Víkurfréttir - 21.12.2017, Side 47
47FRÉTTIR Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Sendum starfsmönnum okkar, viðskiptavinum og bæjarbúum öllum
okkar bestu jólakveðjur og óskum þeim farsældar á nýju ári.
REYKJANESHÖFN
Tímabundið
húsnæði þarf
að stækka
Tímabundið húsnæði grunnskóla
við Dalsbraut í Innri Njarðvík er
strax orðið of lítið. Ráðast þarf í
stækkun á húsnæðinu og hefur
bæjarráð Reykjanesbæjar samþykkt
að hefja framkvæmdir við stækkun
á húsnæðinu.
Í bráðabirgðahúsnæðinu er Akurskóli
með aðstöðu til að kenna nemendum
úr 1. til 3. bekk sem búa í Dalshverfi 1
og 2. Húsnæðið er úr sérsmíðuðum
gámaeiningum sem komu frá Sló-
veníu og er húsið það fyrsta sinnar
tegundar á Íslandi. Í húsinu eru
kennslustofur og samrými sem er
fjölnota.
Kostnaður við bygginguna sem tekin
var í notkun sl. haust er í kringum
150 milljónir með allri jarðvinnu og
komu allar einingarnar tilbúnar þar
á meðal með pípulögnum sem sparar
heilmikinn tíma. Einungis tók þrjár
vikur að reisa bráðabirgðaskólann.
Guðlaugur Helgi Sigurjónsson, sviðs-
stjóri umhverfissviðs Reykjanesbæjar,
segir í samtali við Víkurfréttir að um
sé að ræða rétt rúmlega 100 fermetra
stækkun. Hún er gerð svo hægt sé að
hafa skólann einsetinn fyrir 1. til 4.
bekk og því þurfu ekki að senda 4.
bekkinga aftur í Akurskóla. Kostnaður
við stækkunina er um 45 milljónir
króna en stækkuninni á að vera lokið
í lok júní á næsta ári.
FRÉTTAVAKT
ALLAN SÓLARHRINGINN
898 2222
Hafnargötu 40 - Sími 422 2200
ER UMBOÐSAÐILI
SMITH & NORLAND
Í REYKJANESBÆ
REYKJANESBÆ
HÖ
NN
UN
: V
ÍK
UR
FR
ÉT
TIR
ÞÚ FÆRÐ ALLT
Í JÓLAPAKKANN Í OMN!S
Hvort sem það eru tölvur, spjaldtölvur, tölvufylgihlutir, prentarar, Bluetooth hátalalar og heyrnatól,
myndavélar eða sjónvörp þá er nokkuð víst að við erum með skemmtilegu jólagjöfina fyrir þig og þína!
Svo erum við auðvitað með rekstrarvörurnar líka.