Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 54

Víkurfréttir - 21.12.2017, Blaðsíða 54
54 MANNLÍF Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg. + Umsóknum er skilað inn rafrænt á heimasíðu IGS fyrir 15. janúar 2018 I www.igs.is Icelandair Ground Service er hjartað sem knýr æðakerfi Keflavíkurflugvallar. Við tökum á móti farþegum alls staðar að úr heiminum. Hlutirnir þurfa að ganga fljótt og vel fyrir sig á fjölfarinni, alþjóðlegri skiptistöð og hver einasti starfsmaður okkar skiptir þar miklu máli. Okkur vantar kraftmikið og þjónustulundað fólk í fjölbreytt og skemmtileg störf við farþega­ afgreiðslu. Unnið er á breytilegum vöktum. Umsækjendur þurfa að vera tilbúnir að sækja undirbúningsnámskeið. HÆFNISKRÖFUR: n 20 ára lágmarksaldur n Stúdentspróf æskilegt en ekki skilyrði n Almenn ökuréttindi n Góð tungumála­ og tölvukunnátta n Samskiptahæfni, reglusemi og stundvísi VILTU VINNA ÞAR SEM HJARTAÐ SLÆR? Störf í farþegaafgreiðslu IGS Eitt skref af ótal mörgum Undir jól og áramót ár hvert hyggja menn að næsta ári og hafa oftast uppi góðar vonir. Á yfirstandandi ári urðu stjórnmálamenn og kjósendur að takast á við stjórnarslit og nýjar kosningar. Í desember tókst að setja saman nýja ríkisstjórn með nokkuð óvæntu mynstri, jafnvel mjög umdeildu meðal kjósenda og fé- laga flokkanna. Félagsmálastjórn Stjórnarsamningurinn er vissu- lega sáttmáli; málamiðlun milli mjög ólíkra, jafnvel andstæðra, stjórnarmiða og stefna. Félags- hyggja er þar með sterkum svip en allmörg málefni látin liggja milli hluta eða þau sett í skoðun. Samsteypustjórnin verður til við sérstakar aðstæður þar sem pólitískar línur og skilaboð reyndust flókin. Lögð verður að þessu sinni aðaláhersla á að koma af verulegum þunga á móts við ákall fólks um úrbætur lífsskilyrða eftir neyðarvið- brögð vegna fjármálahrunsins í fyrstu og svo of hægar endur- bætur eftir þau. Verkefnin eru ærin, hvort sem horft er til heil- brigðis-, skóla- eða almanna- tryggingarmála, til rannsókna, nýsköpunar, byggðamála, jafn- réttis eða gegnsæis í stjórnkerfi og hagsmunatengslum, hvað þá launamála, atvinnuvega og inn- viða í samgöngum. Inn í flest öll fyrrgreind málefna- svið fléttast umhverfismál og þá sér í lagi aðgerðir í loftslags- málum, allt frá orkuskiptum í samgöngum og útgerð til endur- heimta landgæða og bindingar kolefnis. Sjáum til Verkin tala og koma mun í ljós hvort vonir fólks, sem m.a. má lesa að dálitlu leyti úr fyrstu viðhorfskönnunum, gangi eftir. Félagshyggjufólk einsetur sér að vera málsvari hins vinnandi manns og gerir sitt besta til að svo fari á næstu árum. Til langrar framtíðar þörfnumst við nýs hagskerfis sjálfbærni, jöfn- uðar og hófsemdar, grænna og mannúðlegra viðmiða, og jafn- vægis milli náttúrunytja og nátt- úruverndar. Ég tel okkur taka smáskref í þá átt með samstarfi þriggja ólíkra flokki á Alþingi að þessu sinni. Takist það bærilega, er tíma á þingi eins vel varið og kostur er í núverandi stöðu. Lesendum og öllum íbúum Suðurkjördæmis sendi ég hlýjar hátíðarkveðjur. Ari Trausti Guðmundsson Höfundur er þingmaður VG í Suðurkjördæmi. Tímamót í starfi Miðflokksins Tímamót voru í starfi Miðflokksins miðvikudaginn 13. desember sl. þegar fyrsta kjördæmafélag flokksins, Miðflokksfélag Suðurkjördæmis, var stofnað á Sel- fossi. Mikill fjöldi sótti stofnfundinn víða að úr kjör- dæminu. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, formaður Miðflokksins, og Birgir Þórarinsson, þingmaður Suðurkjördæmis, ávörpuðu fundinn. Hlutverk kjördæmafélagsins nú í upphafi verður að styðja við félagsstarf innan Suðurkjördæmis, aðstoða við stofnun staðarfélaga og ýta úr vör í samráði við félagsmenn í kjördæminu undirbúningi fyrir sveitar- stjórnarkosningar sem fram fara vorið 2018. Þeir sem hafa áhuga á því að taka þátt í málefnastarfi flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 geta nú haft samband við stjórn félagsins í Suðurkjördæmi. Stjórn og varamenn félagsins skipa Einar G. Harðarson formaður, Óskar H. Þórmundsson, Sverrir Ómar Vic- torsson, Margrét Jónsdóttir, Herdís Hjörleifsdóttir, Sigrún Gísladóttir Bates varaformaður, G. Svana Sigur- jónsdóttir og Sæmundur Jón Jónsson. Mótaðu framtíðina með okkur, Miðflokkurinn í Suðurkjördæmi www.facebook.com/midflokkurinn.is/ sudur@midflokkurinn.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.