Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 24

Fréttablaðið - 08.03.2018, Blaðsíða 24
Árið 1975 lýstu Sameinuðu þjóðirnar því yfir að 8. mars skyldi vera alþjóðlegur baráttudagur kvenna fyrir friði og jafnrétti. Hugmyndin að sérstökum baráttudegi kvenna er þó mun eldri og fæddist við upphaf 20. aldar á miklum umbrotatímum í kjölfar iðnvæðingar á Vesturlöndum. Fyrstu árin voru helstu baráttumálin kosn- ingaréttur kvenna og réttindi verka- kvenna en áherslur hafa í gegnum árin verið margvíslegar og fara eðlilega eftir helstu baráttumálum kvenna í samfélaginu hverju sinni. Menningar- og friðarsamtökin MFÍK hafa frá árinu 1984 ásamt fjölda félagasamtaka haldið daginn hátíðlegan með metnaðarfullri dag- skrá. Í ár er yfirskrift fundarins Konur gegn kúgun og er það engin tilviljun að þessi yfirskrift varð fyrir valinu í ár. Á tyllidögum eru gjarnan haldnar miklar ræður um að konur hafi það hvergi betra en á Íslandi. Hér hafi konur og karlar jöfn tækifæri skv. lögum, hér ríki (næstum) fullt jafn- rétti og gott ef við erum ekki heims- meistarar í því. Það getur verið gott að draga fram það sem vel gengur og skiljanlega reyna íslensk stjórnvöld að miðla því sem hér hefur verið gert til að vera fyrirmynd meðal þjóða heims. Þetta má þó ekki leiða til þöggunar á þeirri baráttu sem eftir er, því vissulega má og þarf að gera betur. Konur á Íslandi eru svo sannarlega meðvitaðar um að þær hafa það gott samanborið við konur víðsvegar um heiminn enda fá þær að heyra það í hvert skipti sem þær voga sér að berj- ast fyrir bættum kjörum hér heima. Konur fá líka reglulega að heyra að þær séu ekki að berjast fyrir rétta málefninu og jafnvel þótt þær rambi á rétt málefni eru þær ekki að gera það á réttan hátt, framsetning, málfar eða fas ætti að vera öðruvísi. Undanfarnir mánuðir hafa verið viðburðaríkir í kvennabaráttunni. Konur hafa stigið fram á Íslandi eins og víða erlendis og nýtt kvennasam- stöðu í ýmsum hópum þjóðfélagsins til að afhjúpa kerfisbundna kúgun sem felst í kynferðislegu ofbeldi og kynbundnu misrétti. Sögurnar eru margar og margvís- legar. Við höfum heyrt sögur af því að konur fái ekki eðlilegan framgang og/eða virðingu vegna kyns síns. Við höfum heyrt sögur af því að konur sitji undir klámtengdri orðræðu sem hvergi ætti að líðast. Við höfum heyrt sögur um snertingar, káf og nauðganir. Þetta eru ekki einstök tilvik. Þetta er kerfisbundið. Þetta er inngróið í menningu okkar og er grasserandi í íslensku samfélagi, óháð öllum heimsmetum í jafnrétti. Konur á Íslandi eru fullkomlega meðvitaðar um að ástandið er verra víða. Sums staðar fá konur ekki einu sinni að vinna. Það skiptir bara engu máli í þessu samhengi. Konur munu ekki lengur sitja undir því að þær eigi að einbeita sér að öðru, að þær eigi bara að vera duglegri. Konur ætla ekki að láta kúga sig lengur. Konur þurfa frið. Konur þurfa frið Auður Lilja Erlingsdóttir formaður SHA og fulltrúi í undirbúnings­ nefnd 8. mars Til að reka öflugt heilbrigðis-kerfi þarf ekki bara að auka fjármagnið sem í það fer. For- gangsverkefni er að mynda heild- stæða stefnu í heilbrigðismálum sem nýleg skýrsla ríkisendurskoð- anda kallar á. Til þessa verks þarf að