Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 23

Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 23
Líkt og margir aðrir hef ég mælt fyrir því frá því löngu fyrir hrun og fyrir einkavæðingu bank- anna 1998-2003 að erlendir bankar væru fengnir hingað til lands. Þess var og er þörf til að auka samkeppni á fjármálamarkaði til hagsbóta fyrir heimili og fyrirtæki og til að stía stjórnmálamönnum og vinum þeirra frá bankarekstri svo sem brýna nauðsyn hefur borið til allar götur frá heimastjórnarárunum eftir aldamót- in 1900. Einna helzt hafa kanadískir og norrænir bankar komið til álita, kanadískir bankar vegna þess að þeir hafa aldrei komizt í kröggur, jafnvel ekki í heimskreppunni 1929-1939, og norrænir bankar sem hafa siglt lygnan sjó án áfalla undangenginn aldarfjórðung. Mikinn vaxtamun á Íslandi, þ.e. háa útlánsvexti og lága innlánsvexti, má að miklu leyti rekja til fákeppni sem á engan sinn líka í nálægum löndum. Erlendir bankar starfa jafnvel í dreifðum byggðum Noregs upp eftir allri vesturströnd þess Erlendir bankar og Ísland Þorvaldur Gylfason Í dag vogskorna lands. Norðmenn eignast flestir húsin sín svo að segja skuldlaus fyrir fimmtugt. Íslendingar dragast margir áfram með námslán á bakinu fram á elliár að ekki sé talað um húsnæðislán. Ísland er eina landið í Evrópu þar sem erlendir bankar eiga ekkert í innlendum bönkum og starf- rækja ekki heldur útibú. Hvernig skyldi standa á þessu? Ein heiðarleg tilraun var eyðilögð, önnur var glæpsamleg, hún tókst Hefur verið reynt að laða trausta erlenda banka að íslenzkum banka- rekstri? Skandinaviska Enskilda Banken, einn helzti banki Svíþjóðar, var að því kominn að kaupa þriðj- ungshlut í Landsbanka Íslands 1998 fyrir frumkvæði viðskiptaráðuneytis- ins. Þetta frumkvæði mæltist ekki vel fyrir í forsætisráðuneytinu og voru Svíarnir því sendir heim þar eð væn- legra þótti að „Landsbankinn kæmist í hendur manna sem Sjálfstæðis- flokkurinn hefði a.m.k. talsamband við“, eins og Styrmir Gunnarsson ritstjóri Morgunblaðsins lýsti svo eftirminnilega í bókinni Forsætisráð- herrar Íslands: Ráðherrar Íslands og forsætisráðherrar í 100 ár (2004, bls. 467). Nokkru síðar var Landsbankinn keyrður í kaf og bankakerfið allt eins og það lagði sig með hörmulegum afleiðingum fyrir mikinn fjölda fólks og fyrirtækja innan lands og utan. Margir bankamenn fengu fangelsis- dóma, sumir langa. Málamyndakaup þýzka bankans Hauck & Aufhäuser á eignarhlut ríkisins í Búnaðarbanka Íslands 2003 er kafli út af fyrir sig. Sérstakri rann- sóknarnefnd Alþingis tókst ekki að upplýsa hvert hagnaðurinn af þeim málamyndagerningi rann. Frá hruni 2008 hefur samkeppni minnkað á bankamarkaði þar eð flestir sparisjóðirnir eru horfnir. Stóru bankarnir þrír eru ennþá allir eins. Aðrar tilraunir? Hafa aðrar tilraunir verið gerðar til að laða erlenda banka að innlendum bankarekstri? – þó ekki væri nema til að draga úr líkum þess að sagan endurtaki sig. Um það er engum skrifuðum heimildum til að dreifa. Eina leiðin til að komast að því er að spyrja menn sem hafa vitneskju um málið innan stjórnsýslunnar en hafa ekki hirt um að halda henni til haga handa almenningi. Sumir þessara manna fullyrða í einkasamtölum að reynt hafi verið að selja erlendum bönkum hluti í íslenzkum bönkum en enginn erlendur banki hafi sýnt því áhuga. Ekki fylgir sögunni hversu oft eða alvarlega þetta hefur verið reynt eða hversu stórir eignarhlutir