Víkurfréttir - 21.12.2017, Qupperneq 46
46 FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Óskum Suðurnesjamönnum
gleðilegra jóla
og farsældar á nýju ári
Keflavíkurflugvöllur í 8. sæti
í alþjóðlegri ánægjumælingu
Keflavíkurflugvöllur er með átt-
undu ánægðustu farþega heims sam-
kvæmt mælingum með Happy or
Not stöndum svonefndum, sem eru
ánægjumælingartól. Standarnir eru
víðsvegar í flugvallarbyggingunni
og notaðir til að greina sveiflur í
þjónustu og upplifun ferðafólks
niður á hvern klukkutíma dagsins.
Það er finnska fyrirtækið HappyOr-
Not sem birtir niðurstöðurnar úr
mælingum frá 160 flugvöllum í 36
löndum. CNN Europe birti fyrstu frétt
um málið. Byggt er á gögnum sem var
safnað frá nóvember 2016 til nóv-
ember 2017. Mæld var reynsla fólks
af öryggisleit, farangursafgreiðslu,
salernum og fleiru.
Keflavíkurflugvöllur er í áttunda sæti
af þessum 160 flugvöllum og ánægjan
þar meiri en til dæmis hjá farþegum
sem fóru um Heathrow-flugvöll í
Lundúnum og Óslóarflugvöll.
OPNUNARTÍMI Á FITJUM YFIR HÁTIÐARNAR:
ÞORLÁKSMESSA 11 TIL 20 // AÐFANGADAGUR 11 TIL 13 // JÓLADAGUR 16 TIL 20
ANNAR Í JÓLUM 11 TIL 20 // GAMLÁRSDAGUR 11 TIL 13 // NÝÁRSDAGUR 16 TIL 20
VIÐ SENDUM SUÐURNESJAMÖNNUM HUGHEILAR JÓLA-
OG ÁRAMÓTAKVEÐJUR MEÐ ÞÖKK FYRIR FRÁBÆRAR
VIÐTÖKUR Á ÁRINU SEM ER AÐ LÍÐA.
ISSI OG HJÖRDÍS
LOKAORÐ
ÖRVAR Þ. KRISTJÁNSSON
Jólahefðir og jólahrekkir
Það er nánast korter í jólin. Þetta er allt saman að bresta á. Mig
langar til þess að deila með ykkur sannri sögu okkar æskuvinanna,
en við gátum verið ansi miklir hrekkjalómar á árum áður. Fyrir þó
nokkuð mörgum árum síðan eða á þeim tíma þegar næstum allar
fjölskyldur sendu vinum og vandamönnum falleg jólakort og lögðu
mjög mikinn metnað í kortin, þá gerðum við vinirnir „smá“ saklaust
glens í einum úr vinahópnum. Fjölskyldumyndir eða stakar myndir
af börnunum voru algengustu form jólakortanna og það verður að
viðurkennast að mjög gaman var að fá þau flest. Margir hengdu
þetta upp sem skraut og rituðu niður frá hverjum þeir fengu kortin
til þess að gleyma ekki viðkomandi næstu jól. Á þessum tíma vann
ég í borginni og ásamt góðum vin þá keyrðum við saman nánast
daglega. Í einni slíkri ferð fengum við þá snilldarhugmynd að láta
prenta og útbúa fallegt kort frá einum besta vini okkar – sem við
sendum svo í hans nafni. Sá drengur er vandaður maður og á afar
fallega fjölskyldu en við ákváðum að nota einungis mynd af honum
framan á kortið, fundum afar bjánalega/vandræðalega mynd af
kauða og létum prenta þetta í nokkrum tugum eintaka. Að sjálfsögðu
sendum við þetta á vini hans og vandamenn, einnig nokkra ókunnuga.
Textinn var misjafn eftir því hver fékk kortið en oftast nær voru skila-
boðin nokkuð væmin og sjálfhverf enda fjölskyldumaðurinn með mynd
af sjálfum sér og engu öðru á kortinu. Þetta sló í gegn og var það afar
gaman þegar þessi vinur okkar sá eitt kortið hjá fjölskyldumeðlim
sínum sem fannst það afar undarlegt að fá tvö kort frá fjölskyldunni!
Við gátum mikið hlegið af þessu vinirnir og þetta er oft rifjað upp.
Einnig sömu jólin þá fjárfestum við í ástartæki í kynlífstækja-
búð einni í Reykjavík, fundum eitt sem var svona frekar óhuggu-
legt en í fallegum kassa. Létum pakka þessu inn og á merkimið-
anum stóð að pakkinn væri frá atvinnurekanda eins vinar okkar,
til hans. Þessu var svo laumað undir tréð hjá honum og þótti nú
frekar „spes“ gjöf frá atvinnurekandanum þó svo vinur okkar hafi
þó fljótlega kveikt á perunni enda sjálfur tekið þátt í hrekkjum og
vissi því fljótt hvaðan þessi gjöf átti uppruna sinn að rekja. Aldrei
var samt tækinu skilað, svo kannski eftir allt vakti þetta lukku?
En sem betur fer þá höfum við vinirnir þroskast og látum það duga
að hittast alltaf fyrir jól, borða saman, hlægja og rifja upp skemmti-
legar minningar. Þetta er dýrmæt jólahefð hjá mér því ég tel mig
afar ríkan af góðum vinum sem hafa fylgt mér frá á unga aldri.
Eðlilega þá hittumst við ekki jafn oft og við vildum en þegar við hitt-
umst þá er afar kátt á hjalla. Það er nefnilega þannig, sama hvað
menn raula og tauta að samveran er lang besta gjöf jólanna (ásamt
Iphone X). Fólk gefur sér þá tíma og hittist, vinir jafnt og fjölskylda.
Óska ykkur gleðilegra jóla, farið varlega um hátíðarnar og vonandi
eiga allir ánægjuleg jól.