kalla að fólk frá mörgum stofnunum og ekki bara stjórnendur heldur einnig fólkið sem vinnur á gólfinu og hefur sýn á málið þaðan. Læknar þurfa að þora að taka umræðuna um skiptingu fjármagns í hin ýmsu verkefni kerfisins og þá gagnrýni að í sumum tilvikum sé um oflækning- ar að ræða þegar skoðaðar eru tölur um vissar aðgerðir í samanburði við nágrannalönd okkar. Álag á starfsfólk heilbrigðis- stofnana hefur verið vaxandi allt frá hruni og sér ekki fyrir endann á því. Allir vita að plássleysið á Land- spítala hamlar vissulega því góða starfi sem þar fer fram. Til að nefna sláandi dæmi var 56% af hjartaað- gerðum á Landspítala frestað árið 2017. Alls var 36% aðgerða frestað vegna plássleysis á gjörgæsludeild spítalans og 20% vegna annarra ástæðna eins og mönnunar hjúkr- unarfræðinga. Það sjá allir að það hlýtur að vera erfitt að vera búinn að undirbúa sig undir hjartaaðgerð og fá svo þær fréttir samdægurs að ekkert verði af aðgerðinni. Ekki bara fyrir sjúklinginn heldur einn- ig fyrir aðstandendur sem hafa gert ráðstafanir varðandi frí úr vinnu og ég tala nú ekki um fólk utan af landi sem hefur útvegað sér húsnæði hér í höfuðborginni. Það er líka óþægi- legt fyrir starfsfólk spítalans sem hefur undirbúið að gera aðgerðina þennan dag. Það er skiljanlegt að einhverjum aðgerðum þurfi að fresta vegna álags eða ófyrirsjáan- legra atvika og er það vel þekkt erlendis en að yfir helmingi aðgerða á ársgrundvelli sé frestað getur ekki talist í lagi. Hvað er til ráða? Það er sorglegt að horfa á marga hjúkrunarfræðinga með allt að sex ára háskólanám að baki eins og skurðhjúkrunarfræðinga og svæfingarhjúkrunarfræðinga kjósa annan starfsvettvang eins og til dæmis flugfreyjustarfið. Þetta er eitthvað sem stjórnvöld þurfa að átta sig á og koma að borði í launa- samningum við kvennastéttir sem starfa í heilbrigðisgeiranum. Til að gera starfið á þessum stofnunum aðlaðandi þarf að bæta launa- kjör þessara stétta, vinnuaðstöðu og vaktaálag. Landspítalinn hefur brugðist við með svokölluðu Heklu- verkefni en meira þarf að koma til. Starfsmannastefna Landspítalans sem er sú að ráða einungis lækna í 100% starfshlutfall við sjúkra- húsið er ekki til þess fallin að laða lækna heim úr sérnámi. Við erum fámennt land og því er nauðsynlegt fyrir suma sérgreinalækna að halda sér við faglega með því t.d. að starfa hluta úr ári erlendis. Við höfum misst marga góða kollega úr okkar röðum á Landspítalanum vegna þessarar stefnu og það bitnar beint á sjúklingum okkar sem ættu að fá bestu mögulegu þjónustu sem í boði er á hverjum tíma. Varðandi húsnæðismálin, þá er ekki nóg að byggja við gamlar byggingar á Hringbraut eða reisa ný hjúkrunarheimili til að leysa fráflæðisvanda spítalans. Það þarf að manna þessar byggingar og við viljum fólk í þessi störf sem líður vel í vinnunni og hlakkar til komandi verkefna. Vissulega þarf að koma þeim öldruðum sem hafa hlotið þjónustu á sjúkrahúsinu áfram á hjúkrunarheimili og þannig skapa rými fyrir sjúklinga sem þurfa inn- lögn og eiga ekki að liggja á göngum eða bíða tímunum saman á bráða- móttöku eftir þjónustu. Álag á starfsfólk bráðamóttökunnar hefur lengi verið óeðlilega mikið en það er nefnilega þannig