erlendum bönkum stóðu til boða. Skýringarnar sem erlendir bankar eru sagðir gefa á áhugaleysi sínu eru einkum þær að þeir nenni ekki að eiga neinn hluta afkomu sinnar undir óstöðugri íslenzkri krónu og þeirri rekstraróvissu sem henni fylgir, sömu óvissu og íslenzk fyrirtæki og heimili þurfa flest að búa við. Því er bætt við að erlendu bankarnir telji nóg að þjónusta íslenzk stórfyrirtæki líkt og þeir gera nú þegar í allstórum stíl (flugvélakaup, skipakaup o.fl.) og nenni ekki að sinna heimilum og litlum eða meðalstórum fyrirtækjum. Loks er því stundum bætt við að erlendir bankar nenni ekki heldur að búa við spillinguna og vitleysuna sem veður uppi á Íslandi. Bagalegt er að stjórnvöld skuli ekki hafa greint opinberlega frá umræddum tilraunum til að laða erlenda banka að landinu. Hví skyldu kjósendur – vinnuveitendur stjórn- valda! – ekki fá að vita hvernig landið liggur? Hvernig á fólkið í landinu t.d. að geta myndað sér skoðun á valinu milli íslenzkrar krónu og upptöku evrunnar ef því er haldið leyndu að viðvarandi ófremd í bankamálum landsins mann fram af manni stafar m.a. af óstöðugleika krónunnar sem enginn erlendur banki vill sjá? Vantraust Bankasaga Íslands hefur verið sam- felld hörmungasaga frá öndverðu. Nýju bankarnir sem reistir voru á rústum gömlu bankanna hafa ekki lært nærri nóg af hruninu eins og ráða má t.d. af ótæpilegum kaup- greiðslum til stjórnenda bankanna og miklu vantrausti almennings í garð þeirra. Ný könnun Gallups sýnir að fjórir af hverjum fimm sem spurðir eru vantreysta bankakerfinu og þrír af hverjum fjórum vantreysta Fjármálaeftirlitinu. Jafnvel Alþingi nýtur meira trausts en bankarnir og FME þótt mjótt sé á munum. Ríkissjóður seldi nýlega 13% eignarhlut sinn í Arion banka til vogunarsjóða sem voru fyrir í eig- endahópnum og gengur þannig þvert gegn fyrri yfirlýsingum um nauðsyn dreifðara eignarhalds. Vogunar- sjóðir eiga ekkert erindi í varfærinn bankarekstur. Fjármálaeftirlit sem fáir treysta virðist ekki líklegt til að veita vogunarsjóðunum viðnám. Jafnréttislög hafa verið í gildi hér á landi í rúm 40 ár og tekið nokkrum breytingum á þeim tíma. Ljóst er að frá setningu laganna hefur staða jafnréttismála breyst verulega til batnaðar. Engu að síður er kynbundinn launamun- ur viðvarandi vandamál og konur eru í minnihluta í öllum áhrifa- stöðum hvert sem litið er. Þá er kynferðisleg og kynbundin áreitni á vinnustöðum stórkostlega alvar- legt mál eins og nýlegar frásagnir kvenna hafa leitt í ljós. Árið 2008 fór fram heildarendur- skoðun á jafnréttislögum. Þá voru tekin tvö skref sem áttu að stuðla að því að markmiði laganna um jafnrétti kynjanna yrði náð. Í fyrsta lagi voru úrskurðir kærunefndar jafnréttismála gerðir bindandi og í öðru lagi var kveðið á um sektar- heimildir Jafnréttisstofu. Sektirnar geta numið allt að 50.000 kr. á dag þar til viðunandi úrbætur hafa verið gerðar. Slíkum dagsektum hefur hins vegar aldrei verið beitt. Háar sektir við brotum á nýrri persónuverndarlöggjöf Á þessu ári mun ný persónuverndar- löggjöf taka gildi hérlendis þegar ný reglugerð Evrópusambandsins (ESB) um persónuvernd leysir af hólmi núgildandi Evrópulöggjöf. Lögunum er m.a. ætlað að vernda rétt einstaklinga til að stjórna eigin persónuupplýsingum. Brot á per- sónuverndarlöggjöfinni munu geta haft miklar efnahagslegar afleið- ingar í för með sér fyrir fyrirtæki, stofnanir og aðra sem vinna með persónuupplýsingar. Eftirlitsstofn- anir