Víkurfréttir


Víkurfréttir - 21.12.2017, Qupperneq 58

Víkurfréttir - 21.12.2017, Qupperneq 58
58 VIÐSKIPTI Á SUÐURNESJUM f immtudagur 21. desember 2017 // 50. tbl. // 38. árg. Fyrirtæki á Suðurnesjum taki sig taki og ráði fatlað fólk til vinnu „Við viljum ekki vorkunn“ „Ég er rosaleg félagsvera og get hjálpað fólki,“ segir Konráð Ólafur Eysteinsson sem starfar hjá Isavia „Þegar ég útskrifaðist af starfsbraut í Fjölbrautaskóla Suðurnesja var ég hreinlega á endastöð,“ segir Kon- ráð Ólafur Eysteinsson, en hann er greindur með einhverfu, ofvirkni og ADHD og er ósáttur með það að fatlað fólk hafi nánast ekkert val um hvað það starfi við. Í dag hefur Konráð hins vegar starfað í tvö ár hjá Isavia í Flugstöð Leifs Eiríks- sonar en hann vill að fleiri fyrirtæki á Suðurnesjum taki sig taki og ráði fatlað fólk í vinnu til sín. „Okkur er hreinlega vorkennt, en við viljum ekki vorkunn. Alls staðar þar sem ég kem fyrr ég fyrir lítillækkun. Ég var einu sinni að vinna í Dósaseli, en þar fékk ég 45 þúsund krónur á mánuði. Mamma var þar einn daginn að bíða í röð eftir aðstoð. Þá var kona fyrir framan hana sem spurði fyrir framan alla hvort þetta „þroska- hefta pakk“ gæti ekki unnið hraðar. Mamma hefur bara aldrei orðið jafn reið. Við finnum fyrir einhverjum fordómum á hverjum einasta degi og það er erfitt að lifa með þessu. Við reynum að hunsa þetta en það er ekkert alltaf hægt.“ Konráð vill til dæmis að fleiri leik- skólar, grunnskólar, matsölustaðir, bakarí og elliheimili ráði fatlað fólk til sín í vinnu. „Mig langaði til dæmis einu sinni að verða bakari og ég fékk að fara í starfsnám í Sigurjónsbakarí. Svo væri ég til í að prófa einhvern tímann að vera gangavörður í grunn- skóla, en samt ekki strax því mig langar ekki að hætta hjá Isavia, það er mjög gaman.“ Aðspurður hvernig það sé að vinna hjá Isavia segir Konráð vinnuna sína ótrú- lega skemmtilega og að honum líði vel þar. „Vinir mínir mæta í vinnuna klukkan sex og það er ekki gaman hjá þeim fyrr en ég mæti,“ segir hann og hlær. „Við erum alltaf að fíflast í hvoru öðru. Við sjáum um að taka saman kerrurnar og fylla á bæklinga. Það er gaman þarna og það er svo mikilvægt að hafa gaman í vinnunni.“ Þegar fólk talar um það við Konráð að hann vinni allar helgar, um jólin og áramótin sem eitthvað slæmt þá bendir Konráð fólki á það að hann fái nú samt borgað fyrir að vinna. Konráð hefur margsinnis heyrt fólk nota orðin „fatlaður“ og „þroska- heftur“ sem eitthvað niðrandi. „Það var oft notað á mig og það er skelfi- legt. Ég vissi ekkert að ég væri fatl- aður þegar ég var barn. Ég hugsaði samt með mér að það hlyti að vera eitthvað að, ég hafði það hreinlega ekki í mér að fara upp að næstu mann- eskju og tala við hana ef mig langaði það.“ Í dag segir Konráð þó að hlut- irnir séu breyttir. „Í dag held ég ekki kjafti,“ segir hann hlæjandi. Það skemmtilegasta sem Konráð gerir er að vera í góðra vina hópi, en hann elskar þar að auki allar boltaíþróttir. „Ég elska bara lífið.“ Ef hann fengi að ráða hvað hann yrði í framtíðinni myndi hann vilja vera lögfræðingur. „Ég er rosaleg félags- vera og get hjálpað fólki. En ég komst ekkert í háskólann, það var ekkert hægt að redda því.“ Aðspurður hvort Konráð telji að hann væri betri starfsmaður ef hann væri ekki með fötlun segir hann svo ekki vera. „Ég hélt það samt alltaf fyrst. Ég sagði við mömmu og pabba að mér liði illa með það að vera fatlaður. En þau sögðu mér alltaf að þau elskuðu mig eins og ég er. Það lítur enginn í fjöl- skyldunni minni á mig sem fatlaðan einstakling. Fatlað fólk er alveg fólk. Ég er ekkert verri en þú,“ segir hann. Konráð Ólafur vill hvetja fyrirtækin á Suðurnesjum til að prófa þetta og bætir því við að ef umgjörðin hjá fyrir- tækjum sé í lagi geti það hjálpað þeim að hafa fatlað fólk í vinnu. Sendum íbúum Suðurnesja hugheilar jóla- og nýárskveðjur Sólborg Guðbrandsdóttir solborg@vf.is VIÐTAL
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.