Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 52
52 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg.
Jólin geta verið annasamur tími og jafnvel uppfull
af streitu þótt markmið þeirra sé einmitt að njóta
og eiga góða samveru með fjölskyldu og vinum.
Hver kannast ekki við átakið í kjólinn fyrir jólin en
hvað tekur svo við þegar steikin er komin á borðið? Erum við ef til vill að gera
of miklar kröfur til okkar sem svo fyllir okkur af samviskubiti þegar við áttum
okkur á því að við fengum okkur þrisvar á diskinn af þessu dýrlega hangikjöti,
kláruðum allar sörurnar fyrir Þorlák og aðeins rauðu molarnir, sem enginn
vill, eru eftir í Machintosh-dósinnni.
Við fengum Önnu Margréti Ólafsdóttur jógakennara til þess að gefa okkur
einföld og góð ráð um holl jól og sagði hún alveg hægt að njóta og hugsa
um heilsuna um leið. Lykillinn sé að finna hið góða jafnvægi þar á milli.
FÆTUR UPP Í LOFT
Settu fætur upp við vegg og haltu stöðunni í u.þ.b. 15 mínútur. Þetta er frábær
leið til að losna við bjúg og örvar sogæðakerfið og meltingarfærin í líkamanum.
ÞRÍHYRNINGUR
Stattu með fætur gleiðar og hendur út, hallaðu þér svo til hliðar þannig að önnur
höndin nemi við ökkla og hin teygir sig upp. Þetta teygir framan á lærum og losar
um bakið okkar.
HUGLEIÐSLA
Hugleiðsla er gott ráð til þess að draga úr streitu og gerir þér um leið kleift
að klást við erfiðu frænkuna sem spyr þig á hverju ári í jólaboðinu: „Hefur
þú fitnað gæskan?”, jólagjafirnar út á land sem fóru of seint á pósthúsið og
verða að öllum líkindum afhentar rétt fyrir gamlársdag, enn eitt árið, eða
yngsta barnið sem fór út að leika í rigningunni í nýja jólakjólnum sem þú
pantaðir af asos og má alls ekki fara í þvottavél.
Þá er nauðsynlegt að muna að anda. Þegar við erum undir álagi er öndunin
grynnri og hugleiðsla er ein leið til þess að stjórna önduninni, sem er okkur
lífsnauðsynleg. Slíkt má auðveldlega gera heima hjá sér í ró og næði.
EINFÖLD JÓLAHUGLEIÐSLA SEM HÆGT ER AÐ GERA HVAR SEM ER
Gefðu þér 15 mínútur til þess að hugleiða og áður en þú veist af verða jólin
viðráðanlegri og þér alveg sama þótt sósan sé fjólublá eða að kötturinn hafi
étið allan graflaxinn.
■■ Taktu frá stund á rólegum stað þar sem
þú verður ekki trufluð/-aður. Sestu með
fæturna beina á gólfinu og einbeittu þér
að önduninni.
■■ Finndu þegar heitur andardrátturinn
fer úr líkamanum í gegnum nasirnar
og hversu kalt loftið er þegar það fyllir
lungun.
■■ Leyfðu líkama þínum smám saman að
slaka á. Taktu eftir spennu í líkamanum
og slepptu henni. Hlustaðu á kliðið í
huganum og leyfðu því að fjara út þar
til hugurinn róast.
■■ Reyndu að sitja og vera kyrr í augna-
blikinu án þess að hugsa um fortíð eða
framtíð. Leyfðu þér einfaldlega að vera.
10 hollráð fyrir jólin
1.Farðu út og njóttu þess að vera úti, í það minnsta færðu súrefni því það er nóg af því hér á Suður-
nesjum.
2. Drekktu mikið vatn. Það er gott að kreista hálfa sí-trónu út í soðið vatn áður en þú borðar að morgni.
Það hreinsar meltingarveginn og hjálpar líkamanum
að losa sig við óæskileg efni, einnig verður kviðurinn
minna þaninn og minni líkur eru á brjóstsviða.
3. Farðu á hvolf. Hallaðu þér fram þannig að höfuð sé neðar en hjartað. Þú getur prufað að standa á
höndum, höfði eða einfaldlega hallað þér fram. Við
þetta minnkar sljóleiki t.d. eftir jólamatinn eða jólabíó-
myndina. Að snúa sér við hefur mjög marga kosti í för
með sér en svo dæmi sé nefnt er það gott fyrir hjartað,
blóðrásina og geðið!
4. Lyftu fótum upp í loft, annað hvort með því að fara í axlarstöðu eða leggjast með fætur upp við
vegg og halda stöðunni þannig eins lengi og við þolum,
10-15 mínútur er frábært! Þetta er frábær leið til að
losna við bjúg og örva sogæðakerfið og meltingarfærin
í líkamanum.
5. Það er mjög gott að teygja psoasinn (hann er beygju-vöðvi í mjöðminni sem liggur frá mjóbaki, fram yfir
mjaðmir og festist á innanverðum lærlegg). Ef við erum
of mikið í sitjandi stöðu getum við fengið illt í bakið, en
ef við teygjum á þessum vöðva með því að standa, gera
þríhyrning eða teygja framan á lærum þá erum við að
losa um bakið okkar.
6. Við sitjum mikið á jólum; við sitjum í bílnum á leið í jólaboðið, við sitjum við matarborðið og við
sitjum þegar við opnum pakkana, lesum eða horfum á
sjónvarpið. Það er mjög gott að brjóta þetta upp, prófið
að setjast á gólfið eða leggjast á magann. Ef þú getur
gengið í jólaboðið eða í kirkjuna þá er það eina vitið.
7. Leyfðu þér að njóta á jólum, ekki fá samviskubit þótt þú hafir borðað of mikið af reyktu kjöti eða varst
gripin við það að sleikja síðustu leifarnar af sósunni
upp með puttunum. Drekktu þá bara meira af vatni á
móti og ekki hafa áhyggjur.
8. Mundu að hlæja og njóttu þess að hitta ættingjana, sem þú hittir kannski ekki oft, og góða vini. Spilaðu
fáránleg spil með fjölskyldunni, farðu út að renna eða
notaðu ímyndunaraflið til að gera eitthvað sem losar
um hláturtaugarnar. Það er ótrúlega hollt að hlægja.
9. Faðmlag er manninum lífsnauðsynlegt. Það er um að gera að sækja sér nógu mikla orku og kærleik og
senda hana frá sér til baka inní nýja árið. Þótt þú náir
ekki að hitta alla þá sem þig langar að hitta eða hittir
einmitt þá sem þið langar ekki að hitta í jólaboðum
reyndu þá bara að senda þeim fallegar hugsanir og hlýju,
gott faðmlag getur líka losað um leiðindarsamskipti,
það þarf kannski ekkert alltaf að orða allt.
10. Jólin eru tími samveru og hún getur reynt á okkur. Ekki taka þessu of alvarlega, hefðir eru
góðar en það er líka allt í lagi að breyta til ef maður þarf
þess. Ef þú treystir þér bara alls ekki í leiðindarjólaboð
þessi jólin þá er betra að láta vita með góðum fyrirvara
og vera bara heima.
Holl og góð jól
Dagný Maggýjar
dagny@vf.is
VIÐTAL
HÖFUÐSTAÐA
Það hefur mjög marga kosti í för með sér að
standa á haus, það er m.a. gott fyrir hjartað,
blóðrásina og geðið. Þú getur líka hallað þér
fram þannig að höfuð sé neðar en hjartað.