munu geta sektað fyrirtæki um allt að 4% af árlegri heildarveltu á heimsmarkaði fyrir brot á lögunum eða sem nemur allt að 20 milljónum Sektarákvæði jafnréttislaga hefur aldrei verið nýtt evra. Slíka sekt verður t.d. hægt að leggja á hafi fyrirtæki farið gegn markmiðum laganna eða ef ekki liggur fyrir fullnægjandi samþykki frá einstaklingi fyrir því að unnið sé úr persónugreinanlegum gögnum um hann. Í marga mánuði hafa fyrir- tæki og stofnanir unnið hörðum höndum að því að undirbúa inn- leiðingu persónuverndarlaganna, m.a. til þess að forðast sektir. Brot á jafnréttislögum hafi efnahagslegar afleiðingar Eins og staðan er nú hefur það engar efnahagslegar afleiðingar fyrir fyrirtæki, stofnanir og ein- staklinga að brjóta jafnréttislögin. Félags- og jafnréttismálaráðherra hefur skipað starfshóp sérfræðinga til að hefja undirbúning að heildar- endurskoðun laga nr. 10/2008, um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla. Starfshópnum er ætlað að vinna úttekt á þróun, fram- kvæmd og eftirfylgni íslenskrar jafnréttislöggjafar og stjórnsýslu jafnréttismála og á að skila af sér haustið 2018. Í framhaldinu mun þverpóli tísk nefnd taka við og skila ráðherra drögum að lagafrumvarpi sem ætlað er að auka skilvirkni og stuðla enn frekar að jafnrétti kynjanna og eflingu úrræða, auk tillagna að framtíðarskipan stjórn- sýslu jafnréttismála. Þetta eru góð og gild markmið en það er mat mitt að því miður sé eina ráðið að fara að fordæmi nýrra persónuverndarlaga og fylgja brotum á jafnréttislögum kröftug- lega eftir með háum sektum. Það er það eina sem virkar þangað til raunverulegt jafnrétti er komið á hér á landi. Bankasaga Íslands hefur verið samfelld hörmunga- saga í meira en hundrað ár. Nýju bankarnir sem reistir voru á rústum gömlu bankanna hafa ekki lært nærri nóg af hruninu eins og ráða má t.d. af ótæpilegum kaupgreiðslum til stjórn- enda bankanna og miklu vantrausti almennings í garð þeirra. Erna Guðmundsdóttir framkvæmda- stjóri BHM Hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs eru árlega veitt vísindamanni sem snemma á ferlinum þykir hafa skarað fram úr og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrki stoðir mannlífs á Íslandi. Óskað er eftir tilnefningum til Hvatningarverðlauna Vísinda- og tækniráðs 2018. Verðlaunin eru þrjár milljónir króna. Tilnefningar geta komið frá öllum sviðum vísinda, tækni og fræða. Tilnefna má vísindafólk sem starfar á Íslandi við háskóla, rannsóknastofnanir, fyrirtæki eða er sjálfstætt starfandi. Öllum, sem eru í aðstöðu til að meta störf einstakra vísindamanna, er heimilt að senda tilnefningar. Ferilskrá vísindamannsins skal fylgja tilnefningu ásamt rökstuðningi þess sem tilnefnir. Hvatningarverðlaunin verða afhent á Rannsóknaþingi Rannís í vor. Frestur til að skila inn tilnefningum er til og með 12. apríl 2018. Tilnefningum ásamt rökstuðningi og ítarlegum upplýsingum um feril tilnefndra skal skilað með tölvupósti til Rannís á netfangið rannis@rannis.is Nánar á www.rannis.is Tilnefnin gar óska st! S k o ð u n ∙ F R É T T a B L a ð i ð 23F i M M T u d a g u R 8 . M a R S 2 0 1 8 0 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 4 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 F 2 4 -F F 3 4 1 F 2 4 -F D F 8 1 F 2 4 -F C B C 1 F 2 4 -F B 8 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 7 2 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.