjarðar, það er komið inn með fjallinu
og lent. Því getur oft verið erfitt að að
fljúga, hvort sem er áætlunarvélum
eða sjúkraflugvélum.“
Snjósleðar, skíði og streitulaust líf
Björg mælir hiklaust með því að fólk
fari í svona ferðir, á Grænlandi sé
lífið til dæmis streitulaust miðað við
hvernig það er hér á Íslandi eða á
Vesturlöndum. Hún er nokkuð viss
um að hún eigi eftir að hoppa aftur
ef henni gefst tækifæri til þess en
þó ekki í ár.
„Á Grænlandi vorum við dugleg að
stunda alls konar útivist, við fórum
á gönguskíði en það er mikil skíða-
menning þarna. Við vorum með snjó-
sleðann við húsið og maður gat bara
hoppað upp á hann þegar vel viðraði
og snjórinn nægur. Við vorum í frá-
bærum snjósleðahóp sem fór í ferðir
nánast um hverja einustu helgi.“
Þau hjónin gátu farið á gönguskíð-
unum frá miðbænum og inn í bak-
landið eins og það er kallað úti, en
þar er skíðasvæði og útivistarsvæði.
„Skíðasvæðin þarna eru frábær,
þau eru svo falleg og maður tekur
nánast bara eitt skref út fyrir bæinn
og þá er maður kominn í dásamlega
náttúru.“
BERA HREINDÝR Á BAKINU
Grænlendingar eru veiðiþjóð og tekur
öll fjölskyldan þátt í því að veiða. „Ef
þú ætlar að veiða þá þarft þú að bera
Jökull fékk gott tækifæri
að upplifa Grænland.
Hann fór í snjósleðaferðir
með góðum ferðahóp og
kynnti íslenskar pönnu-
kökur fyrir vinum okkar,
stundum komst ég líka
með. Einnig komumst við
út á sjó, í veiðiferðir og
skoðunarferðir ...
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla og
farsældar á nýju ári
Fjallganga og bærinn þeirra í baksýn. Jakuxar í fjallshlíðinni.
Jökull á (Grænlands)jökli.
GLEÐILEGA HÁTIÐ
og farsælt komandi ár
ÍBÚÐIR Í HLÍÐARHVERFI
fara í sölu byrjun sumars