að þangað geta allir leitað, þar eru aldrei allir tímar uppbókaðir og engum er vísað frá. Nú hafa tvær öflugar konur tekið við í forystusveit íslenska heil brigðis kerfisins, þær Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Alma D. Möller, nýskipaður landlæknir. Ég trúi því að þær taki samtalið við fólkið á gólfinu til að byggja upp öflugra kerfi þar sem sjúklingurinn er settur í öndvegi. Fyrir síðustu alþingiskosningar var það rauður þráður í stefnu allra flokka að hlúa að innviðum og styrkja heilbrigðiskerfi okkar enn frekar. Það eru því bjartir tímar fram undan nú þegar fer að birta og vorið er á næsta leiti. Við getum betur Í grófum dráttum má segja að á seinustu árum hafi rekstrar-tekjur vegna strætóhluta Strætós skipst þannig að sveitarfélögin hafa skaffað 3 milljarða, notendur 2 milljarða og ríkið 1 milljarð. Nokkur framboð hafa óbeint sett fram þá stefnuskrá að ríkið hætti að borga þennan eina milljarð í strætó og noti hann frekar til að byggja mislæg gatnamót. Einhver framboð hafa jafnframt viðrað þá hugmynd að gefa fólki frítt í strætó og skera þannig 2 milljarða til viðbótar af rekstrartekjunum. Ef hvort tveggja er gert munu rekstrartekjur Strætós lækka um helming. Til að dæmið gangi upp þarf annaðhvort að nánast tvö- falda framlög sveitarfélaganna, eða skera niður þjónustu. Það má geta sér til hvor leiðin sé líklegra að verði farin. Þar sem almenningssamgöngur eru góðar kosta þær sitt. Strætófar- þegar í Reykjavík þurfa ekki lélegri, ókeypis þjónustu. Þeir þurfa betri þjónustu. Þótt það geti verið allt í lagi að fella niður fargjöld tíma- bundið sem part af einhverju mark- aðsátaki er tómt mál að ætla sér að að efla almenningssamgöngur ef menn ætla í leiðinni afþakka tekjur af fargjöldum notenda. Ókeypis strætó er vond hugmynd Pawel Bartoszek alþingismaður Konur á Íslandi eru full- komlega meðvitaðar um að ástandið er verra víða. Sums staðar fá konur ekki einu sinni að vinna. Það skiptir bara engu máli í þessu sam- hengi. Konur munu ekki lengur sitja undir því að þær eigi að einbeita sér að öðru, að þær eigi bara að vera dug- legri. Ebba Margrét Magnúsdóttir formaður læknaráðs Landspítalans Þegar Stígamót voru stofnuð á þessum degi fyrir 28 árum, þótti mörgum að þar væru á ferðinni öfgafull samtök. Konum, sem lýstu reynslu sinni af kynferðis- legu ofbeldi, var ekki trúað. Og börn, sem sögðu frá, áttu sjaldnast von á að vera tekin alvarlega. Við- horf samfélagsins var iðulega að þolendurnir væru að segja ósatt eða hefðu misskilið eigin upplifun frekar en að gróft heimilisofbeldi væri nánast daglegt brauð á litla Íslandi. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar og á alþjóðlegum baráttu- degi kvenna er við hæfi að líta um öxl og þakka öllu því baráttufólki sem hefur hjálpað okkur að þokast áfram. En við þurfum líka að staldra við og greina „öfgafólk“ samtímans. Hvaða raddir eru það sem við viljum frekar þagga niður í en hlusta á, af því að þær fara með óþægilegan sannleik? #metoo bylgjan hefur afhjúpað áreitni og ofbeldi sem hefur við- gengist alltof lengi og í öllum kimum íslensks samfélags. Haft var eftir Cynthiu Enloe, sem flutti fyrirlestur við Háskóla Íslands á dögunum, að fyrirsjáanlegt bakslag eftir #metoo umræðuna væri ákall um að gera þyrfti greinarmun á frá- sögnum kvenna. Áreitni væri ekki það sama og nauðgun og lélegur karlrembubrandari ekki það sama og áreitni og svo framvegis. Enloe varaði við þessu og sagði að nú væri ekki tími til að greina á milli heldur til að tengja saman. Því #metoo sög- urnar eru ekki aðskildar sögur um einstaklinga sem fara yfir mörk ann- arra. Þetta er samhangandi frásögn um menningu sem þarf að uppræta fyrir fullt og allt. Og til þess þarf að skilja samhengið. Á dögunum skipaði ég stýrihóp, undir forystu Höllu Gunnarsdóttur ráðgjafa míns í málaflokknum, sem er ætlað að hrinda í fram- kvæmd löngu tímabærum úrbót- um er varða kynferðislegt ofbeldi. Hópnum er meðal annars gert að vinna að heildarendurskoðun á forvörnum og fræðslu, móta stefnu gegn stafrænu kynferðisofbeldi, útfæra hugmyndir um styrkari stöðu brotaþola og gera tillögur um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo. Sérstaklega skal hópurinn líta til þeirrar margþættu mismun- unar, sem konur af erlendum upp- runa, konur sem ekki búa við efna- hagslegt öryggi, fatlaðar konur og hinsegin konur verða fyrir. Þessi nefndarskipan kann að láta lítið yfir sér en verkefnið er ærið. Því á vanda af þessari stærðargráðu er engin ein töfralausn og ekki dugir einföld lagabreyting eða aðgerða- áætlun. Hér þarf að taka bæði stór og smá skref. Það er von mín að þegar þessu kjörtímabili lýkur hafi okkur miðað áfram. Til að mynda verði fullgildingu Istanbúl-samn- ingsins að fullu lokið, árangur af auknu fjárframlagi til málaflokks- ins – og pólitískri áherslu á hann – verði augljós og að lögum hafi verið breytt til að styrkja stöðu þolenda kynferðisofbeldis. Þá hafi okkur tek- ist að nýta #metoo til að breyta um stefnu; til að skilja betur hvað það er í menningu okkar og samfélagi sem ýtir undir og viðheldur kynferðis- legri og kynbundinni áreitni. Stjórnvöld geta aldrei breytt menningu ein og sér, en þau geta troðið slóðina og stutt við bakið á því baráttufólki sem hefur opnað augu okkar fyrir því sem við vildum ekki sjá. Gleðilegan alþjóðlegan baráttudag kvenna! Áfram veginn Katrín Jakobsdóttir forsætis­ ráðherra Hópnum er meðal annars gert að vinna að heildar- endurskoðun á forvörnum og fræðslu, móta stefnu gegn stafrænu kynferðis ofbeldi, útfæra hugmyndir um styrkari stöðu brotaþola og gera tillögur um samræmd viðbrögð stjórnvalda við #metoo. Starfsmannastefna Land- spítalans sem er sú að ráða einungis lækna í 100% starfs- hlutfall við sjúkrahúsið er ekki til þess fallin að laða lækna heim úr sérnámi. Við erum fámennt land og því er nauðsynlegt fyrir suma sér- greinalækna að halda sér við faglega með því t.d. að starfa hluta úr ári erlendis. 8 . m a r s 2 0 1 8 F I m m T U D a G U r24 s k o ð U n ∙ F r É T T a B L a ð I ð 0 8 -0 3 -2 0 1 8 0 4 :4 0 F B 0 7 2 s _ P 0 4 9 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 7 2 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 F 2 5 -0 4 2 4 1 F 2 5 -0 2 E 8 1 F 2 5 -0 1 A C 1 F 2 5 -0 0 7 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 7 2 s _ 7 _ 3 _ 2 0 1 